Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2008, Blaðsíða 19
þriðjudagur 9. september 2008 19Sviðsljós Silfurtilboð í september Andlitsbað: kr. 5000,– Líkamsnudd: kr. 4900,– Litun og plokkun: kr. 2800,– L a u g a v e g u r 6 6 , 2 . h . S í m i 5 5 2 2 4 6 0 S N Y R T I S T O F A N Gildir til 15. sept. Töff Tvíeyki á Tískusýningu Lindsay Lohan og Samantha Ronson voru sætar saman á tískusýningu systur Samönthu á laugardagsmorguninn. Samantha Ronson og Lindsay Lo- han mættu galvaskar á tískuvikuna í New York á laugardagsmorguninn til að fylgjast með tískusýningu Char- lotte Ronson, systur Samönthu. Char- lotte sýndi vorlínu sína og sátu stelp- urnar sætar og svalar í fremstu röð. Ljósmyndarar flykktust að stelpun- um og þustu hreinlega framhjá öðr- um stjörnum líkt og Sean Lennon. Lohan skartaði níðþröngum og kynþokkafullum kjól sem var renndur í bakið og bláum skóm við. Ronson aftur á móti var ekkert að skella sér í sparikjólinn fyrir syst- ur sína heldur rokkaði bara feitt í svörtum stuttermabol og vesti við gráar niðurþröngar buxur. Þrátt fyr- ir að sjást yfirleitt með hatt á höfð- inu skildi Ronson hann eftir heima í þetta skiptið og sýndi í staðinn nýja strákakollinn sinn. Með rennilás á bakinu Lindsay var sjóðandi heit í níðþröngum kjól með rennilás í bakið. Í fylgd öryggisvarða Ljósmyndarar flykktust í kringum stelpurnar sem fengu fylgd öryggisvarða inn á tískusýninguna. Full aðdáunar Lindsay horfir hér full aðdáunar á samönthu sína meðan hún tekur mynd fyrir sessunaut þeirra á sýningunni. Kærustupar eða ekki? Lindsay og samantha líta út fyrir að vera eins og hvert annað kærustupar þrátt fyrir að hafa aldrei viljað viðurkenna samband sitt. fríða og Dýrið Evan Rachel Wood og Mickey Rourke knúsuðust í Feneyjum: Evan Rachel Wood virðist laðast að ófríðum eldri mönn- um en þessi unga fagra stúlka er sem kunnugt er kærasta Marilyn Manson og unir sér hér vel við að knúsa Mick- ey Rourke í Feneyjum. Rourke og Wood leika saman í myndinni The Wrestler og léku á als oddi á rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum á dögunum. Rourke var ófeiminn við að smella kossum á hálsinn á Wood og voru margir sem höfðu orð á því að hér væri um að ræða eins konar Fríðu og Dýrið myndatöku. The Wrestler hefur fengið gríðargóðar við- tökur og hlaut meðal annars Gullna ljónið á Feneyjahátíðinni fyrir bestu myndina. Glæsileg í grænu evan rachel var glæsileg að vanda en mickey var hálfsjúskaður greyið. Koss á hálsinn rourke var ófeiminn við að smella kossi á hálsinn hennar evan. Sjúskaður með sígó mickey rourke ku sýna stórleik í the Wrestler en var töffaralegur og nett sjúskaður að vanda í Feneyjum. Áhugasamar um tískuna Lindsay og samantha fylgdust af áhuga með vorlínu Charlotte ronson. keira komin með lífvörð Keira Knightley hefur ráðið sér lífvörð eftir að hafa verið áreitt á götum úti. Leikkonan varð mjög skelkuð eftir að vegfarandi hoppaði í veg fyrir hana og öskraði á hana mjög dónalegum orðum nálægt heim- ili hennar í Richmond í London. Hin tuttugu og þriggja ára gamla leik- kona eyddi mestöllum tímanum í eftirpartíi frumsýningar The Duchess í einkaherbergi þar sem hún óttaðist svo mjög um eigið öryggi. Kærasti leikkonunnar, Rubert Friend, kom að sjálfsögðu með á frumsýninguna og mátti að sögn sjónvarvotta ekki víkja frá Keiru allt kvöldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.