Þjóðmál - 01.12.2010, Page 78

Þjóðmál - 01.12.2010, Page 78
76 Þjóðmál VETUR 2010 töku hans og tengslunum sem hún skapaði við valdahópa þjóðfélagsins . Ættartengsl skiptu einnig máli . Þetta var spillt kerfi og ranglátt í augum nútímans . Þótt Gunnar gerði undir lokin uppreisn gegn flokki sínum og félögum, beindi hann aldrei spjótum að kerfinu og spillingunni sem því fylgdi . Þar var hann innanbúðarmaður . Hann var meistari í refskákinni sem stjórnmálin voru og þátttaka hans virðist alla tíð hafa verið sjálfsmiðuð frekar en hugsjóna- eða hug- myndabarátta . Það efni þessarar bókar sem mestum tíð- indum sætir snýr ekki að persónu Gunn ars í þröngum skilningi heldur þeirri stjórn- málamenningu sem hér var á öldinni sem leið og enn eimir eftir af . Guðni rekur eftir frumgögnum í skjalasafni Gunnars hvernig hann og aðrir stjórnmálamenn misbeittu völdum og áhrifum til að hlaða undir sjálfa sig og stuðningsmenn sína . Svo langt var gengið að borið var fé á kjósendur . Gögn Gunnars sýna að í þingkosningunum á Snæfellsnesi 1942 var kjósendum mútað til að greiða honum atkvæði . Málið varð opinbert en Gunnar neitaði sök og fékk meira að segja manninn, sem sagði sann leikann um málið, dæmdan fyrir meiðyrði í sinn garð! Ég saknaði þess að í þessari löngu bók er hvergi að finna úttekt á Gunnari sem fræðimanni . Lofsamlega er talað um hann sem háskólakennara, en ekki er farið í saumana á því á hverju það byggir . Fróðlegt hefði verið að sjá mat á fræðiverkum hans frá sjónarhóli nútímans . Eins finnst mér vanta mat á tímabili hans sem borgarstjóra Reykjavíkur á árunum 1947 til 1959, og raunar einnig sem forsætisráðherra 1980–1983 . Hvað liggur til dæmis eftir hann í höfuðborginni? Sumir telja að rík- is stjórnin, sem hann myndaði og stýrði, hafi verið einhver hin mislukkaðasta í lýð- veldis sögunni . Hvað sem um það verður sagt bendir atburðarásin við myndun rík is- stjórnar hans í byrjun febrúar 1980 til þess að sókn í metorð og stundarhentugleiki stjórnmálanna hafi ráðið för fremur en áhugi eða eindreginn vilji til að hafa forystu um nauðsynlegar pólitískar umbætur . Slíkt kann ekki góðri lukku að stýra . Þótt Guðni dragi ekkert undan í þessari bók leynir sér ekki ákveðinn velvilji hans í garð sögupersónunnar . Það er út af fyrir sig ekki gagnrýnisvert . Guðni telur að Gunnar hafi ekki sóst eftir völdum valdanna vegna . „Hann vildi sæmd og hann vildi vel,“ segir Guðni í niðurlagsorðum bókarinnar . Ævisaga Gunnars er vel rituð og rann sök- uð, dómar felldir af hófsemi og yfir veg un, og margt nýtt, smátt og stórt, grafi ð upp sem bregður ljósi á sögupersónuna og stjórn- málasögu 20 . aldar . Óhætt mun að segja að þetta sé ein hver vandaðasta ævisaga íslensks stjórnmála manns sem rituð hefur verið . Krossferð Matthíasar á vígvelli siðmenningarinnar Matthías Johannessen: Á vígvelli siðmenningar . Samsæri og kúgun almenningsálitsins. Bókafélagið Ugla, Reykjavík 2010, 256 bls . Eftir Halldór Blöndal Það eru ávallt tíðindi, þegar Matthías Johannessen sendir frá sér nýja bók . Hann er skáld og einn af frjóustu og svip- mestu blaðamönnum 20 . aldar, – bar áttu- maður lýðræðis og borgaralegra dygða, en svarinn andstæðingur auð hyggju og kommúnisma með öll sín andlit . Þess galt hann hjá hinni kaldlyndu bókmennta- hirð Kristins E . Andréssonar . En hinir voru auðvitað miklu fleiri, sem létu hann njóta verka sinna og lífsskoðunar . Og viðtöl hans og viðtalsbækur eru merkilegur þáttur í sögu

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.