Frjáls verslun - 01.05.2007, Síða 196
196 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Sparisjóður Mýrasýslu var stofnaður 13. mars 1913 og hóf starfsemi sína 1. október sama ár. Sparisjóðurinn
veitir fjölbreytta þjónustu á sviði fjármála og
trygginga fyrir einstaklinga og fyrirtæki og
eru höfuðstöðvarnar í nýju og glæsilegu húsi
við Digranesgötu 2 í Borgarnesi.
Steinunn Ásta Guðmundsdóttir er yfir-
maður þjónustusviðs og staðgengill Gísla
Kjartanssonar sparisjóðsstjóra. Starfsemi
sparisjóðsins var nýverið skipt í fjögur svið.
Steinunn Ásta var skrifstofustjóri fyrir þá
breytingu, en starfssvið hennar er starfs-
mannahald og þjónusta á einstaklingssviði.
Auk þess að sinna almennri bankastarfsemi
rekur sparisjóðurinn umboðsskrifstofu frá
Tryggingamiðstöðinni hf.
Starfsaldur og reynsla
„Stofnfé sparisjóðsins er í eigu Borgarbyggðar
og hér vinna 34 starfsmenn, sex karlar og 28
konur. Í stjórn sparisjóðsins eru fimm manns,
þar af tvær konur. Þá eru tvær konur yfir
tveimur sviðum bankans og tveir karlmenn.“
Steinunn Ásta er á þrítugasta starfsári
í sparisjóðnum og segir hún starfsaldur í
bankanum háan. Starfsfólkið búi yfir mikilli
reynslu og starfsemi sparisjóðsins sé mikil-
vægur hornsteinn í héraðinu.
„Árið 2006 fékk Sparisjóður Mýrasýslu
frumkvöðlaverðlaun, en rökin fyrir tilnefning-
unni voru þau að sparisjóðurinn hefði verið
öflugur bakhjarl atvinnulífs og stutt dyggilega
við nýsköpun á svæðinu. Auk þess hefði hann
verið sterkt hreyfiafl í umbreytingum og nýrri
hugsun í fyrir tækjum á Vesturlandi.“
Nýr styrktarsjóður
SPM skilaði miklum hagnaði á síðasta ári,
þeim mesta í sögu sjóðsins. Steinunn Ásta
segir árangurinn ekki síst að þakka hæfi-
leikaríku og vel menntuðu starfsfólki. Með
auknum styrk sparisjóðsins gefist stjórn-
endum og starfsfólki tækifæri til þess að
hugsa stærra og setja markið hærra, eins og
hæfi framsækinni fjármálastofnun.
„Framlög sparisjóðsins til samfélagsmála
eru sífellt að aukast, til dæmis lagði sjóð-
urinn fram 40 milljónir króna til Mennta-
skóla Borgarfjarðar sem hefur starfsemi sína
síðsumars. Einnig úthlutar Menningarsjóður
veglegum styrkjum á hverju ári. Jafnframt
hefur verið stofnaður nýr sjóður, Hornsteinn-
inn, en hann er styrktarsjóður sem ætlað er
að styrkja stærri verkefni í þágu samfélagsins
og mun starfa við hlið Menningarsjóðs. Á
þessu má sjá að máli skiptir að hafa yfir að
ráða peningastofnun í eigu heimamanna, þar
sem góð afkoma er nýtt til ýmissa samfélags-
legra verkefna.“
Útibú og dótturfélög
SPM opnaði starfsstöð í Síðumúla 27 í
Reykjavík árið 2005, en þar er afgreiðsla sem
sinnir margskonar þjónustu fyrir viðskipta-
vini. Einnig var opnað útibú að Stillholti 18
á Akranesi árið 2006 vegna vaxandi umsvifa.
Sparisjóður Mýrasýslu á líka tvö dótturfélög,
Sparisjóð Siglufjarðar og Sparisjóð Ólafs-
fjarðar og er unnið markvisst að öflun nýrra
viðskiptavina, einkum á meðal fyrirtækja,
segir Steinunn Ásta að síðustu .
Steinunn Ásta Guðmundsdóttir er yfirmaður þjónustusviðs SPM og staðgengill sparisjóðsstjóra.
Mikilvægur hornsteinn í héraðinu
SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU:
Sparisjóður Mýrasýslu veitir
fjölbreytta þjónustu á sviði
fjármála og trygginga og
fékk frumkvöðlaverðlaun í
fyrra fyrir að vera
öflugur bakhjarl atvinnulífs
í heimabyggð og styðja við
nýsköpun á svæðinu.