Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.2008, Blaðsíða 64
Föstudagur 1. ágúst 200864 Helgarblað DV
ingjusöm og leit ljómandi
vel út að sögn Junge. Brúð-
guminn var hins vegar 56 ára,
öskugrár í framan, boginn í
baki og hreyfði sig löturhægt.
Vinstri hönd hans skalf eins
og hann væri Parkinsonssjúk-
lingur. Sovéskt sprengjuregn-
ið skall á borginni, Berlín var
í rúst. Hjónavígslan var borg-
araleg. Vinir og ættingjar voru
ekki viðstaddir, í neðanjarðar-
byrginu voru engin blóm, eng-
in tónlist. Ekkert varð úr brúð-
kaupsnóttinni.
Daginn eftir, 30. apríl 1945,
lokuðu brúðhjónin sig inni í
herbergi Hitlers. Hún hafði
þvegið hár sitt og greitt af mik-
illi list og var í rósóttum silki-
kjól, uppáhaldskjól Hitlers.
Hún kraup í sófanum við hlið-
ina á honum. Hvað þeim fór á
milli veit enginn. Skothvellur
heyrðist kl. 15:30.
Þegar komið var inn í her-
bergið sátu Hitler og kona hans
látin í sófanum. Hann hafði
beint 7,65 Walther-byssunni
að hægri vanganum og skotið.
Hún hafði bitið í lítið glerhylki
fyllt blásýru. Líkamar þeirra
voru lagðir á teppi og bornir
upp í garðinn við kanslarahöll-
ina. Þeir voru lagðir til samsíða
og kveikt í þeim.
Hitler fékk Evu Braun,
ósköp venjulega stúlku sem
hafði engan áhuga á stjórn-
málum, til að deyja með sér. Af
hverju flúði hún ekki? „Allt sitt
líf hafði hún staðið í skuggan-
um,“ sagði Traudl Junge, rit-
ari Hitlers. „Ég tel að hún hafi
ákveðið að komast á spjöld
sögunnar sem kærastan hug-
umstóra, eiginkona Foringj-
ans. Sú ákvörðun veitti henni
styrk til hinstu stundar.“
eftir Bengt Liljegren
Eva Braun hafði engan áhuga á
stjórnmálum og fékk aldrei að koma
fram opinberlega. Hér sjást adolf Hitler
og Benito Mussolini í München 1938.
Hermenn rannsaka garðinn þar sem lík Evu
Braun og Hitlers voru brennd eftir sjálfsmorð-
in í neðanjarðarbyrginu 6. júlí 1945.