Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Blaðsíða 16
16 Fréttir 2.–4. desember 2011 Helgarblað
Í
sland gæti orðið jöklalaust að
miklu leyti á 200 árum, jafn-
vel fyrr. Það gerðist síðast fyrir
sex til átta þúsund árum. Hlýn-
un jarðar gerir það að verkum að
jöklarnir bráðna og yfirborð sjávar
hækkar hraðar en áður. Tómas Jó-
hannesson, sérfræðingur í jökla- og
ofanflóðarannsóknum hjá Veður-
stofu Íslands, segir aðspurður að eft-
ir nokkur hundruð ár gæti yfirborð
sjávar hafa hækkað um sex metra.
DV fékk Loftmyndir ehf. til að
teikna upp hvernig nokkrar af helstu
byggðum landsins yrðu úti ef slík
hækkun yrði á yfirborði sjávar.
Vatnsyfirborðið hækkar hraðar
„Það eru allar líkur á því að þetta sé
þegar hafið af fullum krafti. Sú hlýn-
un sem orðið hefur vart á norður-
slóðum síðastliðin fimm til tíu árin
hefur verið sérstaklega hröð,“ seg-
ir Tómas. Hafís hörfi hratt og jöklar
hopi um allan heim.
Yfirborð sjávar hækkar núna
hraðar en það gerði að meðaltali á
20. öld. Þá hækkaði yfirborðið um
liðlega 2 millimetra á ári að jafnaði,
sem eru næstum 20 sentímetrar á
öldinni. Tómas segir að sú hækkun
hafi skipt miklu máli í Hollandi og
víðar þar sem landið stendur lágt.
„Nú er þessi hækkun komin yfir 3
millimetra á ári.“ Gert sé ráð fyrir að
sú þróun muni verða mun hraðari.
Hollendingar spái eins metra hækk-
un á yfirborði sjávar á þessari öld.
Vatnsrennsli eykst næstu
50 til 70 árin
Spurður hvaða áhrif þetta muni
hafa á Ísland á næstu áratugum seg-
ir Tómas að vatnsrennsli muni auk-
ist í helstu jökulám landsins. Yfir-
borð jökla lækki nú á Íslandi um einn
metra að jafnaði á ári. „Það er talið að
jöklarnir muni hverfa að miklu leyti á
200 árum, jafnvel þó ekkert hlýni til
viðbótar,“ segir Tómas en bætir við að
vísindamenn eigi von á meiri hlýn-
un en orðið er. Bráðnun jöklanna og
aukið vatnsmagn í ám muni, þeg-
ar horft sé til næstu áratuga, verða
mestu umhverfisbreytingarnar sem
núlifandi Íslendingar muni horfa
upp á. Gert er ráð fyrir því að rennsli
í ánum aukist næstu 50 til 70 árin en
svo muni hratt draga úr vatnsmagn-
inu eftir því sem jöklarnir minnki.
„Það má gera ráð fyrir breytingum
á farvegi jökulánna og að ný jökul-
lón muni myndast við jökuljaðrana,“
segir hann um afleiðingarnar.
Minni hækkun en annars staðar
Tómas segir þó að áhrifin af bráðnun
jökla sé ekki einfalt mál. Bráðnun íss
úr Grænlandsjökli leiði til dæmis til
meiri hækkunar sjávar á suðurhveli
jarðar. Að sama skapi leiði bráðnun
íss af suðurskautinu til meiri hækk-
unar sjávar á norðurhveli. Þetta stafi
af því að þegar jöklarnir minnki dragi
þeir ekki til sín sjó með sama þyngd-
arafli. Þar sem gert sé ráð fyrir því að
Grænlandsjökull leggi yfirborði sjáv-
ar til meira vatn en jökullinn á suð-
urskautinu, er gert ráð fyrir því að
yfirborð sjávar hækki minna á norð-
urhveli en meira eftir því sem sunnar
dregur. „Almenn hækkun gæti orðið
minni hér en að meðaltali í heimin-
um,“ segir Tómas.
Hann bendir líka á að landris í ná-
munda við jöklana á Íslandi sé enn
sem komið er meira en sem nemi
hækkun yfirborðs sjávar. Það stafi
af því að jöklarnir léttist þegar þeir
bráðna og landið rísi undan þung-
anum. Suðaustanverð ströndin við
Ísland hækkar hátt í 2 sentímetra á
ári, sem er tíu sinnum meiri hækkun
en hækkun yfirborðs sjávar. „Á einni
öld getur landið hækkað um einn til
tvo metra,“ segir Tómas. Hann bendir
þó á að á öðrum stöðum á Íslandi sé
landið að síga, svo sem á Siglufirði, í
Reykjavík og víðar.
Snæfellsjökull fer fyrstur
Eins og áður segir bráðna jöklarnir á
Íslandi hratt. „Snæfellsjökull hverfur
mjög hratt enda er hann þunnur.
Við gerum ráð fyrir að hann hverfi
á nokkrum áratugum. Langjökull
stendur lágt og rýrnar líka hraðar en
hinir jöklarnir; Hofsjökull og Vatna-
jökull. Langjökull verður ekki svipur
hjá sjón eftir 100 ár.“ Eftir 100 ár verði
jöklarnir kannski að rúmmáli orðnir
helmingi minni en í dag. „Þeir munu
svo líklega hverfa hratt eftir það.“
Tómas segir að ekkert sem mann-
Svona sekkur Ísland
n Yfirborð sjávar gæti hækkað um sex metra á nokkur hundruð árum n Kort Loftmynda ehf. sýna hvernig byggð-
irnar myndu sökkva n Landris vegna bráðnunar jökla getur unnið á móti n Jöklarnir hverfa að mestu á 200 árum
„Það er talið
að jöklarnir
muni hverfa að
miklu leyti á
200 árum, jafnvel
þó ekkert hlýni
til viðbótar
Miðbærinn á kafi Hér má sjá
hvernig sex metra hækkun yfirborðs
sjávar frá því sem nú er myndi hafa
áhrif á Reykjavík. Rauði liturinn
táknar sjó. Svona gæti staðan verið
orðin eftir fáein hundruð ár. Eins og
sjá má gengur sjórinn ansi langt upp
á land.
LoftMYndir eHf.
Vík í Mýrdal Sjórinn myndi ganga langt upp á land í Vík í Mýrdal ef spár um hækkun yfir-
borðs sjávar ganga eftir. Á þessum slóðum er þó landris mun meira en sjávarborðshækkun.
LoftMYndir eHf.
Akureyri Ljóst er að gríðarmikla varnargarða þyrfti að reisa á Akureyri ef yfirborð sjávar
hækkar jafn mikið og vísindamenn gera ráð fyrir. Eyrin yrði illa úti. LoftMYndir eHf.
Miklar breytingar í vændum Tómas Jóhannesson segir að Ísland gæti orðið jöklalaust
á næstu 100 til 200 árum. MYnd SigtrYggur Ari
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is