Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 12.árgangur Miðvikudagur 14. desember 1988 10. tölublað ® /a7 » ft f&m im Auj s 1 & I Jmr j , Jesú blessar ungu börnin . — Altaristafla í Glæsibœjarkirkju eftir Arngrím Gíslason málara. Ó, Faðir, gjör mig lítið Ijós um lífs míns stutta skeið, til hjálpar huerjum hal og drós, sem hefur villzt af leið. Ó, Faðir, gjör mig blómstur blítt, sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. Ó, Faðir, gjör mig Ijúflingslag, sem lífgar hug og sál og vekur sól og sumardag, en svœfir storm og bál. Ó, Faðir, gjör mig styrkan staf að styðja hvern sem þarf unz allt það pund, sem Guð mér gaf, ég gef sem bróðurarf. Ó, Faðir, gjör mig sigursálm, eitt signað trúarlag, sem afli blœs í brotinn hálm og breytir nótt í dag. Mattli. Jochumsson. Til lesenda Norðurslóð sendir vinum og vandamönnum um land allt bestu óskir um gleðileg jól og gœfuríkt komandi ár með þakklœti fyrir samskiptin á árinu 1988. Messur um jólin: 18. desember verður aðventustund á Dalbæ kl. 16.30. Aðfangadagur. Aftansöngur í Dalvíkur- kirkju kl. 18.00. Jóladagur. Hátíðamessa í Vallakirkju kl. 13.30. Jóladagur. Hátíðarmessa í Tjarnarkirkju kl. 15.30. Annar jóladagur. Hátíðamessa á Dalbæ kl. 14.00. Þriðji jóladagur. Hátíðamessa á Urðum kl. 21.00. Nýjársdagur. Hátíðamessa í Dalvíkurkirkju kl. 17.00. Ræðumaður Bjarni Guðleifsson ráðunautur. Samkomur um jólin Jólatrésskemmtun barna í Svarfaðardal verður á þinghúsinu Grund miðvikudaginn 28. des. kl. 14.00. Jólatrésskemmtun barna á Dalvík verður í Víkurröst 29. des. kl. 16.00. 23. des. syngur blandaður kór undir stjórn Hlínar Torfadóttur við verslanir á Dalvík og á götum Dalvíkur frá kl. 20.00-21.30. Jólatónleikar í Víkurröst á annan í jólum. Barbara Vigfússon sópran og Jóhannes Vig- fússon píanoleikari. Tónleikarnir eru tileinkaðir Georg Gerswin. Jóhannes er Akureyringur búsettur í Sviss. Þau hafa haldið tónleika víða um Evrópu undanfarið. Annan jóladag. Dansieikur í Víkurröst kl. 23.00. Hljómsveitin Kvartett leikur. Aramótadansleikur á gamlárskvöld kl. 00.30. Hljómsveitin Edda leikur. Brenna á Skakkabakka á gamlárskvöld eða þrettándakvöld, (óvíst hvort heldur). Opið hús á Grundinni á eftir.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.