Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 12
þriðjudagur 9. september 200812 Fréttir McCain eða Obama? Hægt er að taka próf á netinu, sem leiðir í ljós hvort skoðanir manns fara saman við áherslur repúblik- anans Johns McCain eða demó- kratans Baracks Husseins Obama. Prófið er að finna á vefsíðu USA Today og er slóðin usatoday.com/ news/politics/election2008/candi- date-match-game.htm. Samkvæmt seinustu könnunum hefur McCain fjögurra prósenta forskot á Obama, eftir að hafa rekið lestina um langt skeið. Hleypir nýju lífi í kappHlaupið Sarah Palin hefur verið á kosninga- ferðalagi með John McCain um helgina. Eftirvænting og spenna hafa einkennt móttökur sem hún fær frá almenningi og hún hef- ur gjörsamlega skyggt á forseta- frambjóðandann sjálfan. Allir eru komnir til að berja hana augum en ekki John McCain. Í fjölmiðlum vestanhafs er talað um Söruh Palin sem hina nýju „norðurstjörnu“ Rep- úblikanaflokksins. Skyggir á McCain Skyndilegar vinsældir Söruh Palin koma öllum í opna skjöldu og þá ekki síst John McCain sjálfum. Vinsældum hennar fylgir sá galli að hann er sjálfur kominn í skuggann. Á kosningafundi í Detroit í gær- morgun fylltist fundarsalurinn á skammri stundu og þegar fréttist af fundinum í kirkju skammt frá fund- arstaðnum var messunni frestað í skyndi svo kirkjugestir gæru far- ið og virt frambjóðendurna fyr- ir sér. Salurinn tók 8.000 manns í sæti, en margir urðu frá að hverfa. Með sama áframhaldi verður þess skammt að bíða að kosningafund- ir þeirra verði 5 til 10 sinnum fjöl- mennari. Þegar aðeins 2 mánuðir eru til forsetakosninga gæti „Fellibylurinn Sarah“ hæglega feykt John McCain í forsetastólinn. Sarah Palin hefur kveikt nýjan eldmóð hjá kristnu mið- stéttarfólki af evrópskum uppruna, en það er einmitt sá kjósendahópur sem getur skipt sköpum í kosning- unum. Hún er talin höfða sérstak- lega til alþýðufólks í fylkjum á borð við Michigan, Ohio, Pennsylvaniu, Colorado og Montana. Kristna hægrið Í forkosningunum árið 2000 tókst George W. Bush að fá „kristna hægrið“ til að styðja sig gegn John McCain og nú virðist sem Sarah Pal- in sé að ná til þeirra hópa í þágu for- setaframboðsins. Siðferðileg afstaða hennar, til dæmis gegn frjálsum fóst- ureyðingum, áhersla á kristna trú og þjóðhollustu, höfðar til íbúa í sveit- um, smærri borgum og bæjum út um öll Bandaríkin. Stefna hennar í um- hverfismálum og orkumálum á mik- inn hljómgrunn meðal íbúa í fylkjum þar sem eru miklar náttúruauðlindir og möguleikar á aukinni orkuvinnslu. Afstaða hennar til dýraveiða og til byssueignar höfðar einnig til íbúa í ákveðnum fylkjum sem skipt geta sköpum í kosningunum 4. nóvember. Útgeislun og alþýðleg En það eru ekki aðeins stefnumál Söruh Palin sem heilla almenning, hún hefur útlitið með sér, hefur mikla útgeislun og fallega framkomu. Þá er hún „ein af fjöldanum“ með fimm börn og vandamál í heimilislífi, sem nánast allir geta samsamað sig við. Sautján ára dóttir hennar er ólétt og yngsta barnið hennar, sonur sem fæddist í apríl á þessu ári, er með Downs-heilkennið. Slík mál hafa að- eins aukið á vinsældir hennar. Óvæntar vinsældir Söru Palin hafa komið demókrötum í mikinn vanda. Þeir hafa ákveðið að virkja Hillary Clinton til mótvægis og mun hún meðal annars fara í fundaher- ferð til Flórída á næstu dögum til að tala máli Baracks Obama, en all- ir vita að hún hefur nýlega háð harða og óvægna baráttu við hann og hann sniðgekk hana við val á varaforseta- efni. Ekki er því víst að Hillary geti breytt miklu fyrir Obama. Vinsælli en McCain Sarah Palin kann á hinn bóginn að valda John McCain vandkvæðum líka því hún er svo miklu vinsælli en hann. Á fundinum í Detroit í fyrradag komst hann ekkert áfram með sína ræðu því mannfjöldinn heimtaði að fá að heyra meira í varaforsetaefninu þegar hann tók til máls! Sarah, Sarah, Sarah, hrópaði fólkið þó að hann væri að reyna að tala. Kosturinn er samt sá að dollararnir streyma nú loksins í kosningasjóð repúblikana. Meira en 200 milljónir dollara höfðu safnast í lok flokksþingsins í síðustu viku og meira en 40 milljónir manna horfðu á kosningaræðu Johns McCain. Það er jafnmikill fjöldi og horfði á Barack Obama í vikunni áður og mun meira en stuðningsmenn Johns McCain höfðu búist við fyrirfram. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir fyrstu sjónvarpsumræður kosn- inganna, en það eru sjónvarpskapp- ræður á milli Söruh Palin og Jo Bid- en, varaforsetaefnis Baracks Obama. Kappræðurnar fara fram í lok þessa mánaðar. Einkum lýtur undirbún- ingur Söruh Palin að því að kynna sér utanríkismál. Haft er eftir John Bolt- on, en hann var um skeið sendiherra Bush-stjórnarinnar hjá Sameinuðu þjóðunum, að hann hefði hitt Söruh Palin fyrir skömmu til að ræða við hana um utanríkismálin. Hann sagði að hún hefði komið honum þannig fyrir sjónir að hún yrði fljót að tileinka sér þennan málaflokk. Hann sagði að hún væri greinilega mjög klár og vel að sér um varnarmál, þekkti til dæm- is loftskeytavarnir Bandaríkjanna út í ystu æsar. Heillar kjósendur Samkvæmt nýjum skoðanakönn- unum hafa 58 prósent bandarískra kjósenda myndað sér jákvæða skoð- un á Söruh Palin og 60 prósent kjós- enda voru ánægð með ræðu hennar á flokksþingi Repúblikanaflokksins. Nú er málum svo háttað að John McCain og Sarah Palin eru kom- in með forskot á Barack Obama og Joe Biden samkvæmt nýrri skoð- anakönnun Gallup og USA Today. Í henni sögðust 50 prósent ætla að kjósa McCain en 46 prósent lýstu stuðningi við Obama. Talið er að Sarah Palin eigi mikinn þátt í þessari fylgisaukningu McCains. Þrír menn hafa verið fundnir sek- ir í Lundúnum um tilraun til að myrða farþega í millilandaflugi frá Bretlandi til Norður-Ameríku árið 2006. Ab- dulla Ahmed Ali, Assad Sarwar og Tanvir Hussain eru mennirnir sem valdið hafa flugfarþegum þeim gíf- urlegu óþægindum að nú mega þeir ekki koma með drykkjarföng um borð nema að uppfylltum ströngustu ör- yggiskröfum. Saksóknarar í Lundúnum telja mennina hafa haft uppi ill og útsmog- in áform um að sprengja upp farþega- flugvélar í millilandaflugi. Mennirnir földu sprengiefni á vökvaformi í gos- flöskum, að því er talið er í þeim til- gangi að sprengja upp farþegaflugvél- ar á leið yfir Atlantshaf. Bresk yfirvöld eru þess fullviss um að þremenning- arnir hafi tengsl við alþjóðlegu hryðju- verkasamtökin al-Kaída. Mennirnir segjast vera saklaus- ir af áformum um að sprengja upp fjölda flugfarþega. Þeir segja ætlun sína hafa verið að tendra sprengiefn- ið á lykilstöðum, einungis í þeim til- gangi að koma á framfæri pólitískum skilaboðum. Þeir voru handteknir í ágúst 2006, þegar lögreglan taldi sig hafa fullvissu um að þeir væru komnir á fremsta hlunn að hrinda voðaverkunum í framkvæmd. Kvið- dómur í Lundúnum gat hins vegar ekki náð samstöðu um að mennirn- ir hefði ætlað að stefna farþegaflugi í voða og því voru þeir dæmdir fyr- ir samsæri um morð. Refsing þeirra verður ákveðin síðar. Mennirnir þrír, og tveir að auki, játuðu að hafa átt þátt í gerð píslarvottamyndbanda, en þeir neituðu að hafa ætlað sér að birta myndböndin í kjölfar sjálfs- morðsárásar. Þrír menn sagðir hafa ætlað að fela sprengiefni í gosflöskum í millilandaflugi: Mennirnir sem breyttu farþegaflugi Sarah Palin hefur kveikt nýjan eldmóð hjá kristnu miðstéttarfólki af evrópskum uppruna, en það er einmitt sá kjósendahópur sem getur skipt sköpum í kosningunum. Meintir hryðjuverkamenn Frá vinstri: abdulla ahmed ali, assad sarwar og tanvir Hussain. Sarah Palin vekur mikla athygli á kosningaferðalögum og skýst á toppinn í bandarískum stjórnmálum. Henni er eignaður heiðurinn af því að John McCain mælist nú með meira fylgi en Barack Obama. Vandi McCains er hins vegar sá að hann er sjálfur kominn í skuggann af varaforsetaefni sínu. BrynJólfur Þór GuðMundSSOn fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is Í farþegasætinu Vinsældir söruh mcCain eru það miklar að nú heyrast þær raddir að varaforsetaefnið kunni að skyggja á forsetaefnið john mcCain.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.