Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Page 111
falda og margslungna atburði sem gætu staðið einir og sér og lifað sjálfstæðu lífi burtséð frá allri táknrænu og öllu merkingarrími. Þetta birt- ist einnig vel í þeirri mynd sem síðar er dregin upp af stúlkunni þar sem hún sefur með stein- völu úr fljótinu á kviðnum. Þar verður steinninn ekki lagður í neina ákveðna vörðu hlaðna merk- ingum heldur má velta honum lengi á milli handa sér. Þetta táknlausa táknsæi sést nú víða notað meðal listamanna og birtist til dæmis skýrt í kvikmyndum pólska leikstjórans Kryst- ofs Kieslowskis. Líkt og hann fer Guðbergur listilega um á jafnvægisslánni erfiðu og gefur aldrei of mikið í skyn en heldur þó öllum möguleikum opnum með hinum fínlegustu núönsum, eins og í áður- nefndum „Kálfskafla“: Krakkamir sitja til borðs með dótturinni og „Úr augunum á þeim skein þakklæti þegar þau tuggðu kjötið og litu til hennar í laumi. Það var henni að þakka að þeim var boðið í mat . . .“ (bls. 61) Þarna fær hver og einn lesandi að fara í sinn eigin túlkun- arleik, óáreittur af höfundi, og getur bætt sínum eigin hugmyndum útí textann „ef vill“ eins og sagt var í gömlum matreiðslubókum. I þessum kafla bókarinnar hlaðast upp hin ýmsu merk- ingarlög og það svo þétt að út á milli þeirra drýpur gómsætur og þykkur lestrarsáfi, verður það sem á smiðsmáli er kallað „algjör safi“. „Kálfskaflanum" lýkur við hæfi og lokar hring- rás með því að um kvöldið kemur telpan á blóði drifinn slátrunarstaðinn og fær í sig hroll úr jörðinni (frá ófreskjunni sem þar býr) upp í gegnum iljarnar og ælir síðan upp kálfinum framan í kúna. Sjálf lýsingin á dauða kálfsins er meðal gull- vægari staða í bókinni, þegarkrónur sóleyjanna fyllast blóði og lúta síðan höfði um leið og kálfurinn missir sitt eigið, hella úr krónunni og rísa síðan upp á ný í brennandi sól sem „ . . . skein andartak í framandi ljóma og fjöllin virt- ust verða annars hugar í fjarlægð“ (bls. 60). Það eru setningar eins og þessi, sem og „A þessum árstíma var nóttin áþekk endalausri hugsun um alls ekkert“ (bls. 27), sem valda því að maður leggur bókina frá sér andartak og þá er sem hún baði ögn út síðunum eins og hvítum vængjum þar sem hún liggur á borði eða sæng. Glottandi einlægni Eins og áður segir er ferskur tónn í þessari frásögn sem samanstendur af gamalkunnugri „guðbergsku", eins og menn kannast við úr fyrri bókum höfundar, og einhverri nýrri nálægð svo úr verður hárfín blanda af einlægni og fjarlægð, kómrk og alvöru, sem hlýtur alltaf að vera eftir- sótt af rithöfundum. Þetta er eiginlega glottandi einlægni sem aldrei er rembingsleg heldur renna hinir ólíku þættir eðlilega og saman- bruggaðir fram líkt og í gruggugu jökulfljóti. Textinn flýtur létt í farveginum sem sagan myndar þvingunarlaust. Aðeins einu sinni í bókinni kemur óvænt gerbragð í hið hárfína brugg textans og það er þegar stúlkan gengur um á Héraðsmótinu og kemur í móa þar sem meðlimir lúðrasveitarinnar Svanirnir (útaf fyrir sig of auðveld fyndni) liggja berrassaðir oná konu í hverri laut og blása síðan í lúðra að losun lokinni. Þarna missir höfundur jafnvægið og fellur í þreyttan absúrdisma, gamalkunna grót- esku. Söguþráðurinn er hógvær og alltaf í bak- grunni, hann gefur stemningunum eftir for- grunninn og jafnvel allan flötinn eins og þegar í miðri bók er gert hlé á sögunni með rigningar- degi og allar persónurnar látnar leggja sig í mjög fallegum og værðarlegum kafla líkt og áð sé í frásögninni (upphaf 14. kafla). En á bak við söguþráðinn gerast síðan fleiri sögur, bútar af þeim standa upp úr bókinni hér og þar líkt og steinar í straumi. Maður sér ekki til botns í jökulfljótinu og þessi bók leynir á sér, það ligg- ur við að hlutfallið sé jafnt á milli textans og þess sem lesa má á milli línanna. Guðbergur heldur óvenju miklu eftir af söguefni sínu og sýnir höfundarhlédrægni sem ekki er margséð í íslenskum skáldskap. Það er ekki til mikils að ætla að fjalla nánar um eiginlegan „stíl“ bókarinnar, svo þróaður og TMM 1992:1 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.