Þjóðlíf - 01.05.1986, Blaðsíða 50
í dögun
Fyrir nokkru var gerð könnun í Bandaríkjunum á
viðhorfum karla og kvenna til kynlífs snemma á morgn-
ana. Könnunin náði að vísu aðeins til 50 karla og 50
kvenna og er því tæplega marktœk fyrir mann- eða
kvenkynið í heild. Svörin voru þó fróðleg.
Um 80prósent karlanna svöruðu því til að þeim
fyndist morgunkynlíf unaðslegt, en70 prósent kvenn-
anna. 66 prósent kvennanna sögðu þó að þœr kysu
heldur kvöldin og nceturna.
Um 60 prósent aðspurðra voru þeirrar skoðunar að
venjulega væri það karlinn sem œtti frumkvœöið á
morgnana, og 62 prósent kvennanna — en 36 prósent
karlanna — sögðu að viðhorf þeirra til núverandi ástar-
sambands og lengd þess hefði áhrif á viðhorf þeirra til
þessara hluta.
64 prósent kvennanna sögðu að þœr œttu erfiðara með
að fá fullnœgingu á morgnana en á kvöldin. Hvaða
áhrif höfðu þessi svör á karlmennina? Um 6 prósent
þeirra sögðust halda að konur þeirra ættu auðvelt með
að fá fullnægingu á morgnana, 16 prósent sögðust halda
að kvöldin væru betrifyrir þær, 12 prósent voru þeirrar
skoðunar að tíminn hefði engin áhrif — en 66 prósent
sögðust ekki hafa hugmynd um hvenær besti tíminn
værifyrir konurnar!
Mynd: Ástþór Jóhannsson
Alla tíð virðast kynin hafa haft mismunandi skoðanir á
kynlífi. Þetta kemur fram í bókmenntum og myndlist
frá liðnum öldum — og fjöldamörgum öðrum heim-
ildum. Jafnréttisumræðan á áttunda áratugnum snerist
kannski ekki hvað síst um þetta atriði og var þar komið
inn áfjöldamörg atriði sem tengjast kynlífi, beint eða
óbeint: getnaðarvarnir, fóstureyðingar, kyngetu, kyn-
kulda, barnaumönnun og ótal margtfleira. Kynhegðun-
in sjálf var í brennidepli — rætt var um bolabrögð
karlmanna á þessu sviði ogfeimni kvenna. Frjálslyndi í
kynferðismálum óx, en kannski verður ekki það sama
sagt um þekkinguna. Alla vega virðist víða vera pottur
brotinn í þeim efnum og kynunum ganga seint að ná
saman.
Til að kanna afstöðu kynjanna til kynlífsins birtist hér
svar karls og konu við því hvaða augum þau líta kynlíf
fyrir morgunverð. Hér birtist mismunandi afstaða
glöggt — og áberandi er lítill skilningur á þörfum hins
aðilans.
HANNSEGIR:
Ég veit eiginlega ekki hvernig
ég á að svara þessu með öðru
en því að vísa til minnar eigin
reynslu. Hvort ég tala fyrir munn
karlmanna yfirleitt veit ég ekki,
en þetta er allavega mín reynsla.
Mér er mjög minnisstæð ein
reynsla á þessu sviði- kannski
vegna þess að um var að ræða
konu sem ég var mjög hrifinn af,
en missti því miður. Kvöld nokk-
urt vorum við úti að ganga í Ijúfu
veðri eftir góðan kvöldverð á
góðu veitingahúsi. Kynni okkar
voru nýhafin og við höfðum ekki
sofið saman áður. En þetta
kvöld var augljóst að hverju
stefndi. Hún bauð mér heim með
sér og við áttum saman yndis-
lega nótt. Þegar við vöknuðum
um morguninn hafði ég fullan
hug á því að hefja leikinn þar
sem frá var horfið, en konan
hafnaði því alfarið. Það var
augljóst að kynlíf tengdist aðeins
nóttinni í hennar huga. Ég átti
erfitt með að kyngja þessu, og
þetta var upphafið að endinum á
okkar vinskap. Ég upplifði þetta
sem höfnun, þótt ég viti vel að sú
varekki meiningin.
Þetta sama vandamál hafði ég
reyndar upplifað áður. Ég var þá
með stúlku sem ég hreifst af,
sem ekkert hafði á móti „morg-
unævintýrum" sumadaga. En
aðra daga, einkum þegar hún
átti að mæta í vinnu, neitaði hún
mér alfarið. Morgunn einn tókst
mér þó að fá hana til við mig eftir
50 ÞJÓÐLlF