Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 2
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 UTANRÍKISMÁL Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra sótti utanríkisráðherrafund Atlants- hafsbandalagsins sem lauk í gær. Fundurinn fór fram í borginni Antalya í Tyrklandi. Meðal þess sem rætt var á fundinum voru málefni Úkraínu, Afganistans og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Úkraínuráð bandalagsins ræddi um stöðu mála í Austur-Úkraínu og framkvæmd Minsk-samkomu- lagsins sem gengur meðal ann- ars út á flutning stórskotaliða frá víglínunni og stofnun vopn- lauss svæðis. Á fundinum ítrek- uðu bandalagsríkin stuðning sinn við úkraínsku þjóðina og hvöttu deiluaðila til þess að standa vörð um Minsk-samkomulagið. „Það er helsta haldreipi okkar og það þurfa allir að leggjast á eitt við að tryggja að því verði fylgt eftir,“ sagði Gunnar Bragi. Gunnar Bragi tilkynnti þar að auki þátttöku Íslands í stuðnings- sjóði við starfsmenntun her- og lögreglukvenna í Jórdaníu. Fundað var um breytingar á öryggisumhverfi Evrópu vegna aukinna hernaðarumsvifa Rússa sem og öfgahópa í Miðausturlönd- um og Norður-Afríku. Vel gengur að þróa viðbúnaðaráætlun banda- lagsins og mun þeirri vinnu ljúka að mestu á næsta ári. „Það er mikilvægt að bandalag- ið fylgist vel með þróun mála, þar með talið á Norður-Atlantshafinu og norðurslóðum, til að tryggja friðsamlega þróun svæðisins,“ sagði Gunnar Bragi. - þea Gunnar Bragi Sveinsson og aðrir utanríkisráðherrar ríkja Atlantshafsbandalagsins funduðu í Tyrklandi: Funda um breytt öryggisumhverfi Evrópu BREYTT ÖRYGGISUMHVERFI Gunnar Bragi Sveinsson fundaði í Tyrklandi með utanríkisráðherrum Atlantshafs- bandalagsríkja. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VEÐUR Hvessir heldur og bætir í rigningu í dag, einkum þó suðaustan til. Áfram milt veður og gæti hiti náð 13 stigum á Norðurlandi. 5° 9° 8° 7° 7° 8 4 5 13 7 SJÁ SÍÐU 22 Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Niðurfellanleg hliðarborð VELDU GRILL SEM EN DAST OG ÞÚ SPARA R Opið til kl. 16 á laugardag PTS SVEITARFÉLÖG Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á þriðjudag að styrka æskulýðsstarf þeirra tveggja sókn- arkirkna sem heyra undir þjóðkirkj- una í sveitarfélaginu um samtals 16,5 milljónir króna á þremur árum. Gunnar Einarsson bæjarstjóri seg- ist ekki óttast athugasemdir við að verið sé að styrkja starfsemi trú- félags með fé úr bæjarsjóði. „Nei, við erum að styrkja marg- víslegt starf hjá öllum félögum. Við erum til dæmis að styrkja Klifið sem skipuleggur vísinda- og tóm- stundastarf fyrir ungt fólk. Þann- ig að við styrkjum margt sem eflir barna- og unglingastarf almennt og erum ekki að velta fyrir okkur hvort það sé kirkjan eða ekki,“ svar- ar bæjarstjórinn. Að sögn Gunnars eru mörg ár síðan Garðabær gerði fyrst samning við Garðasókn um æskulýðsstarfið. Nú hafi Bessastaðasókn bæst við eftir að Garðabær og Álftanes sam- einuðust. Um leið og styrkirnir til Garðasóknar og Bessastaðasóknar voru samþykktir ákvað bæjaráð sex milljóna króna árlegt framlag til Hestamannafélagsins Spretts, sjö hundruð þúsund króna árlegt fram- lag til Hestamannafélagsins Sóta og sex hundruð þúsund króna árlegt framlagt til Taflfélags Garðabæjar. „Við höfum horft á þetta þannig að þessi félög, alveg sama hvað þau heita og hvað þau gera, séu ákveð- ið lím í samfélaginu og höfum tekið meðvitaða ákvörðun um það að styrkja félög almennt vel og hvetja þau áfram,“ segir Gunnar. „Því fleiri félög og meiri starfsemi hjá þessum félögum því öflugra er lýðræðið og samkenndin í sveitar- félaginu og félagsauðurinn eykst. Í fræðunum er talað um að því öfl- ugri sem félagsauður hvers samfé- lags er því meira traust ríki milli íbúanna og því meira traust á yfir- völdum líka.“ Starfsmaður á biskupsstofu kveðst aðeins vita um eitt annað sveitarfélag á landinu sem styrkir æskulýðsstarf í þjóðkirkjunni með fjárframlögum. Það sé Seltjarnar- nes. Framlag bæjarins til barna- og unglingastarfs Seltjarnarneskirkju er fjórar milljónir króna á þessu ári. Í samningum um styrkina við æskulýðsfélög í Garðasókn og Bessastaðasókn er kveðið á um árlegar greiðslur til þriggja ára og skyldur sóknanna. Til dæmis eiga þær að efla barna- og unglingastarf í formi sunnudagaskóla, efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í bænum og annast fræðsluverkefni fyrir börn og ung- menni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf, lífsleikni og siðfræði. „Bæjarfélagið hefur sem betur fer séð sér fært að styrkja æsku- lýðsstarf hjá honum ýmsu félögum í bænum, meðal annars hér og fyrir það erum við þakklát,“ segir Magn- ús E. Kristjánsson, formaður sókn- arnefndar Garðasóknar. gar@frettabladid.is Kirkjan fær milljónir úr sjóði Garðabæjar Þjóðkirkjusóknirnar tvær í Garðabæ fá samtals 16,5 milljónir króna úr bæjarsjóði á næstu þremur árum til að efla sunnudagaskóla og annað æskulýðsstarf. Slíkir styrkir hafa verið veittir áður. Bæjarstjóri segir stefnuna þá að efla allt félagastarf. VÍDALÍNS- KIRKJA Formaður sóknarnefnd- ar Garða- sóknar segir bæjaryfirvöld fá ítarlegar upplýsingar um hvernig styrkfé úr bæjarsjóði er varið. FRÉTTA- BLAÐIÐ/RÓSA Í fræð- unum er talað um að því öflugri sem félags- auður hvers samfélags er því meira traust ríki milli íbúanna og því meira traust á yfirvöldum líka. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar FILIPPSEYJAR Eldur í skóverksmiðju í borginni Valenzuela á Filipps- eyjum varð 72 að bana á miðvikudag. Nærri öll fórnarlömb eldsvoð- ans voru föst á annarri hæð verksmiðjunnar í brunanum, þar sem þau gátu ekki komist út því stálrimlar voru fyrir gluggunum. Borgaryfirvöld segja eldinn hafa kviknað út frá logsuðutæki þegar starfsmaður var að logsjóða nálægt eldfimum efnum. Laun starfsmanna verksmiðjunnar voru vel undir lágmarkslaunum, þeir unnu innan um eldfim spilliefni og höfðu ekki fengið neina við- bragðsþjálfun ef eldur skyldi koma upp. Starfsmenn fyrirtækisins fengu margir hverjir laun sem samsvara 876 krónum á dag en lágmarkslaun í landinu eru um 1.405 krónur á dag. - þea Harmleikur við slæmar vinnuaðstæður í Filippseyjum: Verksmiðjubruni 72 að bana SLÆMAR VINNUAÐSTÆÐUR Verkamenn á Filippseyjum brunnu inni vegna stál- rimla sem voru fyrir gluggum. NORDICPHOTOS/AFP SAMFÉLAG Ríkisendurskoðun hvet- ur velferðarráðuneytið til að bæta miðlun upplýsinga um rekstur og starfsemi hjúkrunarheimila sem hún segir ábótavant. Árið 2012 birti Ríkisendurskoðun skýrslu um rekstur og starfsemi hjúkrun- arheimila á árunum 2008-2010. Í skýrslunni var bent á að vel- ferðarráðuneytið safnaði ítarlegum gögnum um rekstur og starfsemi hjúkrunarheimila en þau væru ekki aðgengileg nema fáum. Ríkis- endurskoðun hvatti ráðuneytið til að bæta úr þessu enda væri mikil- vægt að unnar væru aðgengilegar upplýsingar úr gögnunum og þær birtar á heimasíðu ráðuneytisins. Nú þremur árum síðar hefur upp- lýsingamiðlun um rekstur og starf- semi hjúkrunarheimila lítið breyst samkvæmt mati Ríkisendurskoð- unar. Stofnunin ítrekar þess vegna ábendingu sína frá 2012 en þó með örlítið breyttu sniði því verk- efni hafi flust til Sjúkratrygg- inga Íslands. Ríkisendurskoðun minnir á að þótt svo sé, þá sé það eftir sem áður á ábyrgð ráðuneyt- isins að fylgja því eftir að stofn- unin birti og uppfæri nauðsynleg- ar upplýsingar reglulega. Birting upplýsinga um fjölda hjúkrunar-, dvalar- og dagdvalarrýma dugir ekki til í því sambandi. -kbg Lítil þróun frá árinu 2012 þrátt fyrir ábendingar Ríkisendurskoðunar: Velferðarráðuneyti taki sig á ÁBENDING ÍTREKUÐ Upp- lýsingum um rekstur og starf- semi hjúkrunar- heimila er ekki miðlað af vel- ferðarráðuneyti eins og skyldi. SAMFÉLAG Gunnar Bragi Sveins- son utanríkisráðherra vígði í gær nýja íslenska vefsíðu, heforshe. is, með því að gerast mánaðar- legur styrktaraðili UN Women á Íslandi. Heimasíðan er nýtt átak UN Women sem heitir HeForShe eða Ólík ir en sammála um kynja- jafn rétti. Átakið miðar að því að ná til þeirra átta þúsund og fimm hundruð karl manna og stráka á Íslandi sem skráðu sig í alþjóð- lega átak inu síðastliðið haust, og til annarra. - ngy Nýtt átak hjá UN Women: Ráðherra berst fyrir jafnrétti VATÍKANIÐ Fulltrúar innan Vat- íkansins tilkynntu síðastliðinn miðvikudag að Vatíkanið hygðist skrifa undir samstarfssamning við Palestínu sem felur í sér við- urkenningu á sjálfstæði Palest- ínu. „Vatíkanið er ekki bara ríki. Vatíkanið er fulltrúi hundraða milljóna kristina manna, auk Pal- estínubúa. Þetta hefur afar stórt siðferðislegt vægi,“ sagði Husam Zomlot, fulltrúi palestínskra stjórnvalda. Ísraelsstjórn hefur fordæmt viðurkenninguna. - srs Ísraelar fordæma Vatíkanið: Páfi viðurkennir Palestínuríki 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 F -8 6 D C 1 6 3 F -8 5 A 0 1 6 3 F -8 4 6 4 1 6 3 F -8 3 2 8 2 8 0 X 4 0 0 1 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.