Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2008, Blaðsíða 20
þriðjudagur 24. júní 200820 Ættfræði DV
40 ára í dagTil
hamingju
með
afmælið
30 ára afmæli
n Sigurbjörn Óskar guðmundsson Tröllateigi 28,
Mosfellsbær
n Halldór guðjón Halldórsson Bjarkartúni 3, Garður
n Elías Árnason austurströnd 8, Seltjarnarnes
n rebekka Silvía ragnarsdóttir Bræðraborgarstíg 22,
Reykjavík
n arna Svavarsdóttir Barmahlíð 26, Reykjavík
n Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson Bólstaðarhlíð 66,
Reykjavík
n ingvar arnarson Lyngmóum 14, Garðabær
n Stefán Páll Kristjánsson Hjallabraut 7, Hafnarfjörður
n þorsteinn Thorsteinson Brún, Flúðir
n Sigríður Kristín Sæmundsdóttir Stigahlíð 37, Reykjavík
40 ára afmæli
n Kalvis Kauzens Smáratúni 4, Selfoss
n andis Kadikis Vesturlandsbr Lundi, Reykjavík
n María Kristina Vrh Karlsdóttir Jörfagrund 52, Reykjavík
n Sigurður Freyr Emilsson Hólavegi 38, Sauðárkrókur
n Elín guðrún ragnarsdóttir Njörvasundi 29, Reykjavík
n Ágúst H Björnsson Vesturbrún 6, Reykjavík
n Bergþór Halldórsson Logafold 21, Reykjavík
n jóna dagbjört dagsdóttir Brúnastöðum 42, Reykjavík
n nína Midjord Erlendsdóttir Reynivöllum 10, Egilsstaðir
50 ára afmæli
n Sumanawathie Mahagoda Gedara Flatahrauni 16a,
Hafnarfjörður
n unnur Elínborg Birgisdóttir Tjarnarmýri 11,
Seltjarnarnes
n gunnar rúnar Pétursson Vogum 2, Mývatn
n drífa Björk jónsdóttir Bjarkarheiði 27, Hveragerði
n Stefán Kristjánsson Leiðhömrum 39, Reykjavík
n Ágúst Magnússon Laufengi 38, Reykjavík
n jóhann guðmundsson Fannafold 123a, Reykjavík
n inga Katrín Vestmann Rimasíðu 25a, Akureyri
n Sigurbjörn arnar Sigurbjörnsson Efstahjalla 21,
Kópavogur
60 ára afmæli
n rannveig Pálsdóttir Mjógötu 7, Ísafjörður
n rúnar Valsson Steinholti 1, Vopnafjörður
n Sigurdís Haraldsdóttir Lautasmára 39, Kópavogur
n þórhallur þorsteinsson Ártröð 9, Egilsstaðir
n guðrún Víglundsdóttir Skálholti 13, Ólafsvík
n aðalsteinn Kristjánsson Höfðaholti 3, Borgarnes
n Svanur M gestsson Bjargartanga 4, Mosfellsbær
n gunnar Snorrason Hraunbæ 198, Reykjavík
n ruth Árnadóttir Vesturbergi 165, Reykjavík
n daði B Halldórsson Bjarkargötu 8, Patreksfjörður
n Bergþór njáll Bergþórsson Brautarási 4, Reykjavík
n Elí Sigurður Elísson Hjallalundi 5a, Akureyri
n Halldóra Valdimarsdóttir Klapparholti 12, Hafnarfjörður
n gísli Sigurðsson Dynskógum 20, Hveragerði
n xSmári djermoun Fossagötu 6, Reykjavík
70 ára afmæli
n Sævar Hallgrímsson goðabyggð 18, akureyri
n Bjarni andrésson Túngötu 21, Tálknafjörður
n Ásta Sigríður guðlaugsdóttir Lautasmára 3, Kópavogur
n Pálmi Stefánsson Ásbúð 40, Garðabær
n daníel Karl Pálsson Smyrlahrauni 64, Hafnarfjörður
n Karl Kreidler Vatnsendabletti 42, Kópavogur
n Hjördís Einarsdóttir Klapparhlíð 5, Mosfellsbær
n Kristín þórðardóttir Þrastarási 73, Hafnarfjörður
75 ára afmæli
n guðmundur Helgason Seljalandsvegi 40, Ísafjörður
n Sóley Marvinsdóttir Hjallabraut 33, Hafnarfjörður
n guðbjartur Kristinsson Dalseli 20, Reykjavík
n Bragi þórðarson Dalbraut 17, Akranes
n Baldur þorsteinn Bjarnason Háaleitisbraut 39, Reykjavík
n Sigríður María jónsdóttir Kleppsvegi 134, Reykjavík
80 ára afmæli
n aðalsteinn guðmundsson Faxabraut 13, Reykjanesbær
n alda guðmundsdóttir Kópavogsbraut 1b, Kópavogur
n Karl Einarsson Lækjasmára 4, Kópavogur
n anna gestsdóttir Kaplaskjólsvegi 39, Reykjavík
85 ára afmæli
n jóhanna Magnúsdóttir Hlíðarvegi 45, Siglufjörður
n Kristrún Hreiðarsdóttir Sólheimum 27, Reykjavík
n jóna gísladóttir Sólvangsvegi 1, Hafnarfjörður
90 ára afmæli
n arnór Karlsson Kjarnalundi dvalarh, Akureyri
Jón Kaldal
riTSTjÓri FréTTaBlaðSinS
Anna Dögg Sigurjónsdóttir
KauPKona Á aKurEyri
Anna Dögg fæddist
á Akureyri og ólst þar
upp. Hún var í Þela-
merkurskóla og stund-
aði nám við VMA.
Anna Dögg stofn-
aði eigin verslun, Do re
mi, barnafataverslun á
Akureyri er hún var tví-
tug og hefur starfrækt
hana síðan.
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu
Daggar er Þóroddur
Hjaltalín, f. 4.8. 1977,
framkvæmdastjóri á
Akureyri.
Börn Önnu Daggar og Þór-
odds eru Anton Orri Hjalta-
lín, f. 4.10. 2004; Arnór
Bjarki Hjaltalín, f. 10.9.
2006.
Systkini Önnu
Daggar eru Ingibjörg
Ösp Sigurjónsdóttir, f.
29.5. 1980, félagsráð-
gjafi á Akureyri; Andri
Már Sigurjónsson, f.
20.1. 1987, bygginga-
fræðingur á Akureyri.
Foreldrar Önnu
Daggar eru Sigur-
jón Sveinbjörnsson, f.
24.11. 1957, rafeinda-
virki á Akureyri, og
Edda Björk Rögnvalds-
dóttir, f. 22.5. 1960, skrifstofu-
maður hjá veiðistjórnunarsviði
Umhverfisstofnunar.
Magnús Einþór Áskelsson
TÓnliSTarMaður og ForSTöðuMaður í grindaVíK
Magnús fæddist á
Tókastöðum í Eiða-
þinghá og ólst þar upp.
Hann var í barnaskóla
á Eiðum, stundaði
nám við Alþýðuskól-
ann á Eiðum og lauk
þroskaþjálfaprófi frá
KHÍ 2006.
Magnús ólst upp
við öll almenn sveita-
störf á Tókastöðum,
vann í fiski á Bakka-
firði en hefur síðan
unnið með fötluðum
á sambýlum og öðrum
stöðum. Hann hefur
verið forstöðumaður sambýlis
í Grindavík frá 2006.
Magnús situr í stjórn Ness,
íþróttafélags fatlaðra
á Suðurnesjum.
Fjölskylda
Kona Magnúsar
er Heba Maren Sig-
urpálsdóttir, f. 9.10.
1982, deildarstjóri við
æfingastöð fatlaðra í
Keflavík.
Sonur Magnúsar og
Hebu Marenar er Vikt-
or Nói Magnússon, f.
21.6. 2005.
Foreldrar Magn-
úsar eru Áskell Ein-
arsson, f. 28.7. 1946,
hrossabóndi á Eiðum, og Anna
Magnúsdóttir, f. 17.8. 1949,
stuðningsfulltrúi og bóndi.
30
ára
í dag
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í
Laugarneshverfinu. Hann var í Ísaksskóla,
Laugarnesskóla, Laugalækjarskóla, lauk
stúdentsprófi frá MR 1988 og lauk BA-prófi
í almennri bókmenntafræði frá HÍ 1992.
Jón vann almenna verkamannavinnu á
námsárunum, m.a. við hellulögn, gatna-
framkvæmdir, s.s. malbikun og var í bygg-
ingarvinnu. Hann hefur verið blaðamaður
frá 1993, byrjaði hjá Gunnari Smára Egils-
syni á Heimsmynd 1993, var blaðamaður á
Eintaki 1994, síðan á Morgunpóstinum, þá
Mánudagspósti og loks Helgarpósti.
Jón hóf störf hjá Haraldi J. Hamar, rit-
stjóra og útgefanda, við Iceland Review í
ársbyrjun 1996, tók við ritstjórn tímarita
þeirrar útgáfu síðla árs 1996, þ.e. Atlant-
ica fyrir millilandaflug, Iceland Review,
Upphátt og síðan Ský, fyrir innanlandsflug,
og var ritstjóri þeirrar útgáfu fram í mars
2004. Þá hóf Jón störf á Fréttablaðinu, var
þar ritstjórnarfulltrúi, síðan aðstoðarrit-
stjóri haustið 2004 og hefur verið ritstjóri á
Fréttablaðinu frá því í febrúar 2007.
Jón sat í stjórn Torfhildar, félags bók-
menntafræðinema við HÍ, og hefur sinnt
félags- og trúnaðastörfum hjá Þrótti, eink-
um í æskulýðsstarfi félagsins.
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Ragna Sæmundsdótt-
ir, f. 18.5. 1968, birtingastjóri hjá ABS Fjöl-
miðlahúsi. Hún er dóttir Sæmundar R. Ág-
ústssonar framkvæmdastjóra og Herborgar
Pálsdóttur húsmóður.
Börn Jóns og Rögnu eru Jón Kaldal, f.
19.3. 1996; Arna Kaldal, f. 5.4. 1999.
Hálfbróðir Jóns, sammæðra, er Kristinn
Ragnar Sigurbergsson, f. 1.2. 1963, kennari
í Garðabæ.
Hálfsystir Jóns, samfeðra, er Anna
Kaldal, f. 25.5. 1966, lögfræðingur í Stokk-
hólmi.
Alsystkini Jóns eru Guðrún Kaldal, f.
16.7. 1970, íþróttakennari og forstöðu-
maður í Frostaskjóli; Steinar Kaldal, f. 24.5.
1979, BA í stjórnmálafræði og starfsmað-
ur hjá Útflutningsstofnun; Sóley Kaldal, f.
21.1. 1983, verkfræðinemi í Lundi.
Foreldrar Jóns: Jón Kaldal, f. 14.3. 1942,
d. 11.2. 2003, byggingafræðingur, og Stein-
unn K. Kaldal, f. 9.12. 1945, tækniteiknari
og læknaritari.
Ætt
Jón byggingafræðingur var sonur Jóns
Kaldal, ljósmyndara í Reykjavík, bróður
Leifs Kaldal gullsmiðs. Jón var sonur Jóns,
b. í Stóradal, bróður Þorleifs, póstmeistara
og alþm., föður Jóns Leifs tónskálds. Annar
bróðir Jóns var Pálmi, b. á Ytri-Löngumýri,
faðir Jóns, alþingisforseta á Akri, föður
Pálma, ráðherra á Akri. Systir Jóns var Guð-
rún í Stóradal, móðir Jóns, alþm. í Stóradal.
Jón var sonur Jóns, alþm. í Sólheimum og
Stóradal, bróður Erlends, föðurafa Sigurðar
Guðmundssonar skólameistara, föður Ör-
lygs og Steingríms listmálara. Systir Jóns var
Ingibjörg, amma Ingvars Pálmasonar alþm.,
afa Ingvars Gíslasonar, ritstjóra Tímans,
og ráðherra. Jón var sonur Pálma, b. í Sól-
heimum, Jónssonar, af Eiðsstaðaætt. Móðir
Pálma í Sólheimum var Ingiríður Jónsdótt-
ir, ættföður Skeggsstaðaættar, Jónssonar.
Móðir Jóns, b. í Stóradal, var Ingibjörg Sal-
óme, dóttir Þorleifs ,,ríka’’ í Stóradal, Þor-
kelssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur,
,,ríka’’ í Stóradal, bróður Ingiríðar.
Móðir Jóns byggingafræðings var Guð-
rún, dóttir Sigurðar, járnsmiðs í Reykja-
vík og eins af stofnendum Járnsmíðafé-
lags Reykjavíkur, Sigurðssonar járnsmiðs
Jónssonar, b. frá Hliðnesi á Álftanesi, Hall-
dórssonar. Móðir Guðrúnar var Dagmar
Finnbjörnsdóttir Elíassonar Eldjárnssonar,
ættuð frá Hnífsdal og Aðalvík.
Steinunn er systir Halldórs Kristinssonar
(Dóra í Tempó, Popps og Þrjú á palli). Stein-
unn er dóttir Kristins, byggingarmeistara í
Reykjavík, Sigurjónssonar, b. á Sámsstöð-
um í Laxárdal, Jóhannessonar. Móðir Krist-
ins var Kristín Jónsdóttir frá Kambsnesi.
Móðir Steinunnar er Ragna, systir Bald-
vins Halldórssonar, leikara og leikstjóra,
föður Páls Baldvinssonar, bókmenntafræð-
ings og ritstjórnarfulltrúa. Ragna er dótt-
ir Halldórs, póstmeistara, kennara og b. á
Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp, Jónsson-
ar, tómthúsmanns í Grasi á Þingeyri, Helga-
sonar. Móðir Rögnu var Steinunn Guðrún
Þórðardóttir, b. á Þórisstöðum í Þorskafirði,
bróður Þorsteins, b. í Æðey, föður Péturs
Thorsteinsson, útgerðarmanns á Bíldudal,
föður Muggs myndlistarmanns. Pétur var
auk þess afi Péturs Thorsteinssonar sendi-
herra og langafi Ólafs B. Thors, fyrrv. for-
seta borgarstjórnar. Annar sonur Þorsteins
var Davíð Thorsteinsson læknir, afi Davíðs
Scheving Thorsteinssonar forstjóra. Þórð-
ur var sonur Þorsteins, pr. í Gufudal, Þórð-
arsonar, pr. á Snæfjöllum, Þorsteinssonar.
Móðir Steinunnar Guðrúnar var Hólmfríð-
ur Ebenesardóttir, húsasmíðameistara í
Stykkishólmi, Matthíassonar.
30
ára
í dag