Jón á Bægisá - 01.12.2005, Side 45

Jón á Bægisá - 01.12.2005, Side 45
Svona eSa hinsegin H. C. Anderseni — fslenskar þýSingar á œvintýrunum Lengi hefur verið sagt um H.C. Andersen að hann hafi verið barnalegur sérvitringur sem skrifaði lítil og sæt ævintýri en hann var í raun ótrúlega hugaður, metnaðarfullur og marksækinn náungi. Ævintýrin hans fengu fljótt verðskuldaða viðurkenningu þó ýmsum þætti þau gróf og jafnvel hættuleg börnum. Reyndar eru mörg ævintýranna ekki síður ætluð fullorðnum en börnum, en áður hafði Andersen skrifað skáldsögur, leikrit og ferðasögur. Villy Sorensen bendir á að snemma hafi komið í ljós að H.C. Andersen var einstaklega næmur og afburða rithöfúndur. Um sjálfan sig segir Andersen í bréfi frá 1855: „Jeg er som et Vand, Alt bevæger mig, Alt afspejler sig i mig.“ Rithöfúndurinn Johannes Mollehave sem mikið hefúr skrifað um verk H.C. Andersens leggur áherslu á ljóðrænan stfl sem einkenni verka hans. Hann bendir á að stuðlun komi víða fram í ævintýrunum. Eitt dæmi um stuðlun er úr „Eldfærunum“: „Men dronningen var nu en álog /fone, som £unne mere end at Æore i &aret“. Hann bendir líka á stuðlun í titlum ævintýranna eins og: „Ailledbog uden Meder“, „Áéiserens nye £læder“ og „ 7ante /andpine". Stuðlunina telur Mollehave þó yfirleitt tapast í þýðingu. Hann segir H.C. Andersen hafa fundið sinn eigin frásagnarstíl í gegnum ævintýrin þar sem eitt aðaleinkennið er talmálið sem var blátt áfram og eðlilegt á sínum tíma. Hann notaði ýmiskonar slettur og upphrópanir úr daglegu tali eins og: „Snik snak“,- „en, to, tre“, og „rap, rap, rap“. Þetta þótti óvenjulegt en ekki mjög fínt. Allir sem skrifa um H.C. Andersen leggja áherslu á þetta lifandi talmál sem sérstakt höfundareinkenni. “Nu skal vi hore“ er kunnugleg setning úr ævintýrunum sem virkar þannig að sögumaður kemst nær þeim er hlustar, enda prófaði Andersen ævintýrin með því að lesa fyrir alla sem á hann vildu hlýða og fann þannig hvernig hann náði best til áheyrenda. Stíll hans er reyndar oft álitinn, það sem kallað er, óþýðanlegur. Það hljómar heldur undarlega ef litið er til þess að ævintýri hans eru þær bókmenntir sem þýddar hafa verið á flest tungumál í veröldinni, næst á eftir Biblíunni. Ástæður þessa óþýðanleika eru taldar vera meðal annars að hann sé svo danskur eða jafnvel fjónskur að erfitt sé að koma tungutaki hans til skila yfir á önnur tungumál og að frásagnarstíll hans einkennist af næstum ómerkjanlegum blæbrigðum og húmor. Sjálfur sagði H.C. Ander- sen að húmorinn væri saltið í ævintýrum sínum. Ævintýri H.C. Andersens hafa víða tekið miklum breytingum í erlendum þýðingum. Vangaveltur hafa verið um hvort þær breytingar sem gerðar hafa verið á ævintýrunum, stafi af því að menn þekki betur alþýðu- ævintýri og reyni því að þröngva ævintýrum hans inn í þeirra kunnuglegu formúlu. J%ý?. á JSœýi/iiá. - Til þess þarf skrokk! 43

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.