Þjóðmál - 01.03.2010, Side 9

Þjóðmál - 01.03.2010, Side 9
 Þjóðmál VOR 2010 7 til að fást við verkefni sín, menn hika við að beita sína nánustu ströngustu reglum og oft á tíðum er ekki völ á úrvalsfólki til starfa, þ .e . við sitjum iðulega uppi með getulítið fólk í æðstu stöð um (sbr . núverandi ríkisstjórn) . Þá er stjórn kerfið ungt og ýmsar reglur ekki rótfastar eins og í eldri samfélögum á Vestur - lönd um . Þrátt fyrir þessa annmarka er raun - veruleg spilling – mútur og stórfelld mis notk- un á aðstöðu – hér mun minni en almennt þekkist í öðrum vest rænum löndum . Þótt trumbusláttur „búsáhalda bylt ingar- inn ar“ glymji enn í höfðinu á vinsælum blogg ur um er vonandi að með hækkandi sól fari þeir að líta upp úr skítnum og skynja á ný fegurð lífsins – og ekki síst allt það góða og jákvæða sem einkennir ís lenskt samfélag og við eigum að vera þakklát fyrir . Snemma árs varð Matthías Johannessen átt ræður . Af því tilefni gaf Bókafélagið Ugla út hans magnaða ljóðabálk, Hruna­ dansinn . Bókinni fylgir geisla diskur með flutningi Gunnars Eyjólfssonar á ljóðinu . Um leið og Matthíasi er óskað til hamingju með afmælið og sitt mikla ævistarf skulu lesendur Þjóðmála hvattir til að kaupa sér Hrunadansinn sem fæst í öllum betri bóka- búðum og í vefverslun Bókafélagsins Uglu á netinu (www .bokafelagidugla .is) . Að svo mæltu óska ég lesend um gleði-legra páska – um leið og ég vek athygli á þeirri gleðilegu staðreynd að með þessu hefti byrjar sjötti árgangur Þjóðmála . Gunnar Eyjólfsson og Matthías Johannessen á haustdegi . Ljósm ynd: K ristinn Ingvarsson . „Hrunadansinn hans Matthíasar er magnað verk, ævisaga blaðamanns, sem hlífir ekki sjálfum sér . Mér fannst hann svo heiðarlegur í þessu,“ sagði Gunnar Eyjólfsson í samtali við Morgunblaðið þegar bókin með flutningi Gunnars á ljóðabálknum kom út . „Matthías er ekki einhamur í Hrunadansinum, vitjar sagnaarfsins, rýnir í samtímann og spáir í framtíðina,“ bætir Gunnar við: „Ég hef kolfallið fyrir snilld hans Matthíasar í skáldskap . Og svo er gaman þegar maður fær svona útgáfu í hendurnar . Ég spilaði diskinn fyrir mágkonu mína, sem er blind, og hún sagði: „Svei mér þá, ég hefði aldrei trúað því að svona ljóð væri til .“ Ég er voðalega feginn að vera svona hrifnæmur, að hrífast af einhverju, þótt maður sé að verða 84 ára .“

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.