Jón á Bægisá - 01.12.2005, Side 56

Jón á Bægisá - 01.12.2005, Side 56
Þýðingar skólapilta á nítjándu öld Eftirfarandi þýðingar eru með elstu þýðingum á ævintýrum H.C. Andersens og sennilega með þeim fyrstu sem til urðu eftir þýðingu Jónasar Hallgrímssonar á Kjærestefolkene eða Toppen ogBolden með titlinum „Legg- ur og skel“ sem birtist í Fjölni 1847 eftir að Jónas var látinn. Þetta eru handskrifaðar þýðingar skólapilta sem eru að streða eins og allar ritnefndir allra skólablaða við að koma blaðinu sínu út og eru tvö þekkt skáld þarna í hópnum a.m.k., Kristján Jónsson Fjallaskáld og Gestur Pálsson. Farin var sú leið við innslátt textans að halda stafsetningu ó- breyttri og breyta nánast engu og eru allar viðbætur ritstjóra innan horn- klofa. Yfir- og undirstrikanir eru upprunalegar. Þessir textar hefðu ekki komist auðveldlega í hendur ritnefndar ef ekki hefði verið fyrir meistara- prófsritgerð Hildar Halldórsdóttur í þýðingafræði við Háskóla íslands, H.C. Andersen og íslenskir þýðendur hans. Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um þessar þýðingar skólapiltanna auk annars fróðleiks um þýðingar á verkum Andersens. Ritnefnd þakkar Lemme Lindu Saukas fyrir aðstoð við innslátt á textunum. Úr Bræðrablaði Reykjavíkurskóla 1848-1849 Engillinn Úr Nye Æventyr eftir H.C. Andersen (snúið og breytt) Þegar gott barn deyr, mælti engillinn við dauða barnið, er hann bar það til himins, kemur í hvert skipti engill guðs niður á jörðina; hann tekur dauða barnið í faðm sinn, þenur út vængina hvítu og svífur yfir þeim reitum sem dauða barninu hefur þótt vænst um og tínir sjer blóm sem hann flytur til Guðs svo þau blómgist þar með meira skrauti en á jörðunni. — 54 á. — Tímarit þýðenda nr. 9 / 2005

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.