Iðjuþjálfinn - 01.12.1996, Page 24
22
Við fórum yfir alla þá sjúklinga sem voru
hjá okkur og reyndum að sjá hvaða athafna-
vandamál þeir voru að kljást við. Út frá
þessum athafnavandamálum sáum við að
um var að ræða allavega tvenns konar iðju-
þjálfun. Annars vegar endurhæfingu fyrir
sjúklinga sem komnir voru yfir bráða fasan í
sjúkdómi sínum og hins vegar virkni og
greiningu á þeim sjúklingum sem eru í
bráða fasa eða í fyrstu innlögn. Við skil-
greindum þessa tvennskonar iðjuþjálfun,
þ.e.a.s. dagdeildariðjuþjálfun og móttöku-
deildar iðjuþjálfun sem aðskildar meðferðir.
Við fórum yfir hvað við töldum að dag-
deildariðjuþjálfun ætti að innihalda og það
sama gerðum við fyrir iðjuþjálfun á mót-
tökudeildum.
Við ákváðum að þetta nýja skipulag
skildi bresta á 1. nóvember til að byrja með
sem eins árs tilraun sem metin yrði að hálfu
ári liðnu.
Næsta skref var að leggja fram hugmynd-
imar fyrir samstarfsaðila okkar. Fyrir valinu
urðu yfirlæknar og læknar hinna ýmsu
skora geðdeildarinnar. Okkur fannst það
eðlilegast þar sem iðjuþjálfar starfa sam-
kvæmt beiðni frá læknum. Fundir okkar
með þessum aðilum voru mjög gagnlegir og
fengum við ýmsar góðar ábendingar sem
við síðan unnum úr. Við héldum áfram að
kynna þessa nýju starfsemi fyrir fleiri starf-
stéttum. Þegar þessari skipulagsvinnu var
lokið lág tillaga okkar fyrir og eingöngu eft-
ir að fá hana samþykkta hjá yfirlækni geð-
deildarinnar. Hún var samþykkt. Þá var
næst að tilkynna sjúklingunum hvað var í
vændum. Við byrjuðum að undirbúa þá
strax í sumar og héldum síðan í haust kynn-
ingu fyrir sjúklingana þar sem mikið var
rætt og mikið var spurt.
Móttökudeildariðjuþjálfun
Þjónusta iðjuþjálfa á móttökudeild mun að
mestu fara fram á deildinni sjálfri. Iðju-
þjálfinn mun vera í 80% stöðu á deildinni
sem skiptist í beina og óbeina sjúklinga-
vinnu. Við leggjum ríka áherslu á að mót-
tökudeildirnar tvær í húsinu muni fá sem
líkasta þjónustu. Það auðveldar samstsarfs-
aðilum okkar að nota þjónustuna og auk
þess getum við iðjuþjálfarnir stuðst faglega
hvor við annan og mögulega handleitt hvor
öðrum í daglegum störfum okkar. Með auk-
inni viðveru okkar á deildinni gefst okkur
tækifæri á að gera mat á mögulegum at-
hafnavandamálum sjúklingsins og benda á
hugsanleg meðferðarúrræði mun fyrr en
áður í meðferðarferlinu. Okkar hlutverk á
deildunum mun með öðrum orðum vera
ráðgefandi, greinandi og ekki síst virkjandi.
Þær leiðir sem við munum nota okkur til
mats og virkni eru meðal annars opnir verk-
stæðishópar tvisvar sinnum í viku, bakstur
á deild og tilheyrandi sameiginlegt kaffi-
borð og ævintýrahópur. Þar fyrir utan mun-
um við nýta þær ADL aðstæður sem eru fyr-
ir á deildinni. Reynt verður að vinna þannig
að iðjuþjálfi á mótökudeild greini þörf sjúk-
lings fyrir áframhaldandi iðjuþjálfun eða
finni önnur úræði sem gætu hentað viðkom-
andi sjúklingi betur. Það að geta boðið upp á
tvenns konar iðjuþjálfun eykur möguleika
okkar á að þyngja meðferðina stig af stigi
samfara batnandi líðan sjúklingsins. Iðju-
þjálfunin getur þannig orðið ein af leiðun-
um til að sýna sjúklingum fram á þær fram-
farir sem verða hjá honum.
Dagdeildariðjuþjálfun
Eins og nafnið bendir til fer dagdeildariðju-
þjálfun eingöngu fram á daginn. Þeir sjúk-
lingar sem taka þátt í þessari iðjuþjálfun eru
þeir sem í flestum tilfellum búa heima, eru