Frjáls verslun - 01.05.2007, Blaðsíða 47
F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7 47
Margrét Sanders
framkvæmdastjóri Deloitte
Margrét Sander er annar tveggja fram-
kvæmdastjóra Deloitte. Ekki þarf að fara
mörgum orðum um áhrif hennar í viðskipta-
lífinu sem en Deloitte vinnur fyrir stóran
fjölmörg fyrirtæki á listanum yfir 300 stærstu
fyrirtækin.
Anna Kristín Traustadóttir
Ernst & Young
Anna Kristín Traustadóttir er framkvæmda-
stjóri Ernst & Young og hún situr jafnframt
í stjórn félagsins. Líkt og önnur stór end-
urskoðunarfyrirtæki á Íslandi er Ernst &
Young alþjóðlegt fyrirtæki sem býður upp
á þjónustu á sviði endurskoðunar, reikn-
ingshalds, ráðgjafar og skattamála.
Þórdís Sigurðardóttir
stjórnarformaður Teymis
Þórdís Sigurðardóttir er stjórnarformaður
Teymis en undir það félag heyrir Vodafone,
Kögun, Opin kerfi, Skýrr, Sko, Skýrr og
fleiri fyrirtæki. Í nýlegum breytingum innan
Baugs Group settist Þórunn í framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins.
Halla Tómasdóttir,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
EFTIR BJARNA ÁRMANNSSON
„Halla Tómasdóttir er kröftugur
stjórnandi. Það sem einkennir hana
er skemmtileg blanda af amerískri
markmiðasetningu, sálfræðilegu
innsæi í fólk og drifkraft þess,
íslenskum keppnisanda og ákefð í að
breyta og bæta heiminn.
Halla hugsar stórt og vill hafa áhrif
á hlutina í kringum sig. Hún tekur
ákvarðanir hratt og hreyfir sig óhik-
andi og fumlaust. Skref fyrir skref
stefnir hún að settu marki – og nær
því yfirleitt.
Halla er eins og margir frum-
kvöðlar fljótfær, hún á það til að
draga ályktanir of fljótt. En hún tekur
rökum vel og kemst því hratt á sporið
aftur, fari hún út af því. Hún er dug-
leg og ósérhlífin og sækist frekar eftir
árangri en umbun eða viðurkenningu.
Hún er sanngjörn en hörð og fólk veit
hvort hún er óánægð eða ánægð með
störf þess. Það er mikill kostur.
Halla hefur komist þangað sem
hún er, því hún hikar ekki við að
mæta áskorunum varðandi menn
og málefni og er ófeimin við það. Sá
eiginleiki er mjög óíslenskur að mínu
mati, því að yfirleitt forðumst við að
taka á ágreiningsefnum. Halla er hins
vegar sanngjörn og kann að meta
hreinskilni, metnað og vinnusemi, en
þó umfram allt – árangur.
Ég kynntist Höllu eftir að hún kom
frá Ameríku um aldamótin. Satt best
að segja man ég ekki hvernig það bar
að, en mér finnst eins og við höfum
þekkst í áraraðir. Ég met hana og
hennar hæfileika mikils.“
– Bjarni Ármannsson er fyrrverandi for-
stjóri Glitnis.
Halla Tómasdóttir er framkvæmdastjóri
Viðskiptaráðs og varamaður í bankaráði
Seðlabankans.