Skagfirðingabók - 01.01.2002, Page 42
SKAGFIRÐINGABÓK
þótti vel til takast. Þar sem mikið er um nýbyggingar er
og jafnan þörf nýrra húsgagna, er því vel, að sem minnst
af þeim skuli þurfa að sækja á annað landshorn og mik-
ilsvert að mikið magn skuli fara til kaupenda utan Sauð-
árkróks, þar eð slíkt eykur atvinnu í bænum. ...
Hér er þess getið að Trésmiðja S.S. tók þátt í fyrstu iðnsýningu
sem haldin var hér á landi um mánaðamótin ágúst-september
1952, og er ástæða til að vitna í frétt sem birtist í Tímanum 14.
október 1952. Fyrirsögnin er: „Reykvíkingar kaupa húsgögn á
Sauðárkróki". I fréttinni. segir:
Nýlega átti fimm ára afmæli [ein] stærsta og best búna
trésmiðjan sem til er utan Reykjavíkur, trésmiðja Sig-
urðar Sigfússonar á Sauðárkróki. Er í henni smíðað allt
til húsa, húsgögn, bílayfirbyggingar og margt fleira.
Trésmiðja þessi er meðal fyrirtækja þeirra, er taka þátt í
iðnsýningunni.
í tengslum við þessa sýningu leigði Sigurður pláss í útstill-
ingaglugga Málarans og sýndi þar borðstofuhúsgögn og ýmis-
legt fleira. Þetta framtak leiddi af sér talsverð viðskipti, m.a.
keypti Heildverslun Ásbjörns Ólafssonar mikið af húsgögnum
frá trésmiðju Sigurðar og höndlaði með um skeið. Auk þess
munu allmargir aðrir, bæði einstaklingar og húsgagnaverslanir,
hafa skipt mikið við fyrirtækið í tengslum við þessa sýningu. I
ofangreindri frétt segir einnig:
Það var þetta fyrirtæki, sem kom með fyrstu steypu-
hrærivélina í héraðið og litlu síðar tvær til viðbótar.
Einnig hefir það tekið upp þá nýbreytni, að leigja mönn-
um steypumót. Byggingar á Sauðárkróki og víðs vegar
um héraðið hefir fyrirtækið tekið að sér, og því komið
mjög við byggingasögu héraðsins á síðustu árum. Ann-
40