Þjóðmál - 01.12.2010, Page 50

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 50
48 Þjóðmál VETUR 2010 Þjóðmál VETUR 2006 48 forsætisráðherra vorið 1942 . Einkabílstjóri hans, Arreboe Clausen, var tekinn fyrir ölv un við akstur ráðherrabílsins . Ólafur sagði þá: „Góði minn, nú er ég orðinn for- sætisráðherra . Nú verður annar hvor okkar að hætta að drekka .“ Raunar á Arreboe Claus en góða setningu í Kjarna málsins . Einn viðmælandi hans hafði eitt sinn for- vitnast um einhver undirmál, sem hann átti að vita stöðu sinnar vegna . Arreboe færðist undan að svara . Viðmælandinn spurði þá: „Ert þú ekki innsti koppur í búri allra stjórnmálaflokka?“ Arreboe svaraði: „Jú, ég er það, en sá koppur lekur ekki .“ Fræg voru líka tilsvör Ólafs Thors og frammí köll á fundum . Hann sat á þingi fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu . Eitt sinn á fimmta áratug 20 . aldar kallaði fundarmað- ur í Keflavík fram í fyrir honum: „Það er ég viss um, Ólafur, að þú þekkir ekki einu sinni muninn á þorski og ýsu!“ Ólafur svaraði að bragði: „Ég þekki þó að minnsta kosti muninn á þér og þorski, og það er meira en margur gerir!“ Í annað sinn sagði Ólafur: „Það þýðir ekkert fyrir ykkur að skamma mig; ég er fyrir löngu kominn með sigg á sálina!“ Ólafur gaf einu barnabarni sínu þetta góða ráð: „Það er tvennt, sem þú skalt ekki eyða lífinu í, litla mín, og það er að kvíða fyrir og sjá eftir .“ Tómas Guðmundsson Tómas Guðmundsson skáld fæddist 1901 og lést 1983 . Hann var ekki aðeins hagur á bundið mál, heldur líka laust . Eitt sinn sagði hann, þegar vindhviða kom óvænt í fang honum á Lækjartorgi: „Ja, nú þykir mér lognið vera farið að flýta sér!“ Í annað skipti laumaði hann út úr sér: „Það má áfengið eiga, að það hefur aldrei gert neinum manni mein að fyrra bragði .“ Eitt sinn lét Tómas svo um mælt við bind- indispostula nokkurn: „Ég hét því einu sinni að fara í algert bindindi tvö síðustu ár æv innar, en nú þori ég ekki að hætta alveg, því þá er ég feigur .“ Það var í sama anda, sem hann mælti í ræðu í Gamla bíói 1929: „Ístöðu leys ið hefur alltaf verið mín sterkasta hlið .“ Tómas hafði hæfileika til að sjá mál frá ýms um hliðum . Á fundi Stúdentafélags Reykja víkur um atómkveðskap í Sjálf- stæð is húsinu vorið 1952 komst hann svo að orði: „Frá sjónarmiði sóttkveikjunnar hlýtur nefnilega heilbrigðin að vera alveg ægi legur sjúkdómur .“ Hann hitti eitt sinn á Hótel Borg Þórð Albertsson fisksölumann á

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.