Tímarit Máls og menningar - 01.04.1964, Blaðsíða 65
Bandarísk bylting II
herforingja, fjármálamanna og lög-
reglu var aldrei kosin af þjóðinni og
ber ekki ábyrgð gagnvart henni, enda
þótt hún taki allar ákvarðanir sem
ráða lífi þjóðarinnar.
Þessi blökk á völd sín að þakka
því, að Bandaríkin eru í raun og veru
bundin í báða skó innanlands jafnt
og utan. Innanlands eru þau sem
kapítaliskt land efnahagslega háð
hergagnaframleiðslunni og hafa ver-
ið það síðan í kreppunni miklu eftir
1930. k alþj óðavettvangi eru þau
upp á herinn komin um vernd gegn
byltingarhreyfingunni í heiminum,
sem nú er að rísa meðal hinna van-
þróuðu þjóða, og hafa verið upp á
hann komin síðan byltingin varð í
Kína 1949 og Kóreustyrjöldinni lauk.
Bandarikin hafa glatað þeim andlega
þrótti, sem er undirstaða friðsamlegr-
ar stjórnarstefnu.
Það er þessi ótti bandarísku þjóð-
arinnar við að horfast í augu við á-
standið eins og það er og bregðast af
einurð við vandanum, sem leggur
hlökkinni völdin í hendur. Ef ekki
hvíldi jafnmikil leynd og þögn yfir
starfi leynilögreglunnar og raun ber
vitni, væri auðveldara að taka upp
baráttuna gegn henni. Ódulbúinn
andstæðingur er betri en sá sem fer
með leynd. En ótti bandarísku þjóð-
arinnar við að lenda opinberlega í
árekstri við þessa blökk eykur blökk-
inni styrk.
Mest leynd hvílir yfir starfi CIA
(leyniþjónustu alríkisins), sem jafn-
vel þingmennirnir þora ekki að spyrja
neins. Samt hefur CIA vald til þess að
senda menn sína til annarra landa,
skipuleggja styrjaldir, byltingar eða
gagnbyltingar; hún hefur fjármagn
og liðsafla til þess að heyja leynilegt
stríð ekki einungis gegn Rússlandi,
heldur hvaða landi í heiminum sem
er.
FBI (leynilögreglan) er það lög-
regluvald sem nánust afskipti hefur af
lífi fólksins. A fjórða tug aldarinnar
naut FBI vinsælda sem verndari fólks-
ins gegn hverskonar glæpalýð, en nú
er starf FBI einkum fólgið í því að
njósna um stj órnmálaskoðanir og
einkalíf manna.
Það sem FBI gerir á laun gerir ó-
ameríska nefndin fyrir hálfopnum
tjöldum. Hún hefur vald til þess að
kalla fyrir sig hvaða mann eða hóp
manna sem er, sem berst virkri bar-
áttu gegn ríkjandi ástandi í landinu.
A þennan hátt kallar nefndin yfir
hvern þann sem hún yfirheyrir grun
og þögula fordæmingu sem hann get-
ur ekki losnað undan nema með einu
móti — hann verður að sanna holl-
ustu sína við lögregluríkið með því
að ljóstra upp um aðra.
Ef átakið sem bandaríska þjóðin
verður að gera til þess að geta mætt
vandamálum þessarar nýju aldar alls-
nægtanna væri ekki svona mikið,
mundi vald leynilögreglunnar heldur
ekki vera eins mikið og raun ber
55