Frjáls verslun - 01.05.2007, Síða 214
214 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
K
Y
N
N
IN
G
Krefjandi verkefni
Starfsfólk sem nær árangri
© 2007 KPMG hf., íslenski aðilinn að KPMG International, svissnesku samvinnufélagi. Öll réttindi áskilin.
KPMG hefur um árabil veri› lei›andi á marka›i endursko›unar-
fyrirtækja og fljónustar mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.
Sérhæfð þjónusta okkar á sviði endurskoðunar, skattamála og
ráðgjafar grundvallast á áreiðanleika, fagmennsku og öryggi.
KPMG b‡r yfir vel fljálfu›u starfsfólki sem er opi› fyrir
innlendum sem erlendum straumum flekkingar og byggir sitt
starf á a› hafa vi›skiptavininn í fyrirrúmi. Vi› leitumst vi› a›
vera a›la›andi vinnusta›ur og veitum fólki möguleika á a›
flróa hæfileika sína og flekkingu í samfélagi fagfólks.
kpmg.is
KPMG er alþjóðlegt net þekkingarfyrirtækja sem starfrækt er í 148 löndum. Starfsmenn hér á landi eru 215 og skiptist fyrirtækið í þrjú svið; endurskoðunarsvið, fyrirtækjasvið og
skattasvið.
,,Við leggjum áherslu á að vera fremst í flokki þekkingarfyrirtækja
á Íslandi og veita viðskiptavinum okkar lausnir í krafti sérfræðiþekk-
ingar okkar,“ segir Auður Ósk Þórisdóttir, forstöðumaður end-
urskoðunarsviðs. ,,Við erum með góða markaðshlutdeild, sérstaklega
þegar litið er til stærri fyrirtækja og upp á síðkastið höfum við verið
að efla þjónustuna við minni og meðalstór fyrirtæki. Þetta hefur
meðal annars endurspeglast í meiri sérhæfingu starfsfólks sem tekur
mið af þessum nýju verkefnum og áherslum.“
Auður Ósk segir að undanfarið hafi orðið miklar breytingar í
starfsumhverfi endurskoðenda og nefnir í því sambandi alþjóðlega
endurskoðunar- og reikningsskilastaðla sem starfsmenn KPMG hafi
tileinkað sér.
,,Á meðal þess sem er efst á baugi hjá KPMG er að kynna fyrir
viðskiptavinum breytingar á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum og
aðstoða þá við innleiðingu þeirra. Fleiri breytingar eru í farvatninu
sem hafa áhrif á starf endurskoðenda þessi misserin. Tilskipun frá
Evrópusambandinu um endurskoðendur mun til að mynda hafa
breytingar í för með sér en samkvæmt henni má sami endurskoðand-
inn ekki endurskoða sama fyrirtækið meira en sjö ár samfellt ef um
skráð félag er að ræða en eftir það verður hann að hverfa frá því í að
minnsta kosti tvö ár.“
Fjölbreytt starf Auður Ósk bendir á að endurskoðun sé spenn-
andi og fjölbreytt starf. ,,Endurskoðun, sem viðskiptafræðingar læra
í starfsnámi eins og hjá okkur, jafnast á við framhaldsmenntun.
Reynsla þeirra af störfum hjá KPMG tryggir þeim sterkan faglegan
grunn sem gerir þá verðmæta á vinnumarkaði. Það er mikilvægt að fá
gott starfsfólk og því leggjum við mikla áherslu á starfsmannamálin.
Endurskoðun er fjölbreytt starf með mikla þróunarmöguleika og
starfsmenn kynnast mismunandi fyrirtækjum og stjórnendum þeirra.
Þá má nefna alþjóðlega samvinnu KPMG sem aukabónus í starfinu
en þessi samvinna skapar möguleika til starfa erlendis um lengri eða
skemmri tíma.“
Auður Ósk útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla
Íslands árið 1987 og varð löggiltur endurskoðandi árið 1991. Hún
vann fyrstu árin hjá Endurskoðun hf. sem síðar varð KPMG. Hún
hóf störf hjá Olís árið 1995 þar sem hún var forstöðumaður upplýs-
ingasviðs í fjögur ár. Þá hóf hún störf hjá FBA sem innri endurskoð-
andi. Hún fór í framhaldi af því að vinna hjá einkabankaþjónustu
Íslandsbanka þegar sá banki sameinaðist FBA. Árið 2003 lá leiðin
svo aftur til KPMG.
Auður Ósk Þórisdóttir. ,,Við erum með góða markaðshlutdeild, sérstaklega þegar litið er til stærri fyrirtækja,
og upp á síðkastið höfum við verið að efla þjónustuna við minni og meðalstór fyrirtæki.“
KPMG:
Sérhæfðir starfsmenn
„Endurskoðun er
fjölbreytt starf með
mikla þróunarmögu-
leika og starfsmenn
kynnast mismun-
andi fyrirtækjum
og stjórnendum
þeirra.”