Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 54
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Íslenska óperan auglýsir áheyrnarprufur fyrir Kór Íslensku óperunnar. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi stundað söngnám á framhaldsstigi og hafi reynslu af kórsöng. Lögð er áhersla á færni í nótnalestri. Sviðsreynsla er æskileg. Áheyrnarprufurnar fara fram 1. og 2. júní í Eldborg í Hörpu. Umsækjendur syngi aríu eða einsöngslag að eigin vali, auk þess sem prófað verður í undirbúnum nótnalestri og söng af blaði. Píanóleikari verður á staðnum. Umsækjendur tilkynni þátttöku á netfangið opera@opera.is fyrir 25. maí. Upplýsingar um náms- og starfsferil fylgi ásamt upplýsingum um hvað viðkomandi hyggst syngja. ÁHEYRNARPRUFUR Í KÓR ÍSLENSKU ÓPERUNNAR Umhverfis- og skipulagssvið Auglýsing á sértækum starfs- leyfisskilyrðum fyrir Lýsi hf. Með vísan til 24. gr. reglugerðar nr. 785/1999 um starfsleyfi fyrir atvinnurekstur sem getur haft í för með sér mengun eða mengandi starfsemi, mun tillaga að sértækum starfs- leyfisskilyrðum fyrir neðangreint fyrirtæki liggja frammi hjá Þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, 1. hæð, frá 15. maí til 15. júní 2015. Rétt til að gera athugasemdir hafa eftirtaldir aðilar: 1. Sá sem sótt hefur um starfsleyfi svo og forsvarsmenn og starfsmenn tengdrar eða nálægrar starfsemi. 2. Íbúar þess svæðis sem ætla má að geti orðið fyrir óþægindum vegna mengunar. 3. Opinberir aðilar, félög og aðrir þeir sem málið varðar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og sendast Heil- brigðiseftirliti Reykjavíkur, Umhverfis- og skipulagssviði, Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, í síðasta lagi 15. júní 2015. Reykjavíkurborg, Umhverfis- og skipulagssvið Borgartún 12-14, 105 Reykjavík sími 411 1111 Fyrirtæki/gildistími starfsleyfis í árum Almenn skilyrði Sértæk skilyrði Reglugerð 785/1999 Staðsetning Lýsi hf. X X X Fiskislóð 5-9 Listamaðurinn Sturla Atlas steig fram í sjónarsviðið í gær, þegar hann sendi frá sér nýtt lag og sitt fyrsta myndband. Hægt er að halda því fram að greina hafi mátt ákveðna undiröldu í tiltek- inni kreðsu íslensks tónlistarlífs undanfarnar vikur; listamaður- inn hefur verið áberandi en á sama tíma hvílt leynd yfir hans verkum. „Ég vaknaði einn morguninn og fattaði að ég væri bara til í þetta. Ég ætti þetta inni. Svo var hóað í bransalið og „lockdown“ í stúdíóinu. Úr varð platan Love Hurts sem kemur 4. júní,“ segir Sigurbjartur Sturla Atlason, sem kallar sig Sturla Atlas í samtali við Fréttablaðið. Sturla er ann- ars mjög fámáll og vill lítið ræða áform sín. Hann mun troða upp á nokkrum tónleikum í sumar, þar á meðal á tónlistarhátíðinni Secret Solstice sem haldin verður í Laug- ardalnum 19.-21. júní. Lagið sem kom út í gær ber tit- ilinn Over here og í myndband- inu má sjá tónlistarmanninn Loga Pedro Stefánsson, rapparann Emmsjé Gauta og fleiri. Logi syng- ur í nýja laginu og hefur komið fram opinberlega með Sturlu Atlas. Dulúðin sem umlykur Sturlu Atlas er athyglisverð. Bolir með andliti listamannsins voru komn- ir í umferð þegar hann var búinn að gefa út einungis eitt lag. Í gær var til að mynda ein gínan í glugga verslunarinnar Jör klædd í slíkan bol. Sturla Atlas og hljómsveit- in Young Karin sáu um að veita efni á SnapChat-reikning Nova í gær. Hátt í fjörutíu þúsund manns fylgja Nova á SnapChat og var gerður góður rómur að frammi- stöðu listamannsins þar í gær. Hún jók líklega á eftirvæntinguna og eftirspurnina fyrir nýja laginu og myndbandinu sem vakti mikla athygli á netmiðlum í gær, eftir að það kom út klukkan 15. kjartanatli@frettabladid.is Leyndardómsfullur listamaður stígur fram Söngvarinn Sturla Atlas sendi frá sér sitt fyrsta myndband í gær. Hann hefur vakið athygli en er samt sveipaður dulúð. Stefnir á að gefa út plötu í sumar. „Þetta er í annað sinn sem við höld- um hátíðina, þetta gekk mjög vel í fyrra þannig að við erum spennt- ir,“ segir Bjarni Bjarnason, einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, Sumargleðinnar. Um er að ræða hátíð fyrir öll ungmenni í 8.–10. bekk í grunnskóla sem fram fer í Kaplakrika þann 11. júní næstkom- andi. Bjarni og Grímur Óli Geirsson mynda viðburðafyrirtækið Basic House Effect, sem stendur á bak við hátíðina. Þar koma fram margir af vinsæl- ustu tónlistarmönnum þjóðarinnar eins og Friðrik Dór, AmabAdamA, Jón Jónsson og margir fleiri. „Miða- salan fór af stað síðastliðinn föstu- dag og nú er svipaður miðafjöldi farinn og seldist í fyrra þannig að hátíðin er að stækka heilmikið sem er frábært,“ segir Bjarni. Skipuleggjendur hátíðarinnar leggja mikið upp úr öryggi ungling- anna á hátíðinni. „Við leggjum mikið upp úr öryggi unglinganna, það er númer eitt, tvö og þrjú. Við erum auðvitað að vinna þetta í samstarfi við félagsmiðstöðvarnar í Hafn- arfirði og fleiri aðila.“ Hátíðin er skipulögð í samstarfi við forvarnar- fulltrúa, þaulreynda öryggisgæslu, íþróttafélagið FH, lögreglu og fleiri aðila til að tryggja sem mest öryggi. „Foreldrar hafa haft samband við okkur og við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð,“ segir Bjarni. Miðasalan rennur óskert til Barnaspítala Hringsins. - glp Einstök upplifun fyrir unglinga Tónlistarhátíðin Sumargleðin er fyrir unglinga í 8.-10. bekk þar sem margir af vin- sælustu tónlistarmönnum koma fram. Mikið er lagt upp úr öryggi á hátíðinni. SKIPLEGGJENDUR Bjarni Bjarnason og Grímur Óli Geirsson mynda viðburðafyr- irtækið Basic House Effect sem stendur á bak við Sumargleðina. MYND/GEIR ÓLAFSSON Spilarar EVE Online tölvuleiks CCP hafa safnað 68.340 Bandaríkjadoll- urum, eða rúmlega 8,9 milljónum íslenskra króna, í neyðaraðstoð fyrir fórnarlömb jarðskjálftans í Nepal frá því söfnun meðal þeirra hófst um síðustu mánaðamót. Söfnunin fer alfarið fram í leikn- um sjálfum og lýkur á miðnætti þann 24. maí. Söfnunarféð rennur óskipt til Rauða krossins á Íslandi, sem nú stendur fyrir víðtækri söfn- un fyrir hjálparstarfi í Nepal. „Við höfum fylgst með eyðilegg- ingunni og hörmungunum sem dunið hafa yfir Nepal í kjölfar jarð- skjálftanna, og bæði við og spilarar EVE Online vildum reyna gera eitt- hvað til að hjálpa. Við erum auðvitað afskaplega ánægð með að geta tekið þátt í að styðja við gríðarlega mikil- vægt hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu,“ segir Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP. Söfnunin fer þannig fram að spilarar EVE Online geta látið fé af hendi rakna til hjálparstafsins í Nepal með gjaldmiðlinum PLEX (Pilot Licence Extension), sem er annar af tveim gjaldmiðlum EVE heimsins sem spilarar leiksins nota. Raunvirði hvers PLEX er um 15 Bandaríkjadollarar og sér CCP um að koma því fé sem spilarar leiks- ins safna yfir í Bandaríkjadollara og síðan til Rauða krossins á Íslandi, sem stendur fyrir neyðaraðstoð í Nepal og styður alþjóðlegt hjálpar- starf á svæðinu. Þetta er í sjötta sinn sem CCP, í samstarfi við spilara EVE Online, ýtir úr vör söfnunarátaki til mann- úðarmála undir slagorðinu PLEX for Good. - glp Hafa safnað tæpum 9 milljónum Spilarar EVE online hafa safnað miklu fé sem fer í neyðaraðstoð í Nepal. GÓÐVERK Eldar Ástþórsson, upplýsinga- fulltrúi CCP, er ánægður með að geta tekið þátt í að styðja við hjálparstarf Rauða krossins á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SVEIPAÐUR DULÚÐ Söngvarinn Sturla Atlas hefur vakið mikla athygli en hann var að senda frá sér sitt fyrsta lag og ber það titilinn Over Here. Ég vaknaði einn morguninn og fattaði að ég væri bara til í þetta. Ég ætti þetta inni. Svo var hóað í bransalið og „lockdown“ í stúdíóinu. Úr varð platan Love Hurts sem kemur 4. júní. „Lagið Over Here með Sturla Atlas er það eina sem fólk á að hlusta á um helgina.“ Unnur Eggertsdóttir tónlistarkona. FÖSTUDAGSLAGIÐ 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 3 F -A 4 7 C 1 6 3 F -A 3 4 0 1 6 3 F -A 2 0 4 1 6 3 F -A 0 C 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.