Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 26

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1998, Page 26
HALLDÓR GUÐMUNDSSON lykillinn að sjálfri fegurðinni“ segir í Höll sumarlandsins (150). Fegurðin er orðin meira abstrakt þegar líður á lokabindi verksins, en samt órjúfanlega tengd ungri konu. „Hún heitir Bera“ segir Sigurður Breiðfjörð við Ólaf Kárason þegar hann birtist honum í draumi í fangelsinu: „Svo var draum- urinn búinn. Hann settist upp glaðvakandi og leit í kríngum sig. Fyrsti sólargeisli vorsins var á fángelsisveggnum yfir rúmi hans“ (bls. 194). Það hlaut því svo að fara að þegar Ólafur sér síðan unga stúlku á skipinu á leiðinni heim og heillast af henni, gefi hann henni nafnið Bera - og tengi hana órjúfanlega sólinni: „En þegar hún hafði horft í augu hans um hríð lýsti brosið á ný, og alt var gott, það var sólarsýn“ (211). Á meðan Halldór leggur drög að Húsi skáldsins er Bera ennþá sama stúlkan og Jórunn, sem heillar Ólaf undir lok þeirrar bókar. Halldór ætlar að láta hann yrkja til hennar „kvæðið í R. F. [Rauða Fánanum, þ. e. Maístjarn- an, aths. mín] 1935“ (Mk III, 13). Þegar hann yfirgefur Jórunni aftur vegna Jarþrúðar gengur hann „útúr lífinu“ (s. st.), eftir þessa einu nótt. Og í sömu minniskompu er líka að finna setninguna sem verður örlagavaldur Ólafs í lokin: „Hugsaðu um mig þegar þú ert í miklu sólskini (uppi á jökli)“ (139). En þegar til átti að taka varð hann að skilja þessar konur að, sú sem lék hlutverk Beru gat ekki átt fortíð með Ólafi, hún varð að’ vera honum ný opinberun um tilvist fegurðarinnar. Við Reimar skáld segist hann hafa haldið að fegurðin væri aðeins draumur skáldanna: En eitt hásumarkvöld í hvítum þokum, við líðandi vatn og nýtt túngl, þá lifir þú þetta undur, sem tilheyrir ekki einu sinni efninu og á ekkert skylt við fallvaltleikann þótt það birtist í mennsku gervi; og öll orð eru dáin: þú átt ekki lengur heima á jörðinni. (Fegurð himinsins, 254) í vissum skilningi ríður þessi uppgötvun Ólafs honum að fullu. Peter Hall- berg orðar það svo: „Þegar skáldið hefur skynjað fegurðina sem yfirþyrm- andi og nálægan veruleika í eigin lífi, getur hann ekki lengur sætt sig við kjör sín á jörðinni.“9 Enn veldur fegurðin trega, hún er „hið ólinnanda mein, hið óþornandi tár“ (Fegurðin, 257) - og hún er tengd mennskri veru. Fegurðin er sjálfstæð höfuðskepna en samt mannleg: þarna mætast hjá Halldóri trúin á manninn og fegurðarþráin, en eftir stendur sú þverstæða að fegurðin á ekki heima í mannlífinu, og sannarlega ekki í lífi Ólafs Kárasonar. Tilveran einsog henni hefur verið lýst á Sviðinsvík og í Bervík rúmar ekki slíka fegurð, og niðurstaðan getur þá ekki orðið önnur en að maðurinn sjálfur (sem „lífstákn og hugsjón“) eigi ekki heima í þessu samfélagi. Þessa ályktun lætur Halldór Þórunni frá Kömbum draga þegar sakamað- urinn Ólafur og hún hittast aftur í Reykjavík: „Maður getur aldrei orðið nógu vondur fyrir þennan heim. Eingin manneskja er nógu vond fyrir þennan 24 TMM 1998:2
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.