Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Síða 162
GILLES DELEUZE
um, upplýsingum, mörkuðum eða „bönkum“. Peningar sýna kannski best
muninn á þessum tveimur gerðum samfélaga þ\'í ögunin hefur alltaf
tengst mótaðri mynt sem tekur mið af tiltekinni upphæð í gulli en
stýringin byggist hins vegar á fljótandi gengi, stilling sem reiðir sig á
kóða og ákvarðar viðmiðunarhlutföll ólíkra gjaldmiðla. Séu gömlu pen-
ingamoldvörpurnar dýrin á stöðum innilokunarinnar, þá eiga stýringar-
samfélögin sína höggorma.5 Við höfum farið frá einu dýri til annars, ffá
moldvörpum til höggorma, ekki aðeins í kerfinu sem við búum í heldur
einnig í liínaðarháttum okkar og tengslum við annað fólk. Ogunarmað-
urinn ffamleiddi orku í afmörkuðum einingum en stýringarmaðurinn
gengur í bylgjum á leið um samfellt svið ólíkra sporbauga. Brimbretta-
brun6 hefur tekið við af gömlu íþróttunum.
Það er auðvelt að finna samsvörun milli sérhvers samfélags og ein-
hvers konar vélar, ekki af því að vélar skilgreini þau heldur vegna þess að
í þeim birtist þjóðfélagsformið sem ffamleiðir þær og nýtir. GömJu ein-
valdsríkin réðu yfir einföldum vélum, vogarstöngum, blökkum, klukk-
um. Nýleg ögunarsamfélög voru búin varmaaflsvélum sem fylgir óvirk
hætta á óreiðu og virk hætta á skemmdarverkum. Þriðja kynslóð véla
með upplýsingatækni og tölvum heldur stýringarsamfélögum gangandi
þar sem óvirka hættan er hávaði og sú virka er þjófnaður og veirusýking-
ar. Þessi tækniþróun á sér dýpri rætur í tiltekinni umbreytingu kapítalis-
mans. Þetta er velþekkt umbreyting sem draga má saman á eftirfarandi
máta: Kapítalismi nítjándu aldar beindi kröftimum í einn farvæg og ein-
blíndi á ffamleiðslu og eignir. A þann hátt gerði hann verksmiðjuna að
innilokunarstað þar sem kapítalistinn átti ffamleiðslutækin og jaffivel
einnig aðra staði sem lutu svipuðu skipulagi (heimili verkamanna, skóla).
Markaðir unnust ýmist með sérhæfingu, með nýlendustefnu eða með því
að draga úr framleiðslukostnaði. En í núverandi mynd beinist kapítal-
ismi ekki lengur að framleiðslu sem oft er flutt til fjarlægari staða í þriðja
heiminum, ekki einu sinni þegar um er að ræða flókna starfsemi eins og
vefnaðarverksmiðjur, stáliðjuver eða olíuhreinsunarstöðvar. Hann bein-
ist öllu heldur að yfirffamleiðslu [fr. mrproduction]. Hann kaupir ekki
lengur hráefni og selur ekki lengur fúllunnar vörur. Hann kaupir fiill-
5 [Þýð.: Áður fyrr var gengisstefna Evrópubandalagsins - fljótandi gengi samkvæmt
ákveðnum reglum - iðulega kölluð „höggormur".]
6 [Þýð.: Greinin er skrifuð áður en netið varð almenningseign. „Brimbrettabrun" eru
hér þýðing á „le surf' sem síðar var (og er) notað um vafur á netinu.]
IÓO