Norðurslóð


Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 18

Norðurslóð - 14.12.1988, Blaðsíða 18
18 - NORÐURSLÓÐ Saul og Chris. Munaðarlausir DH BmÖrakgrósarinmr Joanna Roswell er send á vegum uppboðsfvrirtækis til Thirlbeck, hins afskekkta ættarseturs jarlsins af Askew. Setrið minnir hana á ævintýrahöll, fulla af gersemuni sem enginn hefur fengið að líta. En Thirlbeck býr yfir fleiri leyndarmálum og bölvun hefur hvílt yfir nafni ættarinnar um aldir. Áður en Joanna veit af togast óttinn og ástin á um líf hennar. Catherine Gaskin er einhver þekktasti og vinsælasti ástar- og spennusagna- höfundur sem nú er uppi og bækur hennar hafa selst í milljónum eintaka um heim allan, enda eru þær æsispennandi og rómantískar í senn. ÍÐUNN Brœðraborcjarstíg 16 ■ sími 28555 AUSDUR Æsileg saga úr smiðju meistara spennubókanna. Flugvél Bandaríkjaforseta er á leið til Washington með sex mestu áhrifamenn í heimi. Skyndilega hverfur hún af ratsjár- Forsetavéiinni fSBTlt skjám og finnst aftur á flugi — yfirgefin draugavél sem allt í einu breytist í glóandi eldhnött. Hvað varð af áhöfn og farþegum? Á bak við þetta bíræfna rán er afburðasnjall glæpamaður sem þyrstir í hefnd — en jafnvel hann veit ekki um öll launráð sem brugguð eru á bak við tjöldin . . . Bækur Alistair MacLean hafa um árabil verið söluhæstar spennubóka á íslandi. HAMMOND VOPNASMYGL OG VALDARAN Ný bók eftir höfundinn sívinsæla, Hammond Innes, hörkuspennandi og viðburðarík eins og fyrri bækur lians. Á eynni Menorcu eru undirróðursmenn farnir að láta til sín taka. Fyrr en varir sýður upp úr og pólitísk morð og hryðjuverk eru framin. Michael Steele dregst inn í hringiðu atburðanna þegar kona hans verður fyrir hrottalegri árás og sjálfur er hann grunaður um morð. Hann verður að taka á öllu sem liann á til, enda á hann í höggi við ófyrirleitna vopnasmyglara og hryðjuverkamenn. PHYLLIS A. HITNEY - Silfursverðið - Spennandi og rómantísk saga um ástir og afbrot eftir hinn vinsæla höfund, Phyllis A. Whitney. Caroline kemst skyndilega að því að nánir ættingjar hennar á Hawaii, sem hún hélt löngu látna, eru á lífi. En henni verður brátt ljóst að hamingjustundir bernskunnar koma ekki aftur. Og harmleikurinn sem batt ó þær enda er óráðin gáta. Var faðir hennar myrtur? Allir sem þekkja sannleikann eru þögulir sem gröfin. Hún ákveður að láta ekki staðar numið fyrr en hún hefur rifið sundur blekkingavefinn sem umlykur fortíðina . . . fóstbræður. Afburðasnjallir bardagamenn. Leyniþjón- ustumenn á heimsmælikvarða. Þrautþjálfaðir launmorðingjar. . . Einmanakenndin gerði þá nótengdari en bræður. Þeir treystu aðeins einum manni, manninum sem þjálfaði þá og breytti þeim í drápsvélar . . . Þetta er mögnuð saga af njósnum og gagnnjósnum, svikráðum og tryggð eftir David Morrell. Bækur hans eru hörkuspennandi og hafa notið mikilla vinsælda. Ein þeirra er First Blood (í greipum dauðans) þar sem Morrell skapaði bardagahetjuna Rambo.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.