Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.1996, Page 26
Þvagleki er heilbrigðisvandamál þar sem hjúkrunarfræð- ingar, t. d. á heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum, geta lagt sitt af mörkum og aðstoðað fólkvið að takast á við vandann. Með beinum spurningum er komist að því hvort vandinn er til staðar og með fræðslu og úrræðum komið til hjálpar. Við flest stærri sjúkrahús í nágrannalöndum okkar hefur á síðustu árum orðið sú þróun að þar eru starfræktar göngudeildir fyrir fólk með þvagfæravandamál. Yfirleitt starfar þar saman teymi þvagfærasérfræðings, kvensjúkdómasérfræðings, „uroterapeuts" og sjúkraþjálfara og þangað getur fólk komið til sjúkdómsgreiningar, rannsókna og meðferðar. Það er von okkar að starfsemi með þessu sniði verði einnig á íslandi í náinni framtíð. Jafnframt er markmiðið að þróa áfram þær „urodynamisku“ rannsóknir sem gerðar eru á Landspítalanum. Okkur langar að minnast lftillega á „Þránd í götu“, sem vonandi verður breyting á, en það er hvernig staðið er að kaupum á hjálpartækjum hér á landi. Hjálpargögn eru dýr og margir hafa ekki fé til slíkra kaupa. Mjög erfitt er að fá niður- greiðslu hjá Tryggingarstofnun á hjálpargögnum vegna þvag- leka, t.d. álagsþvagleka. I nágrannalöndum okkar eru hjálpartæki mun aðgengilegri og þar geta „uroterapeutar“ ávísað hjálpargögnum til skjólstæðinga sinna. Starf „uroterapeuta" er mjög fjölþætt og þörf á fleirum hér á íslandi, t. d. til að sérhæfa sig fyrir böm með þvagleka, fyrir öldrunardeildir, fyrir einstaklinga með ýmis konar lamanir, fyrir heilsugæslustöðvar og stærri sjúkrahús úti á landi. Vonum við að ekki líði á löngu áður en fleiri bætast í okkar litla, tveggja mann hóp. 250 Áhrif þvagleka „Urinary incontinence“ hefur verið skilgreint sem ástand þar sem ósjálfráður þvagleki veldur andlegum, líkamlegum og félagslegum vanda. •Þvagleki hefur áhrif á lífsgæði einstaklinga og veldur skömm, einangrun og minnkaðri sjálfsvirðingu. •Þvagleki hefur áhrif á alla þætti daglegs lífs, mat og drykk,val á fatnaði, vellíðan í starfi, frístundir, ferðalög, náin samskipti og kynlíf. •Þvagleki er ennþá feimnismál og margir leita sér ekki aðstoðar, enda er þvagleki oft nefndur „hinn duldi vandi“. •Þvagleki er heilbrigðisvandamál; 15-20% allra kvenna og 5% allra karla líða af þvagleka. Tíðnin eykst hjá öldruðum og hjá konum við tíðarhvörf. Af 7 ára börnum þjást u.þ.b.10% af þvagleka dag eða nótt. TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 5. tbl. 72. árg. 1996

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.