Skagfirðingabók - 01.01.1985, Blaðsíða 44
SKAGFIRÐINGABÓK
Það er fróðlegt að lesa fundargerð stofnfundar Varmahlíðar-
félagsins og kynnast hugmyndum fundarmanna um menningar-
setur við Reykjarhól. I ræðu Olafs á Hellulandi kom fram, að
takmarkið væri að „vinna að því að í Varmahlíð komi svo fljótt
sem tök eru á gróðrarhús, íþróttahús, sundlaug og héraðsskóli,
sem jafnframt verði aðalgistihús héraðsins yfir sumarmánuð-
ina.“ Olafur lét þess getið, að fyrirhugað væri að stofna deildir
utan héraðs, jafnvel í Vesturheimi, með vinum Skagafjarðar
máli þessu til stuðnings. Innan héraðs skyldi einnig barist: Jón á
Hofi beindi þeirri áskorun til ungmennafélaganna að beita sér
fyrir framkvæmd þessa máls. I ræðum þeirra skólamanna á
Sauðárkróki, Jóns Þ. Björnssonar og Helga Konráðssonar,
virðist örla á ótta um ríg eða hagsmunaárekstra milli ung-
lingaskóla kaupstaðarins og héraðsins. Jón Þ. Björnsson talaði
um að unglingaskólinn á Sauðárkróki „stefndi nú meira í átt til
gagnfræðanáms, en lagði áherslu á að væntanleg menntastofnun
héraðsins verði með bóklegu og verklegu námi rekin sem
þjóðlegur sveitaskóli og vinni að glæðingu átthagaástar og
heimilisrækni skagfirskrar æsku.“ I sama streng tók sr. Helgi
Konráðsson. Pétur Hannesson, sem síðar vann mikið í þágu
Varmahlíðarfélagsins, virðist hins vegar ekki vilja útiloka gagn-
fræðanám frá héraðsskólanum. Hann talaði um, að slíkir skólar
hefðu framhaldsdeildir fyrir þá sem lokið hefðu fullnaðarprófi.
I fyrstu stjórn Varmahlíðarfélagsins voru þessir kosnir: Jón
Jónsson á Hofi, Magnús Bjarnason, Olafur Sigurðsson, Helgi
Konráðsson, Gísli Magnússon, Ingibjörg Jóhannsdóttir, til vara
Jón Þ. Björnsson. Formaður var kosinn Arni Hafstað.
Það er greinilegt að mikil vakning hefur orðið í héraðinu um
menntasetur í Varmahlíð um og eftir stofnun félagsins. Sr.
Tryggvi Kvaran, einlægur stuðningsmaður þess, orti kvæðið
Vor í Skagafirði, sem margir Skagfirðingar kunna enn, og
tileinkaði það Varmahlíðarfélaginu. Pétur Jónsson frá Nautabúi
orti kvæðið Til Skagafjarðar og tileinkaði það héraðsskóla
42