Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 70
Tölvuleikjaframleiðandinn Sega,
sem þekktastur er fyrir fram-
leiðslu á tölvuleikjum og tölvu-
fylgihlutum, hefur nú kynnt til
leiks tæplega fjörutíu sentímetra
háa vélmennakærustu. Það má
með sanni segja að vélmennið sé
hin fullkomna kærasta þar sem
hún hlýðir skipunum eins og að
kyssa og er sérstaklega hönn-
uð fyrir einmana miðaldra karl-
menn.
Vélmennadaman hefur hlot-
ið nafnið EMA, sem stendur fyr-
ir Eternal Maiden Actualizat-
ion, er hönnuð til að setja stút á
munninn þegar manneskja kem-
ur nærri munninum hennar svo
framarlega sem EMA sé stillt á
„Love Mode“ eða ástarstillinguna
og sé með vel hlaðin batteríin.
„Sterk, hörð og tilbúin til að
berjast er líklegast það sem flestir
tengja við vélmenni en við vild-
um hins vegar hanna vélmenni
sem er alls ekki eins og staðal-
ímynd þeirra hefur verið hingað
til. Þvert á móti vildum við hanna
vélmenni sem er indælt og gagn-
virkt,“ segir Minako Sakanoue,
talsmaður Sega Toys, í viðtali við
Reuters-fréttastofuna.
„Hún er mjög elskuleg og þótt
hún sé ekki mennsk getur hún al-
veg látið eins og alvöru kærasta.“
Ekki nóg með það heldur get-
ur EMA líka dreift nafnspjöldum,
sungið og dansað sem þýðir að
EMA gæti orðið ritari framtíðar-
innar, nú eða bara skemmtikraft-
ur.
Sega vonast til að selja að
minnsta kosti tíu þúsund vél-
mennakærustur fyrsta árið sitt
og sjá fyrir sér tíu billjón dollara
veltu í sölu á gervigreind á borð
við EMA á næsta áratug.
Barmmikla vélmennakærast-
ann verður fáanleg í Japan í sept-
ember og kemur til með að kosta
um fjórtán þúsund krónur. Talið
svo um að það sé ekki hægt að
kaupa sér ást.
krista@dv.is
Hún er með stóran
barm, smágerð,
afar vinaleg og hún
gengur fyrir batt-
eríum.
Ólympíuleikar
í tölvunni
Ólympíuleikarnir í Peking í sumar
verða þeir fyrstu sem senda allt
efni út á digital-formi, en það
gerir fólki kleift að horfa á
leikana í PC-tölvum sínum hvar
sem er í heiminum. Meira en
2.000 klukkustundir af íþrótta-
efni í beinni útsendingu verður
hægt að nálgast á síðunni
NBCOlympics.com. Verkefnið
verður stór prófraun fyrir
vefmyndbönd og fyrirtækin sem
standa að síðunni, NBC Universal
og Microsoft.
föstudagur 1. ágúst 200872 Helgarblað DV
DraUMakær-
asta fraMtíðar-
iNNar? EMa er
sérhönnuð fyrir
einmana miðaldra
karlmenn.
Tækni
uMsjón: PáLL sVanssOn palli@dv.is
PlötUsPilari
Með UsB-teNgi
Loksins, loksins geturðu spilað gömlu vinýlplöturnar. IOn usB-
plötuspilarinn er með usB-tengi þannig að hægt er að flytja alla
vinýl-tónlistina yfir í tölvuna. Einnig er hægt að tengja plötu-
spilarann. Hægt er að fjárfesta í plötuspilaranum á hinum ýmsu
stöðum á netinu, þar á meðal á amazon. spilarinn kostar frá 70
dollurum eða fimm þúsund krónum.
Barmmikil
vélmenna-
kærasta
kaffibolla-
hÓtunin
samtarfsfélagi þinn myndi
heldur betur fá taugaáfall ef allt í
einu heyrðist í kaffibollanum sem
hann ætlaði að stela af þér: „step
away from the coffee machine,
punk. Hands on your head, kneel
down with your face to the wall. i
need a cup of coffee, dammit.“
Bollinn á án efa eftir að vekja
mikla lukku á skrifstofunni. Hægt
er að kaupa sér kill time-
kaffibollann á síðunni molla-
space.com og kostar hann
einungis 15 dollara eða eitt
þúsund og eitt hundrað krónur.