Skagfirðingabók - 01.01.1985, Blaðsíða 75
UFNAÐARHÆTTIR SKAGFIRÐINGA
fiska1 eður 4 rdl. Jafnt var metið að taka hest og lána annan hest
með. Þótti það hagfelld borgun fyrir þann, er leiguhestsins
þarfnaðist. Aður hafði tíðkazt þá hestur var leigður suður, að
leigjandi áskildi að fá heimflutta Vi vætt, 40 pund, af harðfiski í
hestsleiguna, en það var þá talinn leigufær gripur, sem leigu-
nautur gat flutt á 100 punda bagga af harðfiski. Þannig hélt
hann þá eftir heimfluttum tveimur 80 punda vættum þótt hann
borgaði leiguna með 40 pundum. En þá munu menn hafa keypt
og flutt vetrarvertíðarþorsk, því 10 fjórðunga bagga af smáfiski
er illt að hemja í reipum.2 En þá hér er komið sögu, voru það
einungis vermenn eða húsbændur þeirra, er fluttu norður
vetrarvertíðarfisk.
Viðskipti sveita- og sjávarbœnda
Viðskipti sveita- og sjávarmanna voru3 á þessa leið: 1 alin af
vaðmáli var látin móti 10 pundum af harðfiski, 5 merka sauð-
skinn sömuleiðis. 5 merkur af smjöri eða tólg gilti móti 10
pundum [af harðfiski]. Rekkjuvoðir móti 80 pundum af fiski.
Brekán óvandað fyrir 80 pund. Litarbrekán fyrir 12 fjórðunga.
En væri keypt móti peningum, var vættin á 4 rd. 6 [skildinga].
2Vi pund af leðri gilti móti 10 pundum [af harðfiski]. Sjóar-
bændum þótti sá maður hafa góða vöru, sem hafði helming
vaðmál og helming af feiti, en þeir munu hafa verið færri, sem
svo vel voru útbúnir. Því hitt átti sér alloft stað, að Norðlingar
keyptu fisk einungis móti vaðmáli á þann hátt, sem fyrr segir.4
1 4 fiska í hdr. Hlýtur að vera rangt, sbr. nssta kafla.
2 Af þessu má skilja, að hver hestur hafi borið tvo 100 punda bagga af harð-
fiski. Ein vætt er 80 pund, einn fjórðungur 10 pund.
3 I hdr. var.
4 Samkvæmt þessu hefur verðlag verið sem hér segir:
10 pund af harðfiski = 1 alin af vaðmáli (tvíbreiðu?).
= 5 merkur eða 21/2 pund af sauðskinni.
= 5 merkur eða 21/2 pund af smjöri eða tólg.
= 2'/2 pund af leðri. Framhald á næstu síðu.
73