Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 120

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1992, Side 120
leg mynd af myrkri sem skellur yfir blaktandi fána og syngjandi barnakór vefst saman við vísanir til Walts Whitmans, það ljóð er eitt besta ljóð bókarinnar. Enga sérstaka furðu vekur eftir þetta að sjá vitnað til kínverska stórskáldsins Lí Pó en í ljóðinu „Fornleifafundur" (43) finnur ljóðmæl- andi göngustaf skáldsins nálægt Húsafelli, „ .. . meira en / 1200 ára gamlan en / ófúinn og letraðan / táknum úr blá- / móðulandinu". Nafn Lí Pó vekur ekki aðeins upp hugrenningar um austurlenska ljóðlist heldur einnig þá upphafn- ingu hversdagsleikans sem þar er að finna, og áður var minnst á, en í stað vínsins sem Lí Pó orti svo oft um verður annar austrænn drykkur Gyrði hugleikið yrkisefni, nefnilega te. Ljóð- mælandi sötrar „ ... sveitasælu- / te úr frönsku héraði" úr ódýrri „ . . . krús / frá Kína . . .“ í ljóðinu „Kvöld nærri útvarpstæki" (37) og eftir söfnun tegrasa svo sem blóðbergs og ljónslappa í ljóðinu „Farið til tegrasa“ (64) sjóða feðginin sér te úr grösunum sem „ ... hafa vaxið / undir dökku keiluQalli / sem magnar kynngi / og góðan galdur". Ég þykist finna hér þá virðingu fyrir hversdagslegum viðburðum sem skapar þeim aukið gildi og gæti vísað til aldagamallrar temenningar Kínverja. Það er fólgin í þessari afstöðu sama hugsunin og er að baki fagurfræði ljóðanna og sagnanna, fágun og ögun sem helst í hendur við það sem við fyrstu sýn virðist hversdagslegt. En textamir eru um leið á sí- felldu iði, þeir skreppa úr höndum lesandans, smjúga undan túlkandanum og fíngert bindiefn- ið sem heldur brotum sagnanna saman virðist geta breytt um form og lögun þegar minnst varir. Ef til vill er á slíkum stundum þegar maður undrast yfir margbreytileika svo ein- faldra ogíágaðra texta best að hella upp á te og minnast ljóðs kínverska skáldsins Úanns Tje (Kínversk Ijóð frá liðnum öldum. Reykjavík 1973. Þýðandi Helgi Hálfdanarson. Bls. 91): Þú gafst mér ljóð; sem lítinn þakkarvott læt ég nú koma fáein blöð af te; þau eru sprottin framá Klausturfjalli, því afbragðs te skal afbragðs skáldi sent. Og þegar fyllist loftið ljúfum ilmi, lyftir þú bollanum að vörum þér með lokuð augu, og ert í Paradís. Kristján B. Jónasson Bók til að borða Þórarinn Eldjám. Óðfluga. Forlagið 1991.32 bls. Þórarinn Eldjárn gaf út þijár ágætar ljóðabækur 1991, Hina háfleygu moldvörpu, Ort og Óð- fluga. Það er sú síðastnefnda sem hér er til umfjöllunar. Titillinn sjálfur er fyrsta umhugs- unarefnið. Ég kýs hér á eftir að líta á „óðfluga“ sem atviksorð og beygi það ekki í föllum, en það gæti auðvitað sem best verið nafnorð, í merkingunni ljóðfluga, fluga óðsins. Þetta er frábær titill og sambærilegur við Hliðin á slétt- unni í margræðni sinni. Fyrir framan kvæðin er næsta umhugsunar- efni. Það er tilvitnun í Kötludraum sem ég finn ekki í mínum útgáfum af því kvæði: Býð eg ekki bögumar þessar greindum skáldum né göfugum mönnum; böm eru ei vönd að bragsmíði ljóða þau mega þiggja þetta ef vilja. Bókin er sem sagt handa börnum, en ekki þarf að öðru leyti að hirða um hæverskar afsakanir skáldsins. Ljóðin eru öll bundin stuðlum og rími. Fyrir utan venjulega ferhenda bragarhætti kemur Þórarinn sjaldgæfari háttum að, svo sem sonn- ettu, þulu og meira að segja dróttkvæðum hætti. Sú vísa heitir „Egilssaga“ og er á þessa leið: Bilað hafði bóla, blóð úr henni flóði. ámátlega aumur 110 TMM 1992:1
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.