Þjóðlíf - 01.05.1986, Side 85

Þjóðlíf - 01.05.1986, Side 85
forstjóratilbeiðsla höfum litið þannig á, að mikil- vægast væri að menn reyndu að tala saman og kanna hvort sá pólitíski veruleiki sem við búum við hér og nú, bjóði í raun ekki uppá þau verkefni, sem allir and- stæðingar sérhyggjuaflanna gætu sameinast um. Félags- menn eru úr öllum pólitískum flokkum í landinu, nema Sjálf- stæðisflokknum, og hefurekki komið í Ijós neinn teljandi ágrein- ingur um meginmál, þar með tal- in utanríkismál, og hefur félagið þó gengist fyrir fjölmörgum fund- um og tveim stórum ráðstefnum. Það hefur komið í Ijós, að sundrung vinstrimanna í fjóra eða fimm flokka og pólitísk sam- tök, og ekki færri forystumanna- sett, á við engar efnislegar for- sendur að styðjast. Allt bendir hins vegar til þess að sundrung- unni sé fyrst og fremst við haldið af hégómlegum framámönnum, sem eru einskonar erfðaprinsar liðinstíma. Þegar þessum smákóngum rennur nú til rifja áhrifaleysi sitt, er skiljanlegt að þeim detti í hug að framlengja ofurlítið forystu- ímynd sína með aðstoð hins stóra og vel skipulagða Sjálf- stæðisflokks. Það má vel vera að þeim takist að skríða upp í ráðherrastóla og önnur vel- launuð embætti með hjálp þess öfluga flokks, þótt manni finnist á stundum að einfaldara hefði ver- ið fyrir þá að ganga í hann og njóta þar venjulegrar fyrir- greiðslu. Hvað sem því líður verða menn samt sem áður að beita sér fyrir því félagslega réttlæti, sem samboðið er hugmyndum sæmilega siðaðra manna um virðingu og reisn einstaklingsins. Breytir þar engu hvaða sam- steypustjórnareggi hún verpir, þessi fjórvængjaða stjórnmála- hæna sem við höfum burðast með öll þessi ár. Guðmundur Ólafsson leggur stund á viðskiptafræði við Háskóla íslands. Sundrung vinstrimanna í fjóra eða fimm flokka eða pólitísk samtök, og ekki færri forystumannasett, á við engar efnislegar for- sendur að styðjast. ÞJÓÐLlF 85

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.