Skagfirðingabók - 01.01.1996, Blaðsíða 128
SKAGFIRÐINGABÓK
í fyrstu stjóm KÍS voru Pétur Laxdal, formaður, Þóroddur Sig-
tryggsson ritari og Páll Jóhannsson gjaldkeri. Líkt og sést á of-
angreindri tilvitnun töldu kommúnistar sig ekki eiga nógu
góðan forvígismann til þess að tala máli þeirra á Sauðárkróki.
Þegar KIS var stofnuð var formaður deildarinnar, Pétur Laxdal,
24 ára gamall. Pétur hafði kynnst kommúnisma í Vestmanna-
eyjum á árunum 1930-32, en þangað sótti hann vertíðir á þeim
tíma. Pétur varð fljótlega ötull talsmaður deildarinnar. A einu
ári virtist hann hafa aflað sér þeirrar þekkingar og áræðni sem
nauðsynleg þótti til að koma fram fyrir hönd hópsins á opin-
berum vettvangi. Þá var hann ritstjóri og samdi að mestu leyti
það efni sem birtist í málgagni deildarinnar, fjölrituðu blaði
sem hét Kotungur. Utgáfa Kotungs var öflugust á árunum 1933-
35 eins og síðar verður að vikið. Pétur varð ótvíræður foringi
flokksins meðan hann starfaði á Sauðárkróki, þ.e. á árunum
1932-38.
Fljótlega eftir að KIS var stofnuð dvaldi Aki Jakobsson, sem
þá var erindreki Kommúnistaflokks Islands, lengi á Sauðár-
króki. Mun honum hafa verið ætlað að vera til aðstoðar við mót-
un starfseminnar á staðnum, en algengt var, að menn á vegum
flokksins væru sendir til smærri byggðarlaga í þeim erinda-
gjörðum. Áki dvaldist á heimili Péturs Laxdals og konu hans
Ingibjargar Ögmundsdóttur, sem þá bjuggu í húsinu Borgarey,
utanvert í kaupstaðnum, og einnig á heimili Kristjáns Sig-
tryggssonar frá hausti 1932 til ársloka. Telur Ingibjörg, að Pét-
ur hafi lært margt af Áka.17 Heimili þeirra Ingibjargar og Pét-
urs var miðstöð flokksmanna á staðnum. Ibúðin var þó ekki
stór, lítil stofa, eldhús og svefnherbergi. I stofunni voru allir
fundir KIS haldnir. Þegar stóla þraut sat fólk á gólflnu. Á sama
stað var Kotungur fjölritaður.
Ingibjörg minnist þess, að öðru hvoru hafi verið hent bréf-
miðum inn um glugga á íbúðinni götumegin. Á þeim voru
17 Viðtal. Ingibjörg Ögmundsdóttir við höfund, Reykjavík 12. desember 1994.
126