Þjóðlíf - 01.05.1986, Blaðsíða 85
forstjóratilbeiðsla
höfum litið þannig á, að mikil-
vægast væri að menn reyndu að
tala saman og kanna hvort sá
pólitíski veruleiki sem við búum
við hér og nú, bjóði í raun ekki
uppá þau verkefni, sem allir and-
stæðingar sérhyggjuaflanna
gætu sameinast um. Félags-
menn eru úr öllum pólitískum
flokkum í landinu, nema Sjálf-
stæðisflokknum, og hefurekki
komið í Ijós neinn teljandi ágrein-
ingur um meginmál, þar með tal-
in utanríkismál, og hefur félagið
þó gengist fyrir fjölmörgum fund-
um og tveim stórum ráðstefnum.
Það hefur komið í Ijós, að
sundrung vinstrimanna í fjóra
eða fimm flokka og pólitísk sam-
tök, og ekki færri forystumanna-
sett, á við engar efnislegar for-
sendur að styðjast. Allt bendir
hins vegar til þess að sundrung-
unni sé fyrst og fremst við haldið
af hégómlegum framámönnum,
sem eru einskonar erfðaprinsar
liðinstíma.
Þegar þessum smákóngum
rennur nú til rifja áhrifaleysi sitt,
er skiljanlegt að þeim detti í hug
að framlengja ofurlítið forystu-
ímynd sína með aðstoð hins
stóra og vel skipulagða Sjálf-
stæðisflokks. Það má vel vera
að þeim takist að skríða upp í
ráðherrastóla og önnur vel-
launuð embætti með hjálp þess
öfluga flokks, þótt manni finnist á
stundum að einfaldara hefði ver-
ið fyrir þá að ganga í hann og
njóta þar venjulegrar fyrir-
greiðslu.
Hvað sem því líður verða
menn samt sem áður að beita
sér fyrir því félagslega réttlæti,
sem samboðið er hugmyndum
sæmilega siðaðra manna um
virðingu og reisn einstaklingsins.
Breytir þar engu hvaða sam-
steypustjórnareggi hún verpir,
þessi fjórvængjaða stjórnmála-
hæna sem við höfum burðast
með öll þessi ár.
Guðmundur Ólafsson leggur stund á
viðskiptafræði við Háskóla íslands.
Sundrung vinstrimanna í
fjóra eða fimm flokka eða
pólitísk samtök, og ekki
færri forystumannasett, á
við engar efnislegar for-
sendur að styðjast.
ÞJÓÐLlF 85