Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 15.05.2015, Blaðsíða 48
15. maí 2015 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 32 BAKÞANKAR Kolbeins Tuma Daðasonar Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is DJARFT OPNUNARATRIÐI Listahátíðin hófst í gær og stendur yfir til 7. júní. Tugir sýninga og atriða verða í boði, en í þetta sinn er hátíðin innblásin af verkum listakvenna á öllum sviðum. Þetta var í 29. sinn sem hátíðin var sett. Listahátíð hófst með listrænu áhættuatriði þar sem dansarar stíga lífshættulegan dans utan á þverhníptri Moggahöllinni sem í dag hýsir Center Hotels. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI LISTAHÁTÍÐIN HÓFST MEÐ GLÆSIBRAG Listahátíð í Reykjavík hófst á miðvikudag með listrænu áhættuatriði þar sem dansarar stíga lífshættulegan dans utan á þverhníptri Moggahöllinni sem í dag hýsir Center Hotels. Mikið er um að vera í höfuðborginni og eru atriðin eins fj ölbreytt og þau eru mörg. MIKIL GLEÐI Fjöldi fólks mætti á Ingólfstorg til þess að sjá opnunaratriði Listahátíðarinnar. Þá var einnig margt um manninn í Safnahúsinu við Hverfisgötu þar sem hátíðin var sett með formlegum hætti. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók til máls og þá mættu forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaief einnig. Margt spennandi er í boði á hátíðinni um helgina. - Fréttablaðið - Morgunblaðið PITCH PERFECT 2 5, 8, 10:30 MAD MAX 8, 10:30(P) BAKK 5:50, 8 AVENGERS 2 3D 5, 10:10 ÁSTRÍKUR 2D 4 - ÍSL TAL Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. KRINGLUNNI SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK EGILSHÖLLÁLFABAKKA VARIETY CHICAGO SUN TIMES EMPIRE HITFIXTIME OUT LONDON TIME OUT NEW YORK TOTAL FILM Nemendur í útskriftarárgangi menntaskóla í borginni liggja sumir hverjir undir feldi. Greint var frá því í vikunni að níu þeirra hefðu verið staðnir að verki við svindl á stúdentsprófinu í þýsku. Flestir eru víst „fyrirmyndarnemendur“ en ekki á barmi falls. Níumenningarnir fá ekki að útskrifast með samnem- endum sínum en þeim stendur þó til boða að ljúka námi á næstu vikum gangi þeir að tilboði skólastjóra. ÞVÍLÍK óheppni að vera böstaður á stúdentsprófinu korteri fyrir útskrift. Hverjar eru líkurnar? Líkurnar eru reyndar ágætar ef yfirsetu- maðurinn tekur hlutverk sitt alvarlega. Það hefur hins vegar aldrei verið tilfellið í neinu prófi sem ég hef þreytt. Skipta prófin fleiri hundruðum. Blíðu gömlu yfirsetukon- urnar í HÍ voru ekki líklegar til að standa górillu með talstöð að verki. FASTLEGA má gera ráð fyrir að nemandi sem er staðinn að verki í stúdentsprófi hafi svindlað áður, og örugglega oftar en einu sinni. Ef þú hefur aldrei svindlað á prófi, ert heiðarleikinn uppmálaður, myndirðu taka áhættuna á stúdentsprófinu? Ég leyfi mér að stórefast um það. SJALDAN hefur mér blöskrað jafnmikið og að loknu skyndiprófi í meistaranáminu í burðarþolsfræði. Nemendur standa á fætur og ganga með úrlausn sína í átt til kennar- ans. Samnemandi spyr mig hvernig ég hafi leyst spurningu sem líklega gilti 2%. Ég svaraði án þess að hugsa enda öllum ljóst að prófinu væri lokið. „Já!“ sagði viðkomandi, settist niður aftur og breytti svarinu. Hann lét sem hann heyrði ekki athuga- semdir mínar. ÉG svekkti mig lengi, velti því fyrir mér að fara á fund prófessorsins og var rétt að jafna mig í jólaprófunum. Heimapróf, sólarhringur og öll gögn leyfð. Eina skilyrðið var engin sam- vinna. Þegar sami nemandi hringdi í mig til að fá svörin við „bara einni spurningu“, og var svo yfir sig hneykslaður á því að ég vildi ekki hjálpa honum, var mér öllum lokið. Ætli þetta hafi verið einu skiptin sem hann, nú reyndur byggingaverkfræð- ingur, svindlaði? Ekki séns. Að svindla á prófi 1 5 -0 9 -2 0 1 5 1 0 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 4 0 -7 D B C 1 6 4 0 -7 C 8 0 1 6 4 0 -7 B 4 4 1 6 4 0 -7 A 0 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.