Þjóðmál - 01.12.2012, Side 90

Þjóðmál - 01.12.2012, Side 90
 Þjóðmál VETUR 2012 89 aðildar er svik við grundvallarstefnu Sjálf- stæðisflokksins . Í greininni kemur undirkafli sem nefnist „Pólitísk útlegð“ . Þar reifar hann áhyggjur sínar af framtíð Sjálfstæðisflokksins og bendir á það, með réttu, að flokknum hafi ætíð auðnast að vera samstíga í utanríkismálum og deilur um aðild að ESB geti sært hann djúpu sári . Svo bendir hann á, með svipuðum hætti og Davíð Oddsson gerði í ræðu árið 1978, að flokkurinn hafi þanið út báknið og aukið ríkisútgjöld . Slíkt þurfa hægri menn stöðugt að varast, vilji þeir vera trúir sannfæringu sinni . Ennfremur lætur höf- undur í ljós áhyggjur af þverrandi sambandi Sjálfstæðisflokksins við for ystumenn atvinnulífsins, en það hefur verið einn helsti styrkur flokksins í gegn um tíðina . Stjórnmálamönnum er nauðsynlegt að þekkja þarfir viðskiptalífsins því eingöngu blómleg fyrirtæki skapa hagvöxt og bæta kjör almennings . Svo bendir höfundur á í öðrum undir- kafla sem heitir „Pólitískur bjarghringur til andstæðinga“, þau afdrifaríku mistök að ganga til samstarfs við höfuðandstæðing Sjálfstæðisflokksins vorið 2007 . Fátt hefur reynst flokknum eins dýrkeypt og sá gjörningur . Óskandi er að sjálf- stæðismönnum beri gæfa til að vera án sam- starfs við Samfylkinguna í framtíðinni, vilji hann halda lífi og ná stefnumálum sínum fram . Óli Björn fjallar einnig um niðurlægingar- tíð sjálfstæðismanna í Reykja vík á síðasta kjörtímabili . Vonandi lærir flokkurinn af þeim mistökum því þau hafa verið borgarbúum dýr, svo ekki sé dýpra í árina tekið . Í lok greinarinnar, sem skrifuð var fyrir fjórum ár um, ritar höfundur orð sem eiga við enn þann dag í dag: „Sjálfstæðisflokkurinn stend ur á krossgötum og glímir við ytri og innri vanda . Hvernig for- ystumönnum og liðs- mönnum flokksins tekst að leysa vandann getur haft gríðarleg áhrif á þró- un íslenskra stjórnmála og þjóð félagsins alls . Hags - mun irnir sem eru í húfi eru miklir og þar skipta hagsmunir Sjálf stæðis- flokks ins minnstu . Sjálf - stæð is flokkur inn hefur verið kjöl festa í íslensk- um stjórn málum og ef sú kjölfesta bregst getur þjóð félag ið allt skaðast .“ Vonandi eiga þessi sömu orð ekki vel við flokkinn eftir næstu kosningar . Ekki er rúm til að fjalla um alla megin- kaflana heldur er leitast við að taka það helsta fyrir, sem lýsir best grundvallar- skoð unum Óla Björns sem hægri manns . Hann fjallar um viðskiptamál, ríkisfjár mál, lífeyrismál og velferðarmál, allt góðar og vandaðar greinar sem fólk er hvatt til að lesa þegar það hefur fengið þessa stórfenglegu bók í hendur . Meginkaflinn um Icesave lýsir vel eldheitri hugsjón hægri manns sem þráir réttlæti ofar öllu . Hann sýndi kjark og mótmælti harð- lega afstöðu forystu Sjálfstæðisflokksins í Icesave, enda var hún ansi klaufaleg, vægast sagt . Hægri menn vilja ekki að skattgreið- endur borgi skuldir einkafyrirtækja, enda er öll ríkisábyrgð eitur í þeirra beinum . Það þarf kjark til að standa með sannfær ingu sinni þegar á móti blæs, en þann kjark hefur

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.