Þjóðmál - 01.12.2010, Page 76

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 76
74 Þjóðmál VETUR 2010 með afgerandi hætti við einhliða brottför Bandaríkjahers af landinu árið 2006 . Íslendingar höfðu misst sinn mikilvægasta bandamann á alþjóðavettvangi áratugum saman . Skyldi það hafa engu skipt? Lokaorð Hér hefur að nokkru verið gerð grein fyrir framboði Íslands til Öryggisráðs S .þ ., sem var löng vegferð og hafði það í för með sér að staða Íslands í alþjóðakerfinu var endurskilgreind og sömuleiðis mat ráða- manna og fræðasamfélags á getu landsins til að láta að sér kveða á alþjóðavettvangi til framtíðar litið . Hér hafa verið færð fram rök fyrir því að vera kynni að áherslur Íslands í framboðinu, eftir því sem nær dró kosningunum, hafi verið rangar og bein- línis hrakið frá möguleg stuðningsríki . Jafn framt að bæði fræðasamfélagið og stjórn málamennirnir hafi metið stöðu lands ins ranglega og matið dregið dám af hinni miklu efnahagslegu velgengni í upphafi aldarinnar . Auðvitað er engu hægt að slá föstu um réttmæti gagnrýni minnar, en engu að síður var landið svo fjarri því að ná markmiði sínu að nauðsynlegt er að leita annarra og fjölbreytilegri skýringa en þeirra, að fjandsamleg afstaða áhrifamikilla ríkja í garð Íslands í kjölfar bankahrunsins hafi algerlega skipt sköpum . Hér á kannski við hið fornkveðna: „Mað- ur, líttu þér nær .“ Gunnar Thor og stjórnmálamenningin Guðni Th . Jóhannesson: Gunnar Thoroddsen. Ævisaga. JPV, Reykjavík 2010, 256 bls . Eftir Guðmund Magnússon Gunnar Thoroddsen (1910–1983) var í um það bil hálfa öld virkur og lit- ríkur þátttakandi í opinberu lífi á Íslandi, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, laga pró- fessor, borgarstjóri, fjármálaráð herra, sendi- herra, hæstaréttardómari, iðnað ar ráðherra og loks forsætisráðherra . Samt verður tæp- ast sagt að hann hafi skilið eftir sig spor í sögu þessa tíma í þeim skilningi að hann hafi verið áhrifavaldur um þjóðfélagsþróun eða stöðu landsins í samfélagi þjóðanna á þann hátt sem til dæmis flokksbræður hans og samtímamenn, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson, urðu um og uppúr miðri síðustu öld, eða Davíð Oddsson undir lok hennar . Þegar hinar stóru línur Íslandssögu 20 . aldar eru dregnar er þáttur Gunnars varla meira en neðanmálsgrein . En þess er þá að gæta að neðanmálsgreinar bóka eru stundum áhugaverðasta efni þeirra . Það sýnir vel þessi ævisaga Gunnars á rúmlega sex hundruð síðum, rituð af Guðna Th . Jóhannessyni sagnfræðingi fyrir frumkvæði fjölskyldu Gunnars . Gildi hennar felst ekki síst í því að varpa ljósi á þá stjórnmálamenningu sem sögupersónan lifði og hrærðist í . Guðni Th . Jóhannesson hefur á undan- förnum árum sent frá sér hvert stórvirkið á fætur öðru um íslenska samtímasögu . Hann hefur lipran stíl og á auðvelt með að vinna úr flóknu og viðamiklu efni, einfalda það og gera læsilegt og áhugavert fyrir hinn almenna lesanda . Ástríða fræðimannsins fyrir smáatriðum sögunnar reynir þó

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.