Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 56

Frjáls verslun - 01.07.2012, Síða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 7. TBL. 2012 Ólafur er einyrki enn sem komið er. Hann er að því leyti hinn dæmigerði frumkvöðull. Hann hefur undanfarin ár unnið að því einn að koma rótum undir sprota, þar sem raunveruleikinn er endur­ hannaður og bættur. Það gerist í tölvu. Með þessu hefur hann eins og aðrir frum­ kvöðlar innt af hendi sitt brauðstrit, sem felst í ljósmyndun og hönnun og líka kennslu innan greinar sem kallast gagnvirk hönnun. Hann er lærður í Danmörku, við hönnunar­ háskólann í Kolding, og kennir þar í þessari grein milli þess sem hann vinnur að nýrri lausn innan gagnvirkrar hönnunar. Núna er þessi sproti kominn svo á legg að fyrirtækið Designing Reality hefur verið stofnað, leitað hefur verið til fjárfesta og þeir sýnt hugmyndinni áhuga. Þar á meðal er Arion banki. Það styrkir Ólaf auðvitað á þessari vegferð frumkvöðulsins að hann hefur þegar leyst af hendi mikilvæg verkefni í gagnvirkri hönnun. Þar má nefna þrívíddarbakgrunn í kvikmynd­ inni Journey 2: The mysterious Island sem Warner­bræður í Ameríku gerðu í fyrra. Lands lagið í myndinni er blekking. Úrslitaár framundan Þetta fjallar allt um tölvur og hönnun og þrí víddarmyndir sem koma í stað raunveru­ leikans. Vinnan nýtist í kvikmyndum, í aug lýsingum, tónlistarmyndböndum og hvar sem blekkingum er beitt svo áhorfandinn haldi að hann sjái eitthvað raunverulegt. Hann nefnir líka að söfn geti notað þessa að ferð við að sýna gripi sem ekki eru á staðnum og það er hægt að endurskapa fornleifar. Hvaðeina. Dæmi er hægt að sjá á www.threedee.it. „Það sem er nýtt hjá mér er að ekki þarf lengur að teikna bakgrunninn fyrst heldur er hægt að nota ljósmyndir, eina eða margar, til að búa til þrívíðan, hreyfanlegan bakgrunn,“ segir Ólafur þegar hann lýsir hugmyndinni að baki. Forritið á líka að vera svo einfalt og not­ enda vænt að hver og einn geti nýtt sér kosti þess. Það þarf ekki að kalla til sérfræðing til að gera ævintýralegar þrívíddarmyndir. Ólaf­ ur kynnti hugmynd sína á Startup Reykjavík í sumar og segir að á næstu tólf mánuðum komi í ljós hvort þetta verður að fyrirtæki til frambúðar eða ekki. „Ég er að flytja núna inn í Klak, ætla að fá fleiri starfsmenn og láta reyna á hvort þetta er lífvænlegt,“ segir Ólafur. Hann reiknar með að starfsemin verði í það minnsta að hluta erlendis því vinnan er mjög sérhæfð og erfitt að fá menntað fólk á Íslandi. Sjálfur reiknar hann með að vera meira heima á Íslandi en til þessa. Undanfarin ár hefur hann sinnt verkefnum um víða veröld og lagt að baki 300.000 kílómetra í flugi á áratug. Það er nóg í bili! Hjá Unity Technologies er búinn til hug­búnaður fyrir hönn uði tölvuleikja. Ekki leikirnir sjálfir heldur hjálpartæki sem tölvuleikjasmiðir geta nýtt sér og hug­búnaðurinn nýtist á mörgum öðrum sviðum þar sem hanna þarf tölvuumhverfi – gjarnan í þrívídd. Afurðina er hægt að nálg ast á www.unity3D. com. Davíð Helgason segir að núna hafi 1,2 milljónir notenda aðgang að búnaðinum og fyrirtækið er orðið sjálfbært aðeins þremur árum eftir að stóra skrefið út á markaðinn var tekið. Minnstu notendurnir, þeir sem eru að föndra við leikjagerð heima, fá ókeypis reynslu­ aðgang. Hinir stóru borga áskrift. „Við vorum upphaflega bara þrír námsmenn í Dan­ mörku sem byrjuðum að þróa þennan búnað,“ segir Davíð. „Einn er þýskur, annar dansk/breskur og svo ég Ís lendingur. Við lögðum fram okkar eigin vinnu og pabbi eins lánaði okkur pening þann ig að þetta var dæmigerð frumkvöðla starfsemi.“ En svo fóru hlutir að gerast árin 2008 til 2009. Það var eftirspurn eftir hugbúnaðinum og fyrirtækið tók að „Ég er að flytja núna inn í Klak, ætla að fá fleiri starfsmenn og láta reyna á hvort þetta er lífvænlegt,“ segir Ólafur. Unity Technologies er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem vaxið hefur með undr a hraða síðustu þrjú ár. Upphaflega voru það þrír menn sem komu þess um sprota á legg í Danmörku en eru nú með höfuðstöðvar í San Franc isco. Við stjórnvölinn er Davíð Helgason. ör vöxtur í krEPPunniDavíð Helgason hjá Unity Technologies í San Francisco: Davíð Helgason hjá Unity Technologies í San Francisco. Kjartan Sverrisson hjá GuitarParty.com: og frumkvöðlar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.