Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 16
15. maí 2015 FÖSTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is ef keypt eru 10 stk. – annars 50 kr. stk. 40 Veldu einhverja 10 ávexti á ávaxtamarkaði Krónunnar og þú borgar... Undirskriftasöfnunin „þjóðareign.is“ hefur tekist öllum vonum framar. Á þrem- ur dögum skrifuðu meira en tíu prósent atkvæðisbærra Íslendinga undir áskor- un til forseta Íslands um að þjóðin fengi að eiga síðasta orðið um hvort ráðstafa eigi fiskveiði auðlindinni til lengri tíma en eins árs áður en ákvæði um eignarhald þjóðarinnar á auðlindinni er komið í inn í stjórnar skrá. Engin önnur undirskriftasöfnun hefur vakið jafn sterk viðbrögð hjá almenningi og undirskriftasöfnunin „þjóðareign.is“. Það ber fyrst og fremst vott um að almenningi er nóg boðið og vill hafa meira um það að segja hvernig þjóðareignum er ráðstafað. Ef marka má síðustu upphrópanir í fjöl- miðlum þar sem reynt er að gera lítið úr hinum stórkostlega árangri sem undir- skriftasöfnunin hefur náð þá mætti ætla að það væri á einhvern hátt betra að ná 30 þús- und undirskriftum á þremur vikum heldur en þremur dögum! Margir taka undir Með sama framhaldi og var fyrstu daga undirskriftasöfnunarinnar hefði einfald- lega orðið skortur á kjósendum til að skrifa undir áskorunina. Þannig var það ljóst frá fyrsta degi að hægja myndi á undirskrift- um frá því sem var fyrstu dagana. Þetta vissum við sem að undirskriftasöfnuninni stöndum og gerðum ráð fyrir alla tíð. Eins og gefur að skilja þá samsama sig margir einstaklingar og samtök málefni „þjóðareignar.is“ og hafa lýst yfir stuðn- ingi við söfnunina. Aðeins þeir einstakling- ar sem upp eru taldir á heimasíðu „þjóðar- eignar.is“ standa hins vegar að söfnuninni og engir aðrir geta talað í nafni hennar. Að undirskriftasöfnuninni standa ein- staklingar sem hvorki hafa fjölmenn sam- tök né ríkt bakland sem getur látið mikla fjármuni af hendi rakna til auglýsinga. Hvatning til þátttöku hefur eingöngu farið fram í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlunum og það hefur skilað okkur hinni glæsilegu útkomu undirskrifta sem söfnunin stendur núna í. Höfundur er einn aðstandenda undirskrifta söfnunarinnar „þjóðareign.is“. Ótrúlegur árangur á þremur dögum AUÐLINDIR Bolli Héðinsson hagfræðingur ➜ Það ber fyrst og fremst vott um að almenningi er nóg boðið og vill hafa meira um það að segja hvernig þjóðareignum er ráðstafað. Samráð fyrir suma Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi mennta- málaráðherra, hefur barmað sér yfir þeirri ákvörðun Illuga Gunnarssonar, núverandi menntamálaráðherra, að hefja umræður við framhaldsskóla í landinu um sameiningu skólanna. Sérstaklega þykir henni samráðsleysi Illuga honum til lasts. Pawel Bartoszek, pistlahöfundur, vekur athygli á þessu á Facebook-síðu sinni og bendir á að ráðherrann fyrrverandi sem kveinar „samráðsleysi!“ er sami ráðherra og tilkynnti Verzlunarskólanum bréfleiðis að hann væri orðinn að hverfisskóla fyrir Háaleiti. Mjúku línurnar „Ég held að í raun séum við öll náttúruverndarsinn- ar. Það er bara þannig. Við verðum auðvitað að finna þá mjúku línu um hvar við ætlum að virkja og hvar ekki,“ sagði Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins til að freista þess að sefa þingmenn stjórnarandstöðunnar í umræðu um rammaáætlun. Það gekk ekki betur en svo að þingmað- urinn Róbert Marshall sem mætti léttbrýnn í pontu. „Að koma hingað upp og halda því fram að þú sért einhver náttúruverndarsinni er þvílíkt öfugmæli að ég hef aldrei heyrt annað eins. Hvað ætlarðu að segja næst? Að þú sért fordómalaus mann- vinur? Femínisti ef til vill? Kanntu annan?“ „Ósegsí“ afturhald Áhugaverð umræða spratt upp á Twitter-síðu Árna Grétars Finnssonar, fyrrverandi formanns Ungra sjálfstæðis- manna í Hafnarfirði, þar sem nafn- togaðir ungliðar flokksins velta fyrir sér hvort stofna eigi nýjan frjálslyndan flokk þar sem Sjálfstæðisflokkurinn og aðrir flokkar sem kenna sig við frjálslyndi eru of afturhaldssamir. „Afturhald er ósegsí,“ sagði Þórdís Kolbrún Gylfa- dóttir, aðstoðarkona innanríkis ráðherra, „Frjálslynt hægri og borgaraleg réttindi eru segsí.“ Gísli Marteinn Baldursson blandaði sér í umræðuna þar sem kallað var eftir formennsku hans í nýja flokknum og var handviss um að flokkurinn nýi gæti náð fleiri en tólf þingmönnum og skellt sér beint í ríkisstjórn. stefanrafn@frettabladid.is Í slendingar guma gjarnan af því að standa framar flestum öðrum þjóðum þegar kemur að samfélagsgerð. Vissulega gagnrýna margir ýmislegt sem betur má fara, en heilt yfir virðist sú skoðun ríkjandi að samfélagsgerðin okkar sé ein sú besta í heimi; besta ef við erum að tala við útlendinga. Hrunið dró aðeins úr mesta þjóðrembingnum og eftirmálar þess einnig. Það er erfitt að loka augunum fyrir því að á sumum sviðum séum við eftirbátar annarra þjóða þegar fjölskyldur yfirgefa landið í stríðum straumum í leit að betra lífi í öðrum löndum. Glöggt er gests augað, segir einhvers staðar, og þó okkur Íslendingum hætti til að taka aðeins mark á jákvæðri gagn- rýni gestanna okkar, og fyrtast við ef þeir gera sér ekki grein fyrir snilldinni sem landið er, höfum við vonandi lært að hlusta á þá neikvæðu líka. Birgir Jakobsson landlæknir hefur dvalið langdvölum fjarri landinu ísa, en er nú í þeirri stöðu að geta metið heilbrigðiskerfið okkar betur en flestir aðrir. Birgir er í viðtali í Fréttablaðinu í dag og þar kemur ýmislegt athyglisvert fram. „Ef ég lít á heilbrigðisþjónustuna eins og hún er í dag og áður en ég fór út árið 1978, þá eru raunveruleg vandamál heil- brigðisþjónustunnar hin sömu og þá. Við notuðum ekki einu sinni góðærið til að bæta lestina í íslenskri heilbrigðisþjónustu og gera hana eins góða og mögulegt er. Það er ekki skrítið að þar sem voru brestir fyrir kreppu eru enn áþreifanlegri brestir eftir kreppu,“ segir landlæknir. Þetta grefur undan rökum þeirra sem hafa skrifað allt sem að heilbrigðiskerfinu má finna á blessað hrunið. Staðreyndin virðist vera sú að kerfið hefur verið fjársvelt árum og ára- tugum saman. Kerfið sem kemur okkur í þennan heim, lagar okkur og börn okkar þegar á þarf að halda og í einhverjum tilfellum fylgir okkur síðasta spölinn. Uppsveifla, niðursveifla eða algjört hrun efnahagslífsins hefur ekkert haft með það að gera að ekki er hægt að koma kerfinu í sómasamlegt horf. Að einhverju leyti skrifast það á stefnuleysi. Mörg undan- farin ár hafa ráðamenn verið volgir fyrir aukinni einkavæð- ingu í heilbrigðiskerfinu. Það hefur hins vegar enginn þorað að sýna þá djörfung að boða einkavæðinguna, frekar hefur þanþol tungumálsins verið reynt með alls kyns frösum um aukinn einkarekstur eða annað álíka. Vilji menn opna á að einkaaðilar fái aðgang að heila gillemojinu er kannski bara best að segja það hreint út og þá er hægt að laga sig að því. Það gengur nefnilega ekki lengur að láta kerfið drabbast niður. Gildir þá einu hvort það er gert með það í huga að niður- drabbað kerfi sé betri rök fyrir aukinni einkavæðingu eða ekki. Ef ekkert verður að gert ættum við að hætta að sproksetja þá sem finna að íslensku samfélagi og taka frekar undir með Megasi: „Við minnumst Ingólfs Arnarssonar í veislum, en óskum þess að skipið hans það hefði sokkið.“ Heilbrigðiskerfið hefur verið trassað í áratugi: Óheilbrigð sýn á heilbrigðiskerfið 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 F -9 A 9 C 1 6 3 F -9 9 6 0 1 6 3 F -9 8 2 4 1 6 3 F -9 6 E 8 2 8 0 X 4 0 0 2 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.