Iðjuþjálfinn - 01.12.1996, Page 27
25
Ólöf Leifsdóttir og Kristín Halldórsdóttir iðjuþjálfar:
Fréttabréf frá Kristnesi
• október 1996 •
Á Kristnesi er nú endurhæfingardeild og
öldrunarlækningadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri (FSA). Á endurhæfingar-
deild er pláss fyrir 16 sjúklinga og þar
starfar einn iðjuþjálfi og tveir aðstoðarmenn
í einu stöðugildi. Á öldrunarlækningadeild
er verið að breyta hjúkrunarplássum í virk
öldrunarlækningapláss og stefnt er að því
að þar verði 22 sjúklingar. Þar starfar einn
iðjuþjálfi og einn aðstoðarmaður. Við höf-
um líka reynt að sinna öðrum deildum FSA
eftir því sem tök eru á.
Öryggisnefnd FSA fór þess á leit við okk-
ur að við gerðum úttekt á vinnuaðstöðu
allra ritara á sjúkrahúsinu, en það kemur til
vegna reglugerðar um skjávinnu og kvart-
ana ritara um álag. Við erum að fara af stað
í þetta verkefni núna og stefnum á að ljúka
því fyrir áramót.
í ágúst var tekið í notkun nýtt húsnæði
fyrir iðjuþjálfun og verður formleg vígsla á
því 1. nóvember n.k. Þetta eru 250 fermetrar
á annarri hæð, mjög bjart og skemmtilegt.
Hér eru tvö stór þjálfunarherbergi, tvö ein-
staklingsmeðferðarherbergi, æfingaeldhús
og skrifstofa fyrir okkur. Þetta er mikill
munur frá því sem áður var og í alla staði
mjög góð vinnuaðstaða. Þeir sem eiga leið
hingað norður eru endilega hvattir til að líta
við hjá okkur.
Kærar kveðjur
Ólöf Leifsdóttir og Kristín Halldórsdóttir,
iðjuþjálfar FSA, Kristnesi.
Rit um iðjuþjálfun barna
Snemma á næsta ári verður gefið út smárit
um iðjuþjálfun barna, sem hluti af ritröð
upeldis- og menntunar. í ritinu er fjallað um
iðjuþjálfun barna í víðum skilningi, við-
fangsefni iðjuþjálfa tíunduð og leitast verð-
ur við að veita hagnýtar ábendingar um
ýmislegt er lýtur að færni og virkni barna og
ungmenna við daglega iðju. Höfunar eru
tveir, þær Snæfríður Þ. Egilson og Þóra
Leósdóttir iðjuþjálfar á Greiningar- og ráð-
gjafastöð ríkisins. Útgefendur eru Uppi hf.
og í þessari röð fagrita um ýmis sértæk mál-
efni á sviði uppeldis- og félagsmála og eru
gefin út fjögur til sex rit ár hvert. Þau bjóðast
fagfólki og öðrum áhugasömum í áskrift en
einnig er hægt að nálgast ritin í stærri bóka-
verslunum eða hjá útgefanda. Áskriftarsími
er568 0246.