Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 11

Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 11
NORÐURSLÓÐ - 11 braskið er að vísu bannað en þó viðurkennt því allir mega versla í svonefndum “dollarabúðum" þótt vitað sé að dollararnir sern keypt er fyrir þar séu að stærstum hluta fengnir í svartamarkaðs- braski. Ríkið hefur svo ábata af öllu saman. Zakopane er lítill ferðamanna- bær í Tatrafjöllunum. Þangað koma um tvær milljónir ferða- manna árlega, ekki síst að vetrin- um því þarna er prýðileg aðstaða fyrir skíðamenn. Ibúarnir lifa á ferðamannaþjónustu eingöngu og boðið er upp á ýmislegt nýstárlegt. Þar keppa aldraðir eklar hestvagna við leigubílstjóra og var hægt að taka slíkan vagn í bæinn frá hótelinu þar sem við bjuggum. Nokkrir úr hópnum gerðu það og lentu á góðglöðum ekli og vakti það ferðalag mikla kátínu. Skilið var í mesta bróðerni með stórum faðmlög- um. í byrjun þessarar aldar var Zakopane eitt fátækasta hérað Póllands. Leiðsögumaðurinn kvað jarðveg ófrjósaman og illa til ræktunar fallinn; reyndar sýndist mér gróska mikil miðað við útsveitir Eyjafjarðar. Þarna er því búvöruframleiðsla einung- is til sjálfsþurftar. í Zakopane gerðist því hið sama og á íslandi: Menn leituðu burt úr neyðinni og til Ameríku. Vestur fluttist fjöldi fólks upp úr aldamótunum síðustu. Hins veg- ar þróast mál þar á annan veg en hér heima. Þangað kom ekkert setulið til að veita atvinnu og erlendan gjaldeyri heldur var fátæktin söm. Þeir sem græddu fé í nýja landinu sendu ættingjunum heima dollara. Þeir voru og eru notaðir til uppbyggingar. Mörg vönduð hús má sjá í bænum, tvær hæðir og ris, og býr fjölskyldan á jarðhæðinni en leigir ferðamönn- um efri hæðina og risið. Darius sagði okkur að flest ntyndu þessi hús byggð fyrir fé frá Ameríku- ættingjum. Lífskjör í Zakopane eru því tiltölulega góð miðað við það sem gerist annars staðar í Póllandi. Lífið er dollarar Ekki taldi leiðsögumaður okkar að hægt væri að tala um skort í Póllandi annan en skort á góðum vörum. Við höfum til dæmis heyrt talað um kjötskort austur þar. Hann taldi svo ekki vera. Hins vegar sagði hann skort á góðu kjöti, t.d. fyrsta flokks nautakjöti. Verðlag er lágt á okkar mæli- kvarða, ævintýralega lágt. Til dæmis var hægt að fá prýðilega máltíð með forrétti, vfni og ábæti fyrir um það bil 5 dollara eða jafnvirði um 230 ísl. króna. Sama var að segja um fatnað ýmiss konar. Hins vegar ber að gæta þess að þetta verð er hlutfallslega hærra fyrir pólskan launamann, sem kannski hefur ekki nema sem svarar 1400 krónum íslensk- um í mánaðarlaun. Bílar eru lúxus sem tiltölulega fáir geta veitt sér. Bensín er skammtað og hver bíleigandi get- ur fengið 40 lítra á mánuði. Hins vegar eru almenningsfarartæki mikið notuð, samgöngur góðar og fargjöld lág. Lífskjör eru því um margt ólík því sem við eigum að venjast og á þau lögð önnur mælistika en hér heima. En ýmislegt getur einnota- þjóðfélagið af Pólverjum lært. Framhald í næsta blaði. Fréttahornið Nú í vikunni flytja fyrstu íbú- arnir inn í blokkina sem Við- ar hf. hefur verið að byggja við Lokastíg. Það eru aðeins liðnir um sex mánuðir frá því að bygg- ing blokkarinnar hófst svo fram- kvæmdahraði hefur verið mikill. Þeir hjá Viðari hf. reikna með að vera búnir að afhenda allar íbúð- irnar í mars n.k. og verða þá talsvert á undan áætlun og fyrr tilbúnir en sainningar gerðu ráð fyrir. í haust hefur verið steyptur upp grunnur fyrir þrjár raðhúsa- íbúðir í þessu hverfi á þeirra vegum. F-rekari framkvæmdir halda síðan áfram þegar dag tek- ur að lengja með vorinu eða þeg- ar framkvæmdum verður lokið við blokkina. Skipulagið sem Viðar hf. lét vinna og hefur feng- ist samþykkt gerir ráð fyrir 12 raðhúsaíbúðum og 4 parhúsa- íbúðum þarna við Lokastíg. Næsta sumar verða byggðar a.m.k. tvær parhúsaíbúðir og áfram verður haldið með bygg- ingu raðhúsa. Siglingasaga Sjómannadags- ráðs, 50 ára starfssaga er kom- in út. Bókin fæst ekki í bóka- verslunum. En á Dalvík fæst hún hjá Kolbrúnu Pálsdóttur, Ásvegi 4. Aðalverkefni Bæjarráðs Dal- víkur í desember mun lúta gerð fjárhagsáætlunar næsta árs fyrir rekstur bæjarsjóðs Dalvíkur og fyrirtækja hans. Þessi vinna fer óvenju snemma af stað og eygja menn nú mögu- leika á því að afgreiða fjárhags- áætlun bæjarins fyrir lögboðinn skiladag sem er 31. jan. 1989. Tillögur og óskir forstöðu- manna og nefnda Dalvíkurbæjar varðandi rekstur og fjárfestingar næsta árs liggja þegar fyrir og er hin eiginlega vinna bæjarfuiltrúa við fjárhagsáætlunina nú rétt hafin. Ef allar óskir varðandi rekstur næsta árs fást uppfylltar, mun verða Ijóst að lítill afgangur verð- ur til nýframkvæmda. Undir lok desembermánaðar munu þessi mál skýrast nánar, og er eins og áður sagði stcfnt af því að fjár- hagsáætlun 1989 verði afgreidd í bæjarstjórn lyrir lok janúarmán- aðar. JOLATILBO ★ Sana gosdrykkir ★ Emmes ís Skafís, 1 og 2ja lítra og pakkaís 1 lítra - Allar gerðir. ★ Niðursoðið grænmeti frá K. Jónsson. ★ Niðursoðnir ávextir frá Krakus, Del Monte, Dole og Ardmona. ★ 15% afsláttur af fersku grænmeti frá Sól ★ Fransmann franskar, 2,5 kg. á kr. 360,- ★ Svínakjöt á gjafverði ★ Jólasteikin er frá Kjötiðnaðarstöð KEA Léttreyktur lambahryggur á aðeins kr. 560,- og Bayonesskinka á aðeins kr. 721,-. Nýkomiö mikið úrval af gjafavörum og leikföngum á mjög góöu veröi. ★ Jólakonfektið fyrir sælkerana í mörgum stærðum og gerðum. r----:---------------------------- i Oskum viðskiptavinum vorum j gleðilegra jóla j og farsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin á líðandi ári. Landsbanki íslands Strandgötu 1, Akureyri Brekkuafgreiðsla, Kaupangi Happdrætti Háskólans býöur nú langhæstu vinninga á íslandi; 5 milljónir sem gefa 25 milljónir á tromp og 45 milljónir á númerið ailt. Sannkötluð auöæfi! En stóru vinningarnir eru fleiri því að milljón króna vinningar eru alls 108. HeildarupphæÖ til vinningshafa er rúmur milljarður og áttahundruð milljónir. HAPPDRÆTTl HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.