Þjóðmál - 01.03.2011, Side 42

Þjóðmál - 01.03.2011, Side 42
40 Þjóðmál VOR 2011 Tilteknar hagfræðikenningar gera ráð fyrir að á uppgangstímum beri að hækka skatta til að slá á þenslu og lækka skatta á krepputímum til að auka umsvif í samfélaginu . Um gildi þessarar kenningar hafa menn löngum deilt . En undanfarin tvö ár hefur verið ráðist í afar umfangsmiklar hækkanir á sköttum og opinberum gjöldum hér á landi þrátt fyrir að ástandið í efnahagsmálum sé það versta í áratugi . Það kann að virðast skjótvirk leið að hækka skatta og gjöld þegar stjórnmálamaður stendur frammi fyrir fjárlagahalla . Til skamms tíma geta slíkar hækkanir skilað miklum tekjum í ríkissjóð þar sem einstaklingar og fyrirtæki eiga í mörgum tilvikum erfitt með að breyta útgjaldaliðum í bráð, en þegar frá líður skipuleggja menn rekstur sinn eða neyslu upp á nýtt með tilliti til lægri kaupmáttar og skatttekjur geta hreinlega lækkað í kjölfarið . Eftir að vinstri stjórnin tók við völdum var strax hafin vinna við breytingar á skatta­ lögum og var venju samkvæmt riðið á vaðið með hækkun á bensíni, víni og tóbaki, þeim vörum sem fólk og fyrirtæki eiga erfiðast með að breyta neyslu sinni á til skamms tíma . Tekinn var upp fjöldi nýrra skatta og gjalda á olíur hvers konar en sem dæmi var svokallaður „kolefnisskattur“ settur á gas­ og dísilolíu, bensín, flugvélaeldsneyti og brennsluolíu, eða um 3,80 til 5,35 kr . á hvern lítra . Var skatturinn réttlættur með orði sem bendir til að verið sé að greiða kostnað vegna mengunar en óljóst er hvernig ætla má að kostnaðurinn sé einmitt þessar skattfjárhæðir eða hver beri kostnaðinn . Inn á reikning hvers leggur ríkið þessar tekjur? Nú er svo komið að ríkið tekur um 111 krónur af hverjum lítra af venjulegu bensíni og stjórnvöld furða sig á kvörtunum almennings vegna svimandihás bensínsverðs . Meðal tillagna ríkisstjórnarinnar til að bæta úr þessu var stofnun nefndar sem „fara á yfir málið“ og ný olíuverðlagsnefnd að hætti „haftaáranna“ . Engum datt hins vegar í hug að lækka vörugjöld af bensíni á jafnfimlegan hátt og þegar gjaldið var hækkað: „Í stað fjárhæðarinnar „22,94 kr .“ í 14 . gr . laganna kemur: 23,86 kr .“ – Lög um ráð staf­ anir í ríkisfjármálum, 18 . desember 2010 . Lögum samkvæmt eiga tekjur af vöru­ gjöld um af bensíni að renna að 99,5% hlut­ um til vegamála en 0,5% til að standa straum af kostnaði við innheimtu gjaldsins . Tekj ur ríkisins af gjöldum á bensín eru hins veg ar um tvöfalt hærri en árlegur kostnaður rík is­ ins við vegakerfið og því ættu gjöldin ekki að vera nema þriðjungur þess sem nú er: Vignir Már Lýðsson Íþyngjandi skattahækkanir

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.