Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2008, Side 29
DV Fálkið
FIMMTUDAGUR 3. APRlL 2008 29
A LEIÐINNITIL KANADA:
• •
Hljómsveitin Sprengjuhöllin spilar á
tveimur tónlistarhátiðum í Kanada í
mai. Bergur Ebbi, söngvari sveitarinn-
ar, segir ný lög væntanleg í sumar og
breiðskífu í haust.
Hljómsveitin Sprengjuhöllin mun spila á tveimur tónlistarhá-
tíðum í Kanada í maí. Annars vegar á fjöllistahátíðinni Núna Now
sem haldin er í Winnipeg 9. maí. Hátíðinni er ætlað að stuðla að
öflugum tengslum svæðisins við ísland. Það má því búast við því
að fleiri íslenskir listamenn eigi eftir að staðfesta komu sína á um-
talaða hátíð en á síðasta ári stigu þar á svið meðal annars Ólöf Arn-
alds, Jón Gnarr og Ragnar Kjartansson.
17. maí spila strákarnir í Sprengjuhöllinni svo á tónlistarhátíð-
inni New Music West Festival í Vancouver.
Þess má einnig geta að hljómsveitinni var boðið að spila á ann-
arri tónleikahátíð í Toronto í júní sem nefnist North by North East en
urðu drengirnir því miður að hafna boðinu. „Já, Kanadamennirnir
eru greinilega hrifnir af okkur en við erum ekkert í neinum sérstök-
um meik-hugleiðingum. Við neitum því þó ekki að hrifning okkar á
Kanada er gagnkvæm," segir Bergur Ebbi, söngvari Sprengjuhallar-
innar, og bætír við: „Kanadamenn eru með alveg sama lífsstandard og
Bandaríkjamenn nema þeir fara aldrei í stríð og eru með lauf í fánan-
um sínum. Þeir eru sótthreinsuð útgáfa af Ameríku og auk þess rjóðir
í kinnum. Hvers meira getur maður óskað sér?"
Aðspurður hvort hljómsveitin hyggist flytja eitthvað nýtt efni fyrir
Kanadabúa svarar Bergur: „Já, það verður eitthvað svolítið nýtt. Við
erum búnir að vera frekar fókuseraðir að semja eitthvað nýtt efni og
ætlum að reyna að koma nýjum lögum í spilun með sumrinu."
I ágúst ætlar Sprengjuhöllin svo að skella sér í hljóðver og taka upp
nýja plötu en fyrsta breiðskífa sveitarinnar, Verum í sambandi,
kom út í fyrra og naut gríðarlegra vinsælda. .
„Þótt við tökum ekki upp fyrr en í ágúst erum við bún- ^^fl
ir að vera í nokkra mánuði að semja og undirbúa því
það þarf að vinna þetta allt rosalega vel. Við höldum
bara okkur striki áfram og stefnum að því að platan ^^fl
komi út í október."
Bergur Ebbi, söngvari Sprengjuhallarinnar
Segir Kanada vera sótthreinsaða útgáfu af
Ameríku og Kanadamenn vera rjóða í kinnum.
11.UPP-
SVEIFLAN
Hljómsveitin Morðingjarnir,
sem nýlega fékk fimm stjörn-
ur í plötudómi DV fýrir plötuna
Afram Island!, spilar á Organ í
kvöld. Tónleikarnir eru liður af
Uppsveiflu Monitor og er frítt
inn eins og vanalega. Ásamt
Morðingjunum er Dísa í Upp-
sveiflu að þessu sinni en hennar
fyrsta plata er rétt ókomin út.
Söngkonan efnilega er einnig í
viðtali í næsta tölublaði Monit-
ors. Húsið verður opnað klukkan
21.00 og eru fríar veigar til 22.00.
HRINGFERÐIN
BYRJARVEL
Fyrstu tónleikarnir í hringferð Rásar
2 og Monitors fóru fram í Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi síðast-
liðið þriðjudagskvöld. Hljómsveit-
irnar Sign, Benny Crespo's Gang og
Dr. Spock eru um þessar mundir að
rokka hringinn í kringum landið og
heppnuðust þessir fýrstu tónleikar
alveg einstaklega vel. Troðið var út úr
dyrum og í viðtali við Monitor sagði
Björn Sigmundur í Benny Crespo's
Gang. „Tónleikamir á Selfossi gengu
rosalega vel og það var fullt út úr
dyrum og svakaleg stemning." En
þess má geta að Selfoss er heimabær
þeirra í Benny Crespo’s Gang.
LEIKARINN ARMUNDUR ERNST ER LUNKINN RÆÐUMAÐUR:
HEILLAÐIST AF LEIKLISTINNI í MORFÍS
„Ég bara sá einhvern veginn smá leiklist
í þessu, ef þannig má að orði komast,"
segir Arnmundur Emst Backman, leik-
ari og menntaskólanemi, um hvern-
ig hann fékk áhuga á ræðumennsku.
Arnmundur keppir í úrslitum Morfís á
laugardaginn, fýrir hönd MH, en úrslit-
in fara fram í Háskólabíói. Arnmundur
er sonur Eddu Heiðrúnar Backman og
hefur verið viðloðandi leiklist frá unga
aldri. Hefur hann leikið bæði í sjón-
varpi og kvikmyndum, meðal annars í
Strákunum okkar og nú síðast í Veðra-
mótum. „Ég leit á þetta þannig, að ef
ég ætla að þroskast sem leikari er þetta
kjörinn vettvangur til þess. Góður lær-
dómur sem fylgir manni út lífið," seg-
ir Arnmundur, sem þykir ansi líflegur
í pontunni og var valinn ræðumaður
kvöldsins þegar Hamrahlíð mætti
Menntaskólanum við Sund fyrr á ár-
inu. „Ég er að klára mitt þriðja ár í skól-
anum og stefni á að vera í liðinu aftur á
næsta ári." Eftir menntaskólann stefnir
Arnmundur á að fara til útlanda í eitt
ár, „bara til að læra að vera ég“. Um-
ræðuefni úrslitanna að þessu sinni er
áróður og mun lið MH mæla með, „Ég
er alveg viss um að þetta verði málefna-
legt og skemmtilegt," segir Arnmundur
að lokum og hvetur fólk til að mæta á
svæðið.
dori@dv.is
Arnmundur Ernst Backman Keppir
I úrslitcim Morfis á laugardaginn.