Félagsbréf - 01.12.1961, Síða 13
FÉLAGSBRÉF
11
Mi‘nnlun er nndirslaíia frjáls Jijááfrlagis
Það þ]óðfélag, sem vér búum við i dag, veitir oss mikið, miklu
meira en nokkurt annað þjóðfélagsform, sem hingað til hefur
þekkzt i heiminum. En það krefst lika mikils af þegnum sinum,
en fyrst og fremst menntunar, ekki aðeins sérmenntunar, heldur
einnig almennrar menntunar, er leiði til viðsýni, ábyrgðar og and-
legs þroska. Einræðisþjóðfélagi er hent, að almenn víðsýni sé ekki
á háu stigi og reynir því að rugla hana með alls konar áróðri og
ritskoðun, en sérhcefingu vill það því meiri. Lýðrœði á hins vegar
allt undir viðsýni þegnanna.
En hverjir eiga að miðla slikri víðsýni? Þjóðfélagið allt, en þó
fyrst og fremst skólarnir. En þeir eru þvi aðeins færir um það, að
þeir séu sjálfir viðsýnir og þekki markmið sitt og vitjunartima.
Og þeir verða að hafa völdum starfskröftum á að skiþa. Fyrir þeim
starfskröftum á háskólinn einkum að sjá. Undirstaðan undir við-
sýnt og þroskað þjóðfélag er fyrst og fremst viðsýnn og þroskaður
háskóli.
Fjulslijlilucrjur hoimskoiiiimíiiisniaii's
En livað sem innanlandsmálum vorum líður og hversu vel sem
vér kynnum að búast um menningarlega, er skylt að hafa i
liuga, að vér getum ekki nema að takmörkuðu leyti ráðið um
það sjálfir, hve til tekst um framtið vora. Vér munum eins og
allar aðrar þjóðir verða æ háðari skipan þeirra mála, sem ráðið
er til lykta á alþjóðlegum vettvangi, en þar hafa miklir atburðir
gerzt að undanförnu, þó að enn sé vandséð um afleiðingarnar.
Um vissa hluti, sem varða stefnuhvörf i alþjóðlegum stjórnmálum,
má samt nokkuð fullyrða. Þannig hafa glæpsamlegar ögranir sovét-
stjórnarinnar i garð alls mannkyns fylkt frjálsum þjóðum heims
til æ fastari samstöðu og þær virðast nú staðráðnari i þvi en nokkru
sinni fyrr að láta livorki loforð né ofbeldishótanir hinnar gerræðis-
fullu einræðiskliku i Kreml blekkja sig framar til afsals eða undan-
látssemi. í anrian stað hafa hinar siðustu uppljóstranir Krjústjoffs
um glórulausa morðingjastjórn Stalins stofnað til viðtækrar sundr-