Skagfirðingabók - 01.01.1996, Blaðsíða 85
GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR A BJARNASTÖÐUM
fjárhús voru metin samtals á 135 ríkisdali og aðrar eignir því
ekki nema á rúma 46 ríkisdali. Á meðal þessara eigna eru t.d.
„pottgarmur lítt nýtur“, metinn á 16 skildinga, „tvö orf léleg"
á 10 skildinga, „tveir hrífugarmar, ein klára", allt á 16 skild-
inga, „þófi brúkanlegur" á 40 skildinga og svo framvegis. Allt
var þetta og sitthvað fleira samviskusamlega uppskrifað og
metið til fjár en nú á dögum þætti víst flest í uppskriftinni
annað en búfénaðurinn harla lítils virði.
I uppskrift dánarbúsins kemur reyndar fram að búfjáreign
Ásmundar hefur verið nokkru minni en búnaðarskýrslan 1826
gefur til kynna (fjórir nautgripir, 53 sauðkindur og þrjú hross).
Mismunurinn hlýtur að eiga sér þá skýringu að uppkomin
börn Ásmundar hafi átt hluta af bústofninum (18 sauðkindur
og eitt hross) en þeirra hluti hafi þó ekki verið sérstaklega til-
greindur í búnaðarskýrslunni.92 I dánarbúsuppskriftina vantar
auk þess sitthvað sem þar hefði mátt vænta, t.d. guðsorðabæk-
ur og nýtileg amboð fyrir tug verkfærra karla og kvenna. Bæði
ekkja Ásmundar og börn þeirra hafa því auðsæilega átt nokkra
séreign sem ekki kom til skipta. Engu að síður er dánarbús-
uppskriftin nöturleg vísbending um afkomu bærilega stöndugs
bónda á fyrri hluta 19- aldar. Óskapleg hefur örbirgð hinna ver-
ið sem ekki náðu því standi.
Kona Ásmundar var Kristín Þorkelsdóttir, f. 1769 á Bakka í
Viðvíkursveit, d. 8. desember 1833 í Bjarnastaðagerði í Una-
dal. Kristín var bústýra á Steinavöllum í Flókadal í nóvember
1786 og enn í nóvember 1787. Húsbóndi hennar þar var Hrólf-
ur Jónsson, f. um 1741, bóndi á Steinavöllum 1785-89-93
92 Engu að síður má ætla að búnaðarskýrslan gefi góða hugmynd um stærð
Bjarnastaðabúsins því að framtal hefúr væntanlega verið með líkum hætti á
mörgum öðrum bæjum í hreppnum.
93 Sóknarmannatal Barðsprestakalls 1784—1814. Af sóknarmannatalinu má
ráða að það er ranghermt í Jarda- og búendatali íSkagfjaröarsýslu IV, bls. 96,
að kona Hrólfs, Þjóðbjörg Jónsdóttir, hafi verið á Steinavöllum til 1789,
þegar Hrólfur hverfúr úr búendatölu. Þjóðbjörg hefúr að líkindum verið lát-
in 1786.
83