Skagfirðingabók - 01.01.1985, Blaðsíða 45
ARNI I VIK
Skagfirðinga. Lét Pétur prenta 600 eintök af kvæðinu og sendi
400 Varmahlíðarfélaginu. „Ætlast ég til,“ segir hann í bréfi til
Arna í Vík 30. júní 1938, „að andvirðið sem ég hefi hugsað mér
kr. 0.50 pr eint. renni í sjóð skólans." Stefán Islandi var einn
stuðningsmannanna. Hann hélt um þessar mundir söng-
skemmtun í Varmahlíð og gaf allan ágóðann, kr. 300, Varma-
hlíðarfélaginu. Vakningin um Varmahlíðarfélagið birtist einnig
í stofnun félagsdeilda innan héraðs (í flestum hreppum sýslunn-
ar) og utan. Haustið 1936 hélt Arni til Reykjavíkur í þeim
tilgangi að vekja áhuga Skagfirðinga þar. Arangur þeirrar ferðar
var stofnun Skagfirðingafélagsins í Reykjavík. I forsvari þess
voru fyrst þeir Hermann Jónasson forsætisráðherra, Stein-
grímur Steinþórsson búnaðarmálastjóri, síðar forsætisráðherra,
Pálmi Hannesson rektor, Magnús Guðmundsson alþingismað-
ur og Pétur Jónsson gjaldkeri. Á Siglufirði safnaði Árni í Vík
meira en 100 félögum árið 1938. Skagfirðingar á Akureyri og í
Borgarfirði stofnuðu einnig með sér samtök um málefni félags-
ins. Vestur-íslendingar skagfirskir sömuleiðis, og má geta
þess, að Vestur-íslendingurinn Soffanías Thorkelsson var
heiðursgestur Varmahlíðarfélagsins á aðalfundi þess árið 1940.
— Þá skal þess getið, að ungmennafélögin höfðu, eins og Jón á
Hofi hafði hvatt til, náið samstarf við Varmahlíðarfélagið,
sérstaklega ungmennafélagið í Seyluhreppi. Samband ung-
mennafélaga í Skagafirði sækir um upptöku í Varmahlíðarfé-
lagið hinn 30. desember 1938.
Frá upphafi hefur verið reynt að blanda ekki pólitík í þetta
mikla áhugamál Skagfirðinga, héraðsskólamálið. „Um það er
ekki nein pólitísk deila,“ sagði Jónas Jónsson á Alþingi 1937
(Alþ. tíð., 295). Að vísu virðast framsóknarmenn hafa sýnt
félaginu öllu óskiptari áhuga en sjálfstæðismenn. I umræðum á
Alþingi 1937 kemur fram, að einn forvígismanna Sjálfstæðis-
flokksins í héraði, Jón Sigurðsson á Reynistað, er á móti því, að
héraðsskóli rísi í Varmahlíð. Vildi hann, að slík stofnun væri á
Hólum í Hjaltadal. Fyrsti þingmaður Skagfirðinga, sjálfstæðis-
43