Frjáls verslun - 01.05.2007, Page 228
228 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 7
ÚR EINU Í ANNAÐ
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Jóna Theodóra Viðarsdóttir. „Hundurinn verður einn af fjölskyldunni og það
þarf að hugsa um hann sem slíkan.“
Jóna Theodóra Viðarsdóttir
hætti í febrúar störfum sem
skrifstofustjóri hjá stálinn-
flutningsfyrirtækinu Ferro
Zink hf. og er nú formaður
Hundaræktarfélag Íslands.
Þess má geta að hún hefur
setið í stjórn félagsins frá
árinu 1995.
Það var aldrei ætlunin að
fá sér hund en hún segir að
eiginmaður sinn og sonur
hafi ekki linnt látum fyrr en
þeir komu írsk-setter-hvolpi
inn á heimilið árið 1987
og þá hafi ekki verið aftur
snúið. Í dag eiga þau fjóra
hunda sömu tegundar. Þeir
heita Blaise, Red, Cara og
Alana. Jóna hefur áhuga á
að þjálfa hundana í veiði og
hefur hún lítillega fengist
við það með þokkalegum
árangri.
„Hundarnir sýna ómetan-
lega vináttu, traust og
þakklæti. Það er engu að
síður stór ákvörðun að fá
sér hund. Hundurinn verður
einn af fjölskyldunni og það
þarf að hugsa um hann sem
slíkan. Í hraða samfélagsins
er gott að geta átt vin sem
er alltaf til staðar. Hundum,
með sín ómótstæðilegu
hreinu og saklausu augu,
tekst á einhvern hátt að
laða fram allt það besta í
manninum. Ég er sannfærð
um að það sé hollt fyrir
börn og fullorðna á hvaða
aldri sem er að vera sam-
vistum við hunda eða önnur
gæludýr.“
Hundahald:
TRAUSTIR VINIR
Flug:
ÞARFASTI ÞJÓNNINN
„Ég fæddist með þennan vírus,“ segir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri
Saga Capital fjárfestingarbanka, um flug-
áhugann. „Ég byrjaði að fljúga svifflugum
14 ára gamall með foreldrabevís og ég
var kominn með einkaflugmannspróf 19
ára.“
Hann eignaðist fyrstu flugvélina þegar
hann var 27 ára og síðan þá hafa nokkrar
bæst í hópinn: „Ég hef keypt og selt vélar.
Mikið vill meira en ég vil alltaf kraftmeiri
flugvélar sem komast hærra og hraðar.“
Þegar Þorvaldur Lúðvík er spurður hvað
heilli hann mest við flugið segir hann: „Ég
slappa best af við stjórnvölinn. Þetta er
góð tilfinning.“ Hann neitar því ekki að
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson. „Ég hef keypt og selt vélar. Mikið vill meira en ég vil
alltaf kraftmeiri flugvélar sem komast hærra og hraðar.“
hann finni fyrir frelsistilfinningu.
Flugið er aðaláhugamálið. „Þetta er
dellan; ég hugsa um flugvélar, horfi á
flugvélar og fylgist með hvað er að ger-
ast í þessum geira.“
Þorvaldur Lúðvík flýgur ekki eingöngu
í frítíma sínum heldur líka í tengslum
við vinnuna. Hann er fluttur til Akureyrar
og flýgur reglulega á milli höfuðstaðar
Norðurlands og Reykjavíkur. Hann flýgur
líka til útlanda en þá er annar flugmaður
um borð. „Betur sjá augu en auga.“
Hann segir að flugvélin sé þarfasti
þjónninn.