Þjóðmál - 01.12.2010, Side 51

Þjóðmál - 01.12.2010, Side 51
 Þjóðmál VETUR 2010 49 Spáni, bróður Kristjáns rithöfundar . Þórður var nýkominn frá útlöndum og spurði: „Yrkir þú alltaf jafn vel, Tómas minn?“ Tómas svaraði: „Já, og því betur sem fleiri fást við ljóðasmíðar .“ Sumar sögurnar af Tómasi eru alþjóðleg ar flökkusögur, eins og rakið er í Kjarna málsins . Til dæmis er þetta haft eftir hon um um æskuár sín: „Ég var stundum svo myrkfælinn, að ég óskaði eftir að sjá draug til þess að vera ekki einsamall .“ Norski rithöfundurinn Sigurd Hoel lét einhverju sinni svo um mælt: „En mann kan bli så mørkredd at han er takknemlig over å få følge med et spøkelse .“ (Menn geta orðið svo myrkfælnir, að þeir þakki fyrir að sjá draug .) Einnig á Tómas að hafa svarað, þegar maður hafði áhyggjur af veikindum hans og spurði, hvort hann væri að deyja: „Nei, það skal verða það síðasta, sem ég geri .“ Þennan orðaleik notaði t .d . Palmerston lávarður, forsætisráðherra Breta, á nítjándu öld . Tómas gat ekki aðeins verið fyndinn, held- ur líka hæðinn . Guðmundur Böðvarsson þótti líkja eftir honum, og sagði Tómas um ljóðabók Guðmundar, Hin hvítu skip, sem kom út 1939: „Þessi bók hefði verið betri, ef ég hefði ort hana!“ Tómas skrifaði um þá Jón Eyþórsson veðurfræðing og Magnús Magnússon ritstjóra, eftir að þeir höfðu gagnrýnt listamannaþingið 1942, sem hann hafði skipulagt ásamt öðrum: „Þeir virðast nú meir og meir hneigjast hvor að öðrum, bæði um skoðanir og rithátt, og hafa þó líklega undir niðri skömm hvor á öðrum, og má hver sem vill lá þeim það .“ Richard Beck, prófessor í Vesturheimi, var skólabróðir Tómasar . Það orð lék á að hann léti blöðin í Reykjavík vita, þegar hann var staddur á Íslandi . Þegar hann mætti Tómasi á förnum vegi í einni Íslandsferð sinni, sagði skáldið kurteislega: „Nei, ert þú kominn hing að heim — öllum að óvörum!“ Matthías Johannessen gaf út þrjár bækur með skömmu millibili, ljóðabókina Borgin hló, fræðiritið Njála í íslenskum skáldskap og viðtalsbókina Í kompaníi við allífið . Eftir að þriðja bókin birtist, spurði Tómas afgreiðslustúlku í Bóka verslun Ísa- foldar: „Hefur nokkur bók eftir Matthías Johannes sen komið út í dag?“ Oftast var þó gaman Tómasar græsku- laust, til dæmis þegar hann neitaði á gamals aldri Guðjóni Friðrikssyni blaðamanni um viðtal með þesum orðum: „Ég er orðinn of gamall til að geta talað af mér .“

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.