Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2012, Qupperneq 4
Ísafjörður Pilturinn sem fyrir
árásinni varð, mun vera mikið
marinn í andliti og á bringu.
Þarf ekki að ljúka skilorði hér
n Mark Doninger er farinn heim í leit að samningi
E
nski knattspyrnumaðurinn
Mark Doninger þarf ekki að
búa á Íslandi þrátt fyrir að hafa
verið tvisvar dæmdur fyrir lík-
amsárás á þessu ári. Doninger var
dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og
einstaklingum sem fá slíka dóma er
frjálst að flytja úr landi og ljúka skil-
orði þar. Íslenska ríkið leggur á þá
engar kvaðir um að þeir dvelji hér á
landi þar til skilorði lýkur, nema sér-
staklega sé kveðið á um slíkt í dóms-
úrskurði.
Doninger var dæmdur í 45 daga
skilorðsbundið fangelsi í síðustu
viku fyrir að hafa í fyrra í tvígang beitt
þáverandi kærustu sína grófu of-
beldi á Akranesi. Árásirnar áttu sér
stað 22. maí og 30. október 2011, sú
fyrri á skemmtistaðnum Breiðinni,
en hin á heimili hans. Í seinna skipt-
ið þurfti Þórður Þórðarson, þjálfari
ÍA að ganga á milli og stöðva Don-
inger, eftir að liðsfélagar Doninger í
ÍA og sambýlismenn treystu sér ekki
til að ganga á milli. Þessir 45 dagar
koma til hegningarþyngingar á fyrri
dóm, en Doninger fékk í apríl síð-
astliðnum fjögurra mánaða skilorðs-
bundinn dóm fyrir að kasta bjórglasi
í mann á skemmtistað á Akranesi í
fyrra.
Mark Doninger, sem er 22 ára
miðjumaður, hóf tímabilið í sumar
með ÍA í Pepsi-deild karla en gekk
á miðju sumri til liðs við Stjörnuna
í Garðabæ. Samdi hann við liðið út
tímabilið en er nú samningslaus og
í leit að liði. Hann hélt aftur til Eng-
lands á dögunum en óljóst er hvort
hann eigi afturkvæmt í íslenska
knattspyrnu eftir dómana.
4 Fréttir 17. október 2012 Miðvikudagur
Guðmundur Alfreð Jóhannsson
Sjálfstæður dreif ingaraðil i hjá Forever Living Products .
Þessi níu daga hreinsikúr hreinsar líkamann af óæskilegum
efnum og kemur þér vel af stað í átakinu. Algengast er að
fólk sé að losa sig við 3–7 kg á þessum níu dögum.
Clean 9 detox/hreinsikúrinn
hefur svo sannarlega verið vinsæll
Verð: 17.900 kr.
Sími: 848 8001
Árétting
Í mánudagsblaði
DV kom fram að
Sigurpáll Jóhannes-
son, sem var hand-
tekinn á pókerklúbbi í Ármúla,
væri fasteignasali. Af því tilefni
skal tekið fram að Sigurpáll hefur
verið sölumaður fasteigna en er
ekki löggiltur fasteignasali.
Samningslaus Mark Doninger var lykil-
maður í knattspyrnuliði ÍA á Akranesi og var
ráðinn sem slíkur í Stjörnuna á miðju sumri.
Hann er nú samningslaus.
Fella niður smálán:
Geðfatlaðir
fá afskriftir
Lán geðfatlaðra einstaklinga hjá
smálánafyrirtækjunum 1909 ehf.,
Hraðpeningum ehf., Kredia ehf.
og Smálána ehf. verða felld niður
að fullu og lokað verður á lán-
veitingar til einstaklinga á aldrinum
18 til 20 ára þegar í stað, að því er
fram kemur í tilkynningu frá sam-
bandi smálánafyrirtækja. Þar segir
að ákvörðun þessa efnis hafi tekin
á fundi Útlána, samtaka fjármála-
fyrirtækja án umsýslu fjármuna
annarra, á mánudag. Mikið hefur
verið fjallað um smálánafyrirtækin
og meðal annars sagði DV fréttir af
því að fíklar undir tvítugu fjármögn-
uðu neyslu sína með smálánum.
„Við höfum fengið ábendingar
um að einhverjir af lánþegum að-
ildarfyrirtækjanna kunni að vera
einstaklingar sem eiga við andlega
erfiðleika að stríða,“ sagði Haukur
Örn Birgisson hrl., lögmaður Útlána
í tilkynningunni. „Aðstandendur
Útlána vilja leggja sitt af mörkum
til þess að greiða úr vandamálum
þessa hóps. Því stendur þeim eða
aðstandendum þeirra til boða að
setja sig í samband við sinn lánveit-
anda og sækja um fulla niðurfell-
ingu höfuðstóls, áfallins kostnaðar
og vaxta.“ NemaNdi lamiNN
með járNplötu
Þ
eir beygja hann ekki svo
glatt,“ segir faðir drengs í
Menntaskólanum á Ísafirði,
sem mátti þola grófa árás
frá tveimur samnemendum
sínum á mánudag. Tveir piltar gengu
í skrokk á piltinum, en allir málsað-
ilar eru undir lögaldri. Pilturinn sem
ráðist var á ætlar að sögn föður síns
ekki að láta atvikið verða til þess að
hann hætti í skólanum.
Marinn í andliti og á bringu
Samkvæmt heimildum DV var nem-
andinn dreginn inn á salerni af
tveimur samnemendum sínum á
fjórða tímanum og hann barinn með
járnplötu sem annar árásarmanna
hafði tekið með sér úr smíðatíma.
Árásarþolinn var fluttur á sjúkrahús-
ið á Ísafirði til aðhlynningar. Hann
mun vera með áverka í andliti og
bringu auk þess sem kvarnaðist úr
tönn.
Lögreglan á Ísafirði staðfestir að
búið sé að leggja fram kæru í mál-
inu, en segir rannsókn þess vera á
frumstigi. Þegar þetta er skrifað var
aðeins búið að taka skýrslu af fórn-
arlambinu, en ekki búið að yfirheyra
aðra málsaðila. Samkvæmt heimild-
um blaðsins eru árásarmennirnir 16
og 17 ára.
„Beygja hann ekki svo glatt“
Faðir fórnarlambsins sagði í sam-
tali við DV að syni sínum væri mjög
brugðið eftir árásina. „Honum nátt-
úrulega bregður við svona eins og
gefur að skilja. Það er búið að kæra
þetta og málið er komið í ferli bæði
hjá skólanum og lögreglunni.“ Hann
segist ekki vita hverjar ástæður á bak
við árásina eru. „Mér skilst nú að
að þetta sé ekki einsdæmi hjá þess-
um drengjum sem að þessu stóðu.
Kannski er verið að reyna að búa til
ótta gagnvart einhverjum eins og
stundum gerist þegar menn hópa sig
saman. Hann er víst ekki sá fyrsti sem
verður fyrir aðkasti af þeirra hálfu.“
Hann segir piltinn ekki ætla að láta
árásina hafa áhrif á skólagöngu sína
og mun hann halda áfram að mæta
ótrauður í skólann. „Já, já, hann ætl-
ar að halda áfram í skólanum. Þeir
beygja hann ekki svo glatt.“
Nemandi í skólanum sem ekki vill
koma fram undir nafni segir annan
árásarmannanna hafa haft sig meira
frammi og hinn hafi í raun ekki gert
annað en að stía þeim í sundur.
Hann segir að ástæðu árásarinnar
megi rekja til ágreinings um bílamál
en það hefur ekki fengist staðfest.
Athuga málsatvik áður en
gripið er aðgerða
„Okkar fyrstu viðbrögð eru að fá
öll málsatvik og hafa samband við
alla hluteigandi aðila áður en við
grípum til aðgerða. Það er erfitt að
grípa til alvarlegra aðgerða áður
en við þekkjum allar hliðar máls-
ins,“ segir Jón Reynir Sigurvinsson,
skólameistari Menntaskólans á Ísa-
firði, um málið en hann vill ekki
gefa upp að svo stöddu hvort nem-
endunum hafi verið vikið úr skóla
vegna árásarinnar.
Hann segir að fundað verði með
starfsmönnum og nemendum skól-
ans í dag, miðvikudag, áður en gef-
in verður út tilkynning vegna máls-
ins.
Gauti Geirsson, formaður nem-
endafélags Menntaskólans á Ísa-
firði, segir nemendur slegna yfir at-
vikinu. „Það eru allir miður sín yfir
þessu og þetta er eitthvað sem við
þekkjum ekki.“ n
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Alvarleg líkamsárás á nemanda í Menntaskólanum á Ísafirði„ Já, já, hann ætlar
að halda áfram í
skólanum.
Leiðrétting
Í úttekt DV síðastliðinn mánu-
dag um stöðu lífeyrissjóðanna
árið 2011 urðu þau mistök að
þegar tryggingafræðileg staða
20 stærstu lífeyrissjóða lands-
ins var borinn saman var staða
Lífeyrissjóðs starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar tekin en ekki
staða Lífeyrissjóðs Vestmanna-
eyja. Tryggingafræðileg staða
Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja var
-4,2 prósent en ekki -94,4 pró-
sent líkt og fullyrt var. Þar með
lenti Lífeyrissjóður Vestmanneyja
í 14. sæti af 20 stærstu lífeyris-
sjóðum landsins en ekki 19. sæti.
Var með 25 stig en ekki 10 stig.
Tryggingafræðileg staða sjóðs-
ins er því sú fimmta besta af 20
stærstu sjóðum landsins. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.