Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Page 3
Fulltrúar Íslands á ÓlympÍumÓti Fatlaðra Í peking Baldur Ævar Baldursson, langstökk Eyþór Þrastarson, sund Jón Oddur Halldórsson, frjálsar íþróttir/spretthlaup Sonja Sigurðardóttir, sund Þorsteinn Magnús Sölvason, lyftingar ÞriðJudagur 9. SEptEMBEr 2008 3Fréttir ÞORGERÐUR SNIÐGENGUR FATLAÐA meiri vinna fyrir fatlaða Athygli vakti að Þorgerður Katr- ín fór ekki aðeins einu sinni á nýaf- staðna ólympíuleika heldur tvisv- ar og gaf hún þá skýringu að ekki væri annað en eðlilegt að ráðherra íþróttamála væri viðstaddur jafn- stóran viðburð íslenskra íþrótta- manna. Þegar kemur að fötluðum íþróttamönnum er Þorgerður hins vegar fjarri góðu gamni. Eins og sést glögglega á árangri Hauks eru þess dæmi að Íslendingar nái á verð- launapall á þeim leikum. Minna er hins vegar gert úr árangri þeirra fötl- uðu. „Við þurfum oft að leggja okk- ur miklu meira fram en þeir sem eru ófatlaðir,“ segir Haukur. kvarta ekkert Ólafur Magnússon, fram- kvæmdastjóri fjárhags- og afreks- sviðs Íþróttasambands fatlaðra, sér ekkert athugavert við að Þorgerður Katrín mæti ekki á mótið. „Við lítum ekki á þetta sem neitt gagnrýnivert. Svona er þetta bara.“ Hann segir að vissulega væri gaman ef hún kæmi. „Við erum hins vegar mjög ánægð með að einhver af ráðherrum ríkis- stjórnarinnar vilji vera með okkur. Við erum alsæl með að félagsmála- ráðherrann mætir,“ segir Ólafur. Hann bendir á að mennta- málaráðuneytið hafi alltaf verið einn stærsti stuðnings- aðili Íþróttasambands fatl- aðra. „Við erum ekkert að kvarta.“ Ólafur seg- ir sambandið aldrei hafa gagnrýnt fjarveru menntamálaráð- herra á mótinu og ekki hafi kom- ið upp sú hug- mynd að óska nærveru hans. góður árangur Íslenskir keppendur á Ólympíu- móti fatlaðra hafa náð mjög góðum árangri. Á leikunum í Sydney árið 2000 fékk Kristín rós Hákonardóttir gullverðlaun fyrir sund. mynd steFán karlsson situr heima Þorgerður Katrín gunnarsdóttir ætlar ekki á Ólympíumót fatlaðra en fimm íþróttamenn keppa þar fyrir Íslands hönd. mynd sigtryggur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.