Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 4
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 Það er ótrúlegasta fólk búið að vera óska mér til hamingju. Fólk sem ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að fylgdist með handbolta Lovísa Thompson handboltastjarna LÖGREGLUMÁL Lögregla vill beina því til landsmanna að skilja ekki eftir verðmæti í bílum og hika ekki við að hafa samband við lög- reglu ef menn verða varir við grunsamlegar mannaferðir. Sér- staklega á þeim tímum þegar fólk ætti að vera í fastasvefni. Samkvæmt upplýsingum frá aðalvarðstjóra lögreglunnar í Kópavogi gengur nú yfir hrina af innbrotum í bíla þar sem verð- mæti eru tekin ófrjálsri hendi. Lögregla segir það alvanalegt að innbrot komi í tímabilum og að eitt slíkt tímabil sé í gangi núna. - nej, vh Varað við bílainnbrotum: Brotist inn í bíla INNBROTAHRINA Töluvert hefur verið um innbrot í bíla undanfarið. NORDICPHOTOS/GETTY KJARAMÁL Formaður Starfsgreina- sambandsins sakar Má Guðmunds- son seðlabankastjóra um hræðslu- áróður og segir fátt geta komið í veg fyrir verkfallsaðgerðir í næstu viku. Hún segir útilokað að fallast á sáttatilboð Samtaka atvinnulífsins. Már Guðmundsson seðlabanka- stjóri sagði í fréttum Stöðvar tvö á sunnudag að miklar launahækk- anir muni hafa slæm áhrif á vinnu- markaðinn og jafnvel leiða til auk- ins atvinnuleysis. Samtök atvinnulífsins lögðu í síð- ustu viku fram sáttatilboð í deilu þeirra við Starfsgreinasambandið en þeir segja að tilboðið feli í sér 23,5 prósenta hækkun dagvinnu- launa á samningstímanum. Starfsgreinasambandið hefur gagnrýnt þessa útreikninga og Drífa Snædal framkvæmdastjóri sambandsins sakaði SA um blekk- ingar í samtali við Fréttablaðið í síð- ustu viku. Björn Snæbjörnsson, for- maður sambandsins, tekur í sama streng og segir útilokað að fallast á þetta tilboð. „Þetta er þriggja ára samning- ur sem gerir ráð fyrir 30 þúsund króna hækkun. Svo áttu að fara að kaupa yfirvinnu og lengingu á dag- vinnu til þess að fá einhver átta pró- sent þannig að þetta er ekki allt gull sem glóir þó það sé hægt að finna einhverja háa prósentutölu,“ segir Björn. Næstu verkfallsaðgerðir Starfs- greinasambandsins hefjast á þriðju- dag í næstu viku og standa í tvo daga. Boðað hefur verið til sátta- fundar á mánudag en Björn segir fátt benda til þess að hægt verði að koma í veg fyrir verkföll. Björn sakar seðlabankastjóra um hræðslu- áróður. „Þetta er að hluta til bara hræðsluáróður. Það er verið að reyna að hræða okkur. Ég hef ekki heyrt hann tala um þetta í tengslum við það sem aðrir hafa verið að fá og menn voru búnir að búa til ákveðna launastefnu áður en við fórum af stað,“ segir Björn. -hks, kbg Formaður SGS sakar seðlabankastjóra um hræðsluáróður: Fátt kemur í veg fyrir verkfall Þetta er að hluta til bara hræðslu- áróður. Það er verið að reyna að hræða okkur. Ég hef ekki heyrt hann tala um þetta í tengslum við það sem aðrir hafa verið að fá. Björn Snæbjörnsson SPURNING DAGSINS Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR SAMFÉLAG „Þetta var ný og skemmtileg tilfinning sem ég hef aldrei upplifað áður. Ég var bara í sjokki eiginlega,“ segir hin fimmtán ára gamla Lovísa Thompson sem tryggði Gróttu fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna. ,,Síðustu dagar eftir leikinn hafa bara einkennst af hamingju- óskum og faðmlögum,“ segir Lov- ísa. ,,Það er ótrúlegasta fólk búið að vera óska mér til hamingju. Fólk sem ég hafði ekki einu sinni hugmynd um að fylgdist með handbolta,“ segir Lovísa en hún skoraði sigurmarkið þegar tvær sekúndur voru til leiksloka í leik gegn Stjörnunni síðastliðinn þriðjudag. Leiknum lauk 24:23. Þegar nítján sekúndur voru til leiksloka og staðan jöfn var Grótta með boltann og Kári Garð- arsson, þjálfari Gróttu, stillti upp í kerfi fyrir hina fimmtán ára gömlu Lovísu. Lovísa skoraði úr færinu við mikinn fögnuð Sel- tirninga. Lovísa er talin gríðarlega efni- leg og er hún yngsti leikmaður liðsins. Tuttugu og tveggja ára aldurs munur er á henni og elsta leikmanni liðsins. „Ég hef spilað handbolta í sex ár eða síðan ég var tíu ára gömul,“ segir Lovísa sem hefur alla tíð spilað með Gróttu. Lovísa segist hafa verið mikill Gróttu- unnandi frá því hún var smá- stelpa. Grótta vann þrjá stærstu titla tímabilsins því liðið varð einnig deildarmeistari og bikarmeist- ari. „Ég hafði tröllatrú á því að við myndum verða Íslandsmeist- arar. Það var búið að vera mark- mið hjá mér síðan við urðum bik- armeistarar í febrúar. Þá fattaði ég í rauninni hvað við værum góðar,“ segir Lovísa. Lovísa er að klára tíunda bekk í Valhúsaskóla og sér framtíðina bjarta fyrir sér. Hún segist ætla að halda áfram í handbolta af fullum krafti. „Markmiðið er að verða ennþá betri.“ Lovísa ætlar í menntaskóla í haust en hefur ekki ákveðið hvaða skóli verður fyrir valinu. „Ég er alveg í pæla í nokkrum skólum og finnst líklegt að ég sæki um í Verzló,“ segir Lov- ísa og bætir við að í framtíðinni langi hana að læra næringar- fræði eða íþróttafræði. Lovísa eyðir miklum tíma í íþróttahúsi Gróttu þar sem hún æfir mikið sjálf. Auk þess er hún handboltaþjálfari og þjálf- ar yngri krakka. „Ég er að þjálfa stelpur í fyrsta og öðrum bekk og stráka í þriðja og fjórða bekk sem mér finnst mjög gaman,“ segir Lovísa. Lovísa fór eftir sigurleik- inn, ásamt liðsfélögum sínum, á Eiðis torg þar sem stuðnings- menn tóku fagnandi á móti þeim. „Við áttum þar mjög góða stund en ég fór snemma heim eða fyrr en aðrir, því ég var svo svakalega þreytt eftir leikinn,“ segir Lov- ísa sem fór heim og fékk sér vel verðskuldað páskaegg. „Ég var í hálfgerðu nammibindindi fyrir leikinn og ætlaði ekki að borða neitt nammi fyrr en við yrðum Íslandsmeistarar,“ segir Lovísa og flissar. nadine@frettabladid.is Fimmtán ára handboltastjarna Hin unga Lovísa Thompson tryggði Gróttu fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna. Hún skoraði sigurmarkið þegar tvær sekúndur voru til leiksloka. Lovísa hefur spilað handbolta frá því hún var tíu ára. YNGSTI LEIKMAÐUR GRÓTTU Lovísa Thompson er talin efnileg, tuttugu og tveggja ára aldursmunur er á henni og elsta leik- manni liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BÚRÚNDÍ Hermenn hliðholl- ir Pierre Nkurunziza, forseta Búrúndí, segjast nú vera búnir að tryggja öryggi lykilsvæða í Bujumbura, höfuðborg Búrúndí. Mótmæli hafa staðið yfir frá því að forsetinn sagðist ætla að sækj- ast eftir endurkjöri 26. apríl síð- astliðinn. Ef hann nær endurkjöri yrði það hans þriðja kjörtímabil en andstæðingar hans hafa gagnrýnt forsetann og sagt það stríða gegn stjórnarskrá landsins. Síðastliðinn miðvikudag urðu mótmælin að óeirðum þegar hers- höfðinginn Godefroid Niyomb- are tilkynnti að hans menn höfðu framið valdarán í höfuðborginni. Á meðan var forsetinn á brott á ráð- stefnu í Tansaníu. Forsetinn virðist enn ekki vera kominn til Búrúndí en hefur tjáð sig bæði í gegn um útvarp og netið. Þar hefur hann hvatt fólk til að halda ró sinni og sagst muna fyr- irgefa hverjum þeim uppreisnar- hermanni sem gæfist upp. Talsmaður forseta sagði í gær að valdaránið væri brandari og ekki raunverulegt. Mikil óvissa ríkir þó á svæðinu. „Það voru einhverjar óeirðir í morgun. Skothríðin entist í hálf- tíma. Núna er bara skothríð á tíu mínútna fresti,“ sagði Gad Nga- jimana, íbúi í Bujumbura, í sam- tali við fréttastofu CNN. „Það sést á andlitum fólks að allir eru hræddir. Annað hvort er valdarán eða ekki, enginn virðist vita það,“ bætti hann við. - þea Talsmaður Pierre Nkurunziza, forseta Búrúndí, gerir lítið úr valdaránstillögu andstæðinga hans: Segir valdarán í Búrúndí brandara VALDARÁN Mikil óvissa ríkir í Búrúndi þar sem valdaráni hefur verið lýst yfir. JENNIFER HUXTA/AFP Guðný, eru svínabúin bara að verða búin? „Við erum eiginlega að verða búin á því. Við vonum bara að þetta fari að verða búið hjá samningsaðilum.“ Guðný Tómasdóttir, bóndi á svínabúinu að Ormsstöðum í Grímsnesi, segir að ekki sé langt eftir í líftauginni í svínabúum hér á landi. KÓPAVOGUR Fimm verkefni grunnskóla í Kópavogi hlutu við- urkenningu skólanefndar Kópa- vogs, Kópinn, á miðvikudag. Þau voru forritunarvika í Hörðuvalla- skóla, útileikhús í Kópavogsskóla, Betri samskipti, betri líðan, betri árangur í Kársnesskóla, Frá haga til maga í Waldorfskólanum Lækjarbotnum og Snjallsíma- notkun nemenda í dönskunámi í Kópavogsskóla. Viðurkenningar voru afhentar við athöfn í Salnum í Kópavogi að viðstöddum Margréti Friðriks- dóttur, formanni skólanefndar Kópavogs og forseta bæjarstjórn- ar, og Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra Kópavogs. - þea Framúrskarandi skólastarf: Fimm skólar verðlaunaðir 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 3 F -B 3 4 C 1 6 3 F -B 2 1 0 1 6 3 F -B 0 D 4 1 6 3 F -A F 9 8 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.