Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Síða 110

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Síða 110
móti þeim“ (bls. 14). Telpan finnur sig ekki í hinu nýja umhverfi og verður eiginlega utan- veltu allan tímann, er stöðugt að hugsa um það að komast burt á einn eða annan hátt, annað- hvort heim, hreinlega oní jörðina eða upp á „íjallið“. Það er einmitt þessi framandleiki sem veldur bestu og dýpstu þáttum sögunnar, telpan hverfur inní sjálfa sig og streymir þaðan „auð- veldlega inn í kýrnar og blómin, mýramar og fjallið í fjarska“ (bls. 39—40), fremur en fólkið sem hún nær aldrei neinu sambandi við, nema þá helst kaupamanninn. Hún þekkir ekki þá gleði sem allir eiga í sameiningu, heldur aðeins „þá sem maður á með sjálfum sér... og dregur á andlitið kyrrlátt, dularfullt bros sem enginn veit af hverju stafar“ og er „innhverft" (bls. 45). Fyrri hluti bókarinnar er ótrúlega góður, þeg- ar telpan er ein í aðalhlutverki með upplifanir sínar. Sagan hefst á óvæntum samanburði á hafi og landi, grænar sjávaröldur verða að grasi grónum hæðum og fuglamir em ekki með haftð í vængjunum heldur þeytast upp úr jörðinni í „mjúku grjótregni" (bls. 25). Framandleiki fyrsta morgunsins í sveitinni lýsir sér í vondu bragði af skeiðunum, ofbirtu frá mjólkinni og það stafar „ ... óþægilegum kulda frá skyrinu“ (bls. 17). Strax á fyrstu síðunum, á leiðinni í rútunni finnur telpan fyrir dauðanum og forgengileik- anum sem síðan skjóta reglulega upp kollinum út alla söguna, eins og mórar úr mýrarkeldum. Þar er falleg lýsing á bílferðinni sem einskonar samfelldri kveðjustund, telpan kveður allt sem framhjá fer, fugla, kletta, hús og fólk og finnst að ekkert af þessu muni hún sjá aftur, allt muni deyja um leið og hún fari framhjá því. Og innra með sér hefur hún stöðuga löngun til dauðans og daðrar reglulega við hana. Dauðinn er allt um kring í sögunni og blundar jafnvel undir henni, oní jörðinni. A áhrifamikinn hátt er hon- um líkt við ófreskju sem býr í mógröf er dregur stöðugt andann í litlum loftbólum sem iðnar svartar pöddur sækja henni uppá yfirborðið (á bls. 41). Síðar í bókinni andar ófreskjan frá sér þegar „loftbólur stíga á ýmsum stöðum upp úr mýrinni“ (bls. 99) í kringum telpuna, og að lokum kemst kaupamaðurinn í tæri við klær hennar. Þannig lifir dauðinn stöðugt með sög- unni og Guðbergur gefur honum, líkt og öðrum tabúum, skemmtilega einfalda og sjálfsagða umfjöllun: Ekkert var jafn yndislegt og það að hugsa um dauðann á góðviðrisdegi, síðdegis á sunnu- degi uppi í sveit þegar maður á frí og ekkert annað að gera mitt í fuglasöng og ilmi af rakri jörð sem er vaxin þrútnum blómum og gróðri. Þá er sælast að ímynda sér eigin dauða í mógröf á meðan náttúran er sveipuð síðdegiskyrrð og maður er fullur af æsku- þrótti, órafjarri ímyndunum sínum, ungur og í blóma lífsins. (bls. 41-42) Kálfskaflinn Einn slungnasti þáttur dauðans í sögunni er í „Kálfskaflanum" eins og ég heyrði tvær bók- elskar konur í jólaboði kalla tíunda kafla bók- arinnar, sem er frábærlega skrifaður og gæti í raun staðið einn og sér, svo heilsteyptur er hann. Hér birtast öll bestu einkenni bókarinnar í frá- sögn af heimaslátrun á kálfi í tilefni heimkomu dótturinnar eftir nýafstaðna fóstureyðingu, sem rímar vel við slátrunina. Telpan tengist einnig kálfslífinu þar sem hún varð fyrst til að upp- götva burð hans, lifir sig sterkt inn í dauða hans og ímyndar sér síðan sinn eigin á svipaðan hátt. Krakkar koma af nálægum bæjum til að horfa á aftökuna og er að henni lokinni boðið að borða kálfasteikina í hádeginu til þess að geta síðan hlaupið útá tún til kýrinnar og sagt henni að nú sé kálfurinn hennar í maga þeirra. Kýrin er hábaulandi og tryllt af harmi yfir kálfseyðing- unni og margt er hægt að lesa út úr saman- burðinum á henni og dótturinni sem þolir ekki þessa „beljustæla" (bls. 62), en kýlir nýtæmda vömb sína þess í stað út af kálfakjötinu. Þama mætast margar sögur svo túlkunar- möguleikar verða margir, en textinn verður þó aldrei of einfaldur í táknrænu sinni enda ekki beinlínis um tákn að ræða, heldur aðeins ein- 100 TMM 1992:1
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.